Til bakaPrenta
Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 82

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
27.10.2026 og hófst hann kl. 16:06
Fundinn sátu: Skjöldur Orri Skjaldarson formaður,
Heiðrún Sandra Grettisdóttir varamaður,
Guðrún Erna Magnúsdóttir varamaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri
Lagt til að mál nr. 6 á dagskrá með málsnúmer 2604024 Fundir öldungaráðs falli út af dagskrá - samþykkt


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2610011 - Fjárhagsaðstoð 2026
Farið yfir stöðu mála. Um er að ræða trúnaðargögn sem vistast á þar til greindu svæði innan málakerfis Dalabyggðar.
Bókað í trúnaðarbók
2. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir stöðu við vinnu fjárhagsáætlunar næsta árs.
Félagsmálanefnd leggur áherslu á að tryggt sé að fjármagn og mönnun fylgi við innleiðingu á Barnaverndarþjónustu Vesturlands og að tekið sé mið að þeim breytingum í fjárhagsáætlun næsta árs.

Samþykkt samhljóða
4. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026
Fjallað um samþykktir sveitarfélagsins og uppfærslu á þeim.
Farið yfir þær breytingar sem gera þarf á samþykktum Dalabyggðar vegna Barnaverndarþjónustu Vesturlands. Tryggja þarf að fullnaðarafgreiðslheimildir séu til staðar í samþykktum og hefja þarf vinnu við viðauka vegna þjónustusamnings við Borgarbyggð.

Samþykkt samhljóða
5. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027
Gjaldskrár sem heyra undir nefndina lagaðar fram. Ákveðið hefur verið í sveitarstjórn að almennar gjaldskrár skuli ekki hækka umfram 2,5% í fjárhagsáætlun næsta árs.
Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við að almennar gjaldskrár hækki ekki umfram 2,5% í fjárhagsáætlun næsta árs.
6. 2610010 - Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta 2027
Lögð fram beiðni frá Stígamóta vegna fjárstuðnings fyrir árið 2027.
Félagsmálanefnd telur því miður ekki forsendur fyrir því að veita framlag til Stígamóta að svo stöddu en óskar samtökunum velfarnaðar í störfum sínum.


Samþykkt samhljóða
7. 2610021 - Beiðni um stuðning til starfsemium karlaathvarf
Lögð fram beiðni Samtaka um karlaathvarf um fjárstuðning á árinu 2027.
Félagsmálanefnd telur því miður ekki forsendur fyrir því að veita framlag til karlaathvarfs að svo stöddu en óskar samtökunum velfarnaðar í störfum sínum.

Samþykkt samhljóða
Almenn mál - umsagnir og vísanir
3. 2609002 - Hvítbók um endurhæfingarþjónustu
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að Hvítbók um endurhæfingarþjónustu á Íslandi.

Í hvítbókinni er áhersla lögð á þverfaglega endurhæfingarþjónustu innan heilbrigðiskerfisins, stöðu hennar og framtíðarsýn um samfellda, einstaklingsmiðaða og aðgengilega þjónustu. Við vinnuna hefur upplýsinga verið aflað frá heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum og veitendum endurhæfingarþjónustu sem starfa á grundvelli þjónustusamninga við Sjúkratryggingar Íslands.

Markmið hvítbókarinnar er að móta skýra framtíðarsýn um fyrirkomulag og afmörkun endurhæfingarþjónustu sem veitt er og fjármögnuð af heilbrigðisráðuneyti.

Umsagnarfrestur er til og með 28. september nk.

Lagt fram til kynningar
Hvítbók um endurhæfingarþjónustu.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:43 

Til bakaPrenta