| |
| 1. 2207022 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar - Ljárskógar | |
| Nefndin felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda varðandi umsóknina. | | Samningur1.pdf | | Samningur2.pdf | | Samnsv Ljárskógar f Yggcarbon.pdf | | |
|
| 2. 2110026 - Deiliskipulag fyrir jörðina Skoravík | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd felur formanni nefndarinnar og skipulagsfulltrúa að funda með umsækjanda varðandi verkefnið. | | Skoravík Lysing 20220704.pdf | | |
|
| 3. 2205022 - Umsókn um landskipti fyrir Botnalækjahæðir út úr jörðinni Hróðnýjarstaðir | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir landskiptin fyrir sitt leyti og felur skipulagsfulltrúa að afla fullnægjandi gagna og vinna málið áfram. Nefndin bendir þó á að sveitarfélög ákvarða ekki um lögbýlisrétt. | | Beiðni um landsskipti.pdf | | |
|
| 4. 2206011 - Eldsneytisgeymir við rafstöð RARIK | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar og bréfið tekur undir sjónarmið bréfritara um verklag framkvæmdarinnar og varðandi grenndarkynningu. Samkvæmt yfirlýsingu Rarik, sem fjallað er um í lið 6 á þessum fundi er þessi ráðstöfun tímabundin. | | |
|
| 5. 2206037 - Umsókn um byggingarleyfi | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar ábendinguna. Við umfjöllun um byggingarleyfið á sínum tíma þótti nefndinni jákvætt að nýtt hús skyggði ekki á útsýni frá þeim fasteignum sem fyrir eru. | | Athugasemdir.pdf | | |
|
| 6. 2112015 - Bakkahvammur breyting á deiliskipulagi | | Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að leita til Eflu um breytta lóðaskipan, til að taka tillit til hugsanlegra fornleifa. Einnig að hafa samráð við Minjastofnun um endurskoðaða lóðaskipan í Bakkahvammi 15 og 17. Nefndin veitir skipulagsfulltrúa umboð til að skrá breytta lóðaskipan og byggingarreiti, að framangreindum formsatriðum uppfylltum. | | |
|
| |
| 7. 2207009 - Framtíðaráform um varaafl raforku í Dalabyggð. | |
| Lagt fram til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar ítarlegt svar. | | 2206011 - Niðurstaða byggðarráðs Dalabyggðar. Svar RARIK.pdf | | |
|