Til bakaPrenta
Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns - 68

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
17.04.2023 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Þuríður Jóney Sigurðardóttir formaður,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson aðalmaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, Sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2301013 - Rekstur Silfurtúns 2023
Rætt um stöðu mála í rekstri og viðhaldi fasteignar Silfurtúns.
Farið yfir stöðu mála, samþykkt að fela formanni stjórnar og sveitarstjóra að vinna málið áfram í þeim anda sem rætt var á fundinum.
2. 2204015 - Skýrsla frá Vinnueftirlitinu um Silfurtún
Farið var yfir skýrslu frá Vinnueftirlitinu og þá þætti sem þarf að betrumbæta.
Sveitarstjóra falið að svara bréfritara.
3. 2201020 - Starfsmannastefna Silfurtúns
Rætt um starfsmannastefnu.
Sveitarstjóri kynnti að í farvatninu væri endurskoðun á starfsmannastefnu Dalabyggðar fyrir allar stofnanir sem og undirstofnanir og markmið væri að ljúka þeirri vinnu á haustmánuðum. Stjórn Silfurtúns er sammála því að starfsmannastefna Silfurtúns verði eins og annarra stofnana Dalabyggðar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:45 

Til bakaPrenta