Til bakaPrenta
Sveitarstjórn Dalabyggðar - 231

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
09.02.2023 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson aðalmaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir aðalmaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Garðar Vilhjálmsson aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Sindri Geir Sigurðarson varamaður,
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri atvinnu- kynningar- og menningarmála
Lagt til að máli nr. 2211041 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnisvinnslu í landi Þórólfsstaða verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 11 og máli nr. 2301055 - Skjalastefna Dalabyggðar verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 12.

Samþykkt.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2210006 - Stafræn húsnæðisáætlun
Lögð er fram Húsnæðisáætlun Dalabyggðar 2023 til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða.
Húsnæðisáætlun 2023 Dalabyggð.pdf
2. 2212005 - Stofnun Safnaklasa Vesturlands
Á 29. fundi menningarmálanefndar þann 19. janúar 2023 var eftirfarandi niðurstaða bókuð:

2. 2212005 - Stofnun Safnaklasa Vesturlands
Klasi safna, sýninga og setra á Vesturlandi er hugsaður sem samstarfsvettvangur viðurkenndra safna á Vesturlandi og sjálfstæðra sýninga og setra starfandi í landshlutanum.
Óskað er eftir því að sveitarfélagið sendi svar til menningarfulltrúa SSV um hvort að söfn í eigu og rekstri sveitarfélagsins verði hluti af umræddum klasa.
Nefndin gerir tillögu til sveitarstjórnar Dalabyggðar um að sveitarfélagið verði hluti af Safnaklasa Vesturlands í samræmi við meðfylgjandi gögn.

Samþykkt samhljóða.
3. 2301029 - Menningarmálaverkefnasjóður 2023
Opið var fyrir umsóknir í Menningarmálaverkefnasjóð Dalabyggðar frá 2. desember 2022 til og með 14. janúar 2023.
Menningarmálanefnd Dalabyggðar tók úthlutun fyrir á 29. fundi nefnarinnar þann 19. janúar sl.
Í sjóðinn bárust 12 umsóknir að upphæð 2.290.000 kr.- og til úthlutunar voru 1.000.000 kr.-
Það eru 7 verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni:

Sigurbjörg Kristínardóttir - Kórstarf: 200.000kr.-
Sigurbjörg hlýtur styrk fyrir kórstarf hjá blönduðum kór í Dalabyggð sem stefnir einnig á tónleikahald á árinu m.a. í tengslum við Jörvagleði 2023.

Alexandra Rut Jónsdóttir - Er líða fer að jólum (tónleikahald): 200.000kr.-
Alexandra hlýtur styrk fyrir tónleikana Er líða fer að jólum þar sem fram kemur áhugafólk um söng og hljóðfæraleik úr Dala- og
Mýrasýslu. Tónleikarnir verða haldnir í desember 2023.

Slysavarnadeild Dalasýslu - Skemmtikvöld: 200.000kr.-
Slysavarnadeild Dalasýslu hlýtur styrk til að halda skemmtikvöld fyrir íbúa Dalabyggðar á árinu.

Sælureiturinn Árblik - Jólaball: 40.000kr.-
Sælureiturinn Árblik hlýtur styrk til að halda jólaball fyrir alla fjölskylduna í desember 2023.

Sigrún Hanna Sigurðardóttir - Lífið á Laugum (sýning, hlaðvarp): 200.000kr.-
Sigrún hlýtur styrk til að standa fyrir sýningu, viðburði og upptöku á hlaðvarpi tengdu Laugaskóla í tengslum við Jörvagleði 2023.

Iceland up close ehf - Refill (hugmyndasmiðja): 100.000kr.-
Iceland up close hlýtur styrk til að skipuleggja og halda hugmyndasmiðju fyrir krakka á aldrinum 10 til 16 ára, sem fjallar um það að búa til refil eða refla sem segir/segja sögur Dalanna.

Ungmennafélagið Ólafur Pá - Póstbrautin (þrautabraut): 60.000kr.-
Ungmennafélagið hlýtur styrk til að skipuleggja og útbúa þrautabraut undir nafninu Póstbrautin í tengslum við Pósthlaupið 2023, þar sem verkefni/aðstæður landpósta eru yfirfærðar á æfingar/hreyfingu um leið og sögu landpósta í Dalabyggð eru gerð skil.

Til máls tók: Einar

Samþykkt samhljóða.
4. 2205016 - Kosning í stjórnir og samstarfsnefndir skv. B-hluta 48. gr. samþykkta Dalabyggðar
Sveitarstjórn tekur til afgreiðslu tilnefningu í Breiðafjarðarnefnd og Samráðsvettvang Vesturlands.
Samkv. samþykktum sveitarfélagsins með síðari breytingum, segir í 17. tölulið B- liðar 48. gr. að tilnefna eigi aðal- og varafulltrúa í Breiðafjarðarnefnd.
Aðalfulltrúi verður: Valdís Einarsdóttir.
Varafulltrúi verður: Eyjólfur Ingvi Bjarnason.

Samþykkt samhljóða.

Samkv. samþykktum sveitarfélagsins, segir í 13. tölulið B- liðar 48. gr. að tilnefna eigi fulltrúa í Samráðsvettvang Vesturlands skv. ákvörðun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). Þessum lið var frestað á 221. fundi sveitarstjórnar þann 16.06.2022.

Það er stjórn SSV sem tilnefnir í samráðsvettvang og sveitarstjórn heimilar stjórn SSV að tilnefna í samráðsvettvang.

Samþykkt samhljóða.
5. 2211009 - Ungmennaráð 2022-2023
Skipan Ungmennaráðs frá 116. fundi fræðslunefndar Dalabyggðar borin upp til staðfestingar.
Frá 116. fundi fræðslunefndar 06.12.2022:
7. 2211009 - Ungmennaráð 2022-2023
Framlagðar umsóknir í ungmennaráð Dalabyggðar.
Fram eru komin fjögur framboð í tvö laus sæti í ungmennaráði sem fræsðlunefnd skipar í.
Þau Jón Egill Jóhannsson og Guðrún Blöndal lýstu vanhæfi viðafgreiðslu þessa máls og viku af fundi.

Fræðslunefnd samþykkti að bjóða þeim Matthíasi og Kristínu þau lausu sæti í umgmennaráði sem skipa á í nú. Tómstundafulltrúa falið að tilkynna þeim sem kost á sér gáfu um niðurstöðuna og huga að næsta fundi ungmennaráðs.

Sveitarstjórn Dalabyggðar staðfestir að Matthías Hálfdán Ostenfeld Hjaltason og Kristín Ólína Guðbjartsdóttir koma ný inn í Ungmennaráð.
Ungmennaráð 2022-2023 skipa því: Katrín Einarsdóttir, Jóhanna Vigdís Pálmadóttir, Matthías Hálfdán Ostenfeld Hjaltason og Kristín Ólína Guðbjartsdóttir.

Sveitarstjórn þakkar fyrir áhuga ungmenna í Dalabyggð á starfi Ungmennaráðs og hvetur ráðið til góðra verka.

Samþykkt samhljóða.
6. 2211020 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2023
Gjaldskrá fyrir prentun og ljósritun á skrifstofu Dalabyggðar lögð fram til afgreiðslu.
Gjaldskrá tekur mið af gjaldskrá Auðarskóla.

Til máls tók: Björn Bjarki

Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá vegna þj. skrifstofu.pdf
7. 2002053 - Endurskoðun Aðalskipulags Dalabyggðar
Sveitarstjórn samþykkti á síðasta fundi sínum framlagða tillögu að nýju aðalskipulagi með lagfæringum sem lýst var í minnisblaði. Umhverfis- og skipulagsnefnd óskaði eftir á 134. fundi sínum um að fá svigrúm til að fjalla um tillöguna sem um ræðir á grundvelli þess að lagfæringar voru gerðar eftir að athugasemdafresti lauk.
Lagt til að málinu verði frestað til fundar sveitarstjórnar í mars.

Samþykkt samhljóða.
8. 2211021 - Verklagsreglur um starfsemi leikskóla Auðarskóla - uppfærsla fyrir 2023
Frá 117. fundi fræðslunefndar 31.01.2023:
2. 2211021 - Verklagsreglur um starfsemi leikskóla Auðarskóla - uppfærsla fyrir 2023
Við uppfærslu á gjaldskrám haustið 2022 voru ýmsar samþykktir og reglur einnig skoðaðar.
Nefndin fjallar hér um drög að breytingum á verklagsreglum og dvalarsamningi leikskóladeildar Auðarskóla.
Fræðslunefnd samþykkir tillögu að lítið breyttum verklagsreglum og dvalarsamningi leikskóladeildar Auðarskóla sem þarfnast einnig staðfestingar sveitarstjórnar Dalabyggðar.

Til máls tók: Björn Bjarki

Samþykkt samhljóða.
Verklagsreglur um innritun og vistun í leikskóla Auðarskóla.pdf
9. 2301063 - Reglur um skólasókn í Auðarskóla
Frá 117. fundi fræðslunefndar 31.01.2023:
5. 2301063 - Reglur um skólasókn í Auðarskóla
Framlögð tillaga að reglum um skólasókn.
Fræðslunefnd samþykkir tillögu um reglur um skólasókn með áorðnum breytingum og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.

Til máls tók: Björn Bjarki

Samþykkt samhljóða.
SkólasóknarreglurDalabyggðar_uppfærsla_2023.pdf
10. 2301064 - Reglur um skólavist fósturbarna í Auðarskóla
Frá 117. fundi fræðslunefndar 31.01.2023:
6. 2301064 - Reglur um skólavist fósturbarna í Auðarskóla
Framlögð tillaga að reglum um skólavist fósturbarna í leik- og grunnskóla.
Fræðslunefnd samþykkir tillögu um reglur um skólavist fósturbarna í Auðarskóla með áorðnum breytingum og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.

Til máls tók: Björn Bjarki

Samþykkt samhljóða.
Reglur um skólavist fósturbarna í leik- og grunnskóla í Dalabyggð.pdf
Málið hét upphaflega "Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnisvinnslu í landi Erpsstaða" en hefur hér verið leiðrétt í samræmi við ábendingu.
11. 2211041 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnisvinnslu í landi Þórólfsstaða
Frá 133. fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar Dalabyggðar:
4. 2211041 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnisvinnslu í landi Erpsstaða
Lögð var fram umsókn frá Vegagerðinni um framkvæmdaleyfi dagsett 29.nóvember 2022 vegna efnisvinnslu í landi Erpsstaða skv. 1. mgr. 14.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og skilmálum í reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Tilgangur fyrirhugaðra framkvæmda er að tryggja hágæða klæðingarefni til viðhalds og nýframkvæmda á vegum í Dalabyggð. Jafnframt verður unnið efni til hálkuvarna fyrir þjónustustöð Vegagerðarinnar í Búðardal.
Áætlaður verktími er 1.febrúar til 1.júlí 2023.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að fresta afgreiðslu þessa máls og felur skipulagsfulltrúa að ræða við Vegagerðina um stöðu mála.

Í 2. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem fjallar um framkvæmdaleyfi segir:
[Öll efnistaka á landi, úr botni vatnsfalla og stöðuvatna og úr hafsbotni innan netlaga er háð framkvæmdaleyfi hlutaðeigandi sveitarstjórnar. Þó er eiganda eða umráðamanni eignarlands heimil án leyfis minni háttar efnistaka til eigin nota nema um sé að ræða náttúruverndarsvæði eða jarðminjar eða vistkerfi sem njóta verndar skv. [61. gr.] laga um náttúruvernd. Framkvæmdaleyfi vegna efnistöku skal gefið út til tiltekins tíma og skal í leyfinu gerð grein fyrir stærð efnistökusvæðis, vinnsludýpi, magni og gerð efnis sem heimilt er að nýta samkvæmt því, vinnslutíma og frágangi á efnistökusvæði. Áður en leyfi er veitt skal leita umsagnar Umhverfisstofnunar og viðkomandi náttúruverndarnefndar nema fyrir liggi samþykkt aðalskipulag sem framangreindir aðilar hafa gefið umsögn sína um, sbr. 1. mgr. 68. gr. laga um náttúruvernd.]

Málinu var frestað meðan beðið væri eftir nýju Aðalskipulagi. Á þeim forsendum að Umhverfisstofnun hefur nú gefið umsögn um heildar endurskoðun á nýju Aðalskipulagi Dalabyggðar, þar sem umræddur efnistökustaður er tilgreindur, óskar Vegagerðin eftir því að málið verði tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.
12. 2301055 - Skjalastefna Dalabyggðar
Lögð fram ný skjalastefna Dalabyggðar til afgreiðslu.
Tilgangur skjalastefnu þessarar er að tryggja lýðræði og gegnsæi í stjórnsýslu Dalabyggðar með ábyrgri skjalavörslu.
Öll skilaskyld skjöl þarf að varðveita á upprunalegan, áreiðanlegan og rekjanlegan hátt í samræmi við gildandi lög, reglugerðir, reglur og góða stjórnsýsluhætti.
Skjalastefna þessi lýsir ábyrgð hvers og eins á skjalavörslu sveitarfélagsins Dalabyggðar, stofnana þess, starfseininga, fyrirtækja í meirihlutaeign Dalabyggðar og byggðasamlaga sem sveitarfélagið er aðili að.

Samþykkt samhljóða.
Skjalastefna Dalabyggðar 20230125.pdf
Fundargerð
13. 2212011F - Byggðarráð Dalabyggðar - 303
Til máls tók: Eyjólfur um dagskrárlið 4.

Oddviti leggur fram tillögu:
Sveitarstjórn samþykkir að framlengja samninga við núverandi verktaka fyrir skólaárið 2023-2024. Jafnframt verði haldið áfram að undirbúa útboð skólaaksturs fyrir skólaárið sem hefst haustið 2024.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerð borin upp til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.
13.1. 2208004 - Vegamál
Fulltrúar Vegagerðarinnar mæta til fundar, til umræðu eru vegamál almennt, framkvæmdir sem og fyrirkomulag snjómoksturs.
Rætt um framkvæmdir, fyrirhuguð útboð, hraðahindranir og mælingar í þéttbýli, snjómokstur, brýr, styrkvegi, upplýsingar á vefsíðu Vegagerðarinnar, girðingar, merkingar lögbýla og skilti.
Klofningsvegur (8km) og Steinadalsvegur/Ólafsdalsvegur (7,5km) fara í útboð í vor, unnið er að hönnun.
Einbreiðum brúm fækkar, brúm á Dunká og Skraumu skipt út í framkvæmdum sem standa yfir núna.
Umsóknum um fjármagn til styrkvega er að fjölga.
Rekstrarhalli er á snjómokstri, sendar hafa verið tillögur að breytingum á snjómokstri á starfssvæðinu.
Vegagerðin heldur við ákveðnum girðingum meðfram vegum, landeiganda ber skylda til að halda við sínum girðingum meðfram vegsvæði og getur þá sótt um styrk til Vegagerðarinnar. Girðingar sem fá styrk eru teknar út. Átaksverkefni hafa verið tekin í þessum málaflokki. Samkvæmt lögum er það á ábyrgð sveitarfélaga að sjá til þess að girðingum sé viðhaldið. Vegur nr. 60 hefur forgang þá í fjármuni á starfssvæðinu.
Er kemur að merkingum lögbýla er það sveitarfélagsins að kaupa skiltið og rörin en Vegagerðin setur það upp.

Byggðarráð þakkar Pálma og Sæmundi fyrir komuna og samtalið.
13.2. 2211020 - Gjaldskrár
Rætt um gjaldskrá gatnagerðargjalda
Rætt um mögulegar útfærslur á afslætti af gatnagerðargjöldum.

Lagt til að vísa málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar.

Samþykkt samhljóða.
13.3. 2212006 - Umsókn um lóð Iðjubraut 4
Framlögð umsókn um lóð að Iðjubraut 4.
Umsókn samþykkt.
13.4. 2301027 - Skólaakstur 2023-2026
Núgildandi samningar um skólaakstur í Dalabyggð renna út í lok skólaársins. Framlagt minnisblað sveitarstjóra um mögulega útfærslu á undirbúningi útboðs sem og núgildandi reglur um skólaakstur í Dalabyggð.
Lagt til að undirbúningur að útboði verði hafinn, í samstarfi við Ríkiskaup.

Samþykkt samhljóða.
13.5. 2301028 - Grassláttur og hirðing 2023
Framlagt minnisblað sveitarstjóra varðandi grasslátt á vegum Dalabyggðar í kjölfar þess að óskað var eftir að losna undan samningi af hálfu þess verktaka sem var með verkið.
Lagt til að farið verði í verðkönnun fyrir grasslátt á vegum Dalabyggðar.

Samþykkt samhljóða.
13.6. 2212009 - Afskriftarbeiðni
Samþykkt samhljóða.

Lagt til að veitt verði heimild til að hækka niðurfærslu vegna skatttekna um 1.900.000 kr.-
Samþykkt samhljóða.
13.7. 2301021 - Nýsköpunarsetur Dalabyggðar 2023
Byggðarráð tekur til umfjöllunar gjaldskrá Nýsköpunarseturs Dalabyggðar fyrir árið 2023.
Lagt til að gjaldskrá haldist óbreytt.

Samþykkt samhljóða.
13.8. 2301024 - Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Framlögð umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags - trúnaðarmál.
13.9. 1502021 - Reglur um snjómokstur og hálkuvarnir
Rætt um snjómokstur og hálkuvarnir í dreif- og þéttbýli.
13.10. 1702012 - Starfsmannamál 2023
Sveitarstjóri kynnti tillögu að skipuriti Dalabyggðar.
Lagt til að framlagt skipurit taki gildi.

Samþykkt samhljóða.
13.11. 2209011 - Samningur Vegagerðin og Slökkvilið Dalabyggðar v. hreinsun vettvangs
Framlögð drög að samningi á milli Slökkviliðs Dalabyggðar og Vegagaerðarinnar.
Málinu frestað til næsta fundar.
13.12. 2212007 - Umboð vegna kjarasamninga
Framlögð skjöl þar sem Sambandi íslenskra sveitarfélaga er veitt umboð til kjaraviðræðna f.h. Dalabyggðar og Silfurtúns.
13.13. 2211018 - Erindi vegna reksturs Vínlandssetur
Lagt fram bréf frá rekstraraðilum Vínlandsseturs.
Sveitarstjóra og verkefnastjóra falið að útbúa minnisblað.

Samþykkt samhljóða.
13.14. 2301034 - Búfjárhald
Rætt um búfjárhald í Dalabyggð.
Daníel þakkað fyrir komuna og samtalið.
13.15. 2301019 - Fjósar 2023
Rætt um fasteignir Dalabyggðar að Fjósum.
Lagt til að bíða með söluferli en fasteignum verði komið í áframhaldandi nýtingu.

Samþykkt samhljóða.
13.16. 2301052 - Beiðni um afslátt á leigu vegna þorrablóts í Dalabúð
Lagt fram erindi frá þorrablótsnefnd Ólafs Pá.
Lagt til að veita 50% afslátt í samræmi við ákvæði í gjaldskrá.

Samþykkt samhljóða.
13.17. 2301053 - Sælingsdalstunga 2023
Í fjárhagsáætlun ársins 2023 er heimild til þess að setja Sælingsdalstungu í sölumeðferð.
Sveitarstjóra falið að hefja viðræður við fasteignasala og koma eigninni í söluferli.

Samþykkt samhljóða.
13.18. 2204013 - Uppbygging íþróttamannvirkja í Búðardal
Rætt um stöðu mála í ljósi viljayfirlýsingar um samstarf við Eykt ehf. frá 10. október 2022.
Rætt um stöðu mála.
14. 2212001F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 134
Til máls tók: Skúli um dagskrárlið 2.

Samþykkt samhljóða.
14.1. 2301065 - Ljárskógabyggð
Nefndin þakkar erindið og bendir eiganda og hönnuði á að hafa samráð við Breiðafjarðarnefnd, m.t.t. laga um verndun Breiðafjarðar, við Vegagerðina varðandi vegtengingar, Minjastofnun varðandi mögulegar fornminjar og Náttúrufræðistofnun varðandi gróðurfar og dýralíf, áður en lengra er haldið.
14.2. 2112015 - Bakkahvammur, fornminjar
Framlagt tilboð vegna rannsókna á mögulegum fornminjum í Bakkahvammi.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að veita fjármagni í verkefnið.
14.3. 2205021 - Miðbraut 15 Auglýsingaskilti á lóð
Umrætt skilti sem nú er sótt um er allnokkru stærra en núverandi skilti, sem er grundvöllur leyfis sem veitt var í júní 2022 á 127. fundi nefndarinnar. Felur nefndin því sveitarstjóra að kanna hvort umsagnaraðilar, s.s. Vegagerðin, geri athugasemdir við staðsetningu og stærð skiltis, áður en endanleg afgreiðsla fer fram.
14.4. 2211033 - Tilkynning um skógrækt Skógum 137785
Nefndin óskar eftir formlegri umsókn með umsögnum lögbundinna umsagnaraðila.
14.5. 2002053 - Endurskoðun Aðalskipulags Dalabyggðar
Rætt um stöðu mála varðandi endurskoðun aðalskipulags Dalabyggðar 2020 - 2032.
Nefndin óskar eftir því að fá svigrúm til að fjalla á næsta fundi um lokadrög Aðalskipulags Dalabyggðar, eftir lagfæringar sem byggðar voru á athugasemdum og ábendingum sem komu fram eftir að athugasemdafresti lauk formlega.
14.6. 1702012 - Starfsmannamál á skipulagssviði
Skipulagsfulltrúi Dala, Reykhóla og Stranda hefur sagt starfi sínu lausu og lét af störfum þann 31. janúar 2023. Er hér með komið á framfæri þökkum fyrir góð störf til Örwu Alfadhli og henni óskað velfarnaðar í framtíðinni.
Sveitarstjórar samstarfsverkefnisins um skipulags- og byggingarmál Dala, Reykhóla og Stranda hafa fundað um það starfsumhverfi sem um ræðir og ljóst er að mikilvægt er að endurskoða skipulag m.t.t. þess starfsumhverfis sem um ræðir.
Nefndin tekur undir sjónarmið sem fram koma í minnisblaði sveitarstjóra sveitarfélaganna.
15. 2212003F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 117
Samþykkt samhljóða.
15.1. 2301058 - Skóladagatal Auðarskóla 2023 - 2024
Framlögð fyrstu drög að skóladagatali fyrir komandi skólaár.
15.2. 2211021 - Verklagsreglur um starfsemi leikskóla Auðarskóla - uppfærsla fyrir 2023
Við uppfærslu á gjaldskrám haustið 2022 voru ýmsar samþykktir og reglur einnig skoðaðar.
Nefndin fjallar hér um drög að breytingum á verklagsreglum og dvalarsamningi leikskóladeildar Auðarskóla.
Fræðslunefnd samþykkir tillögu að lítið breyttum verklagsreglum og dvalarsamningi leikskóladeildar Auðarskóla sem þarfnast einnig staðfestingar sveitarstjórnar Dalabyggðar.
15.3. 2210027 - Skólastarf Auðarskóli 2022-2023
Rætt um skólastarfið það sem af er vetri og stöðu einstakra mála.
Rætt um kostnaðarskiptingu á milli nemenda og skóla/Dalabyggðar þegar nemendahópar fara í skólabúðir.
Varðandi skólastarfið almennt þá fór skólastjóri yfir það sem er á döfinni í Auðarskóla, bæði í leik og starfi.

Skólastjóri fór yfir tölvukost skólans og þær varnir sem tölvubúnaður skólans inniber. Nauðsynlegt er að fara yfir tækjakostinn og útbúa áætlun varðandi annarsvegar endurnýjun sem og hvernig að vörnum á búnaðnum er háttað.

Varðandi kostnaðarskiptingu á milli nemenda og skóla/Dalabyggðar þegar nemendahópar fara í skólabúðir þá leggur fræðslunefnd til við sveitarstjórn að kostnaðarskipting verði skipt jafnt á milli nemenda og skóla/Dalabyggðar og verði það hið almenna viðmið hvað þennan þátt varðar.
15.4. 2301027 - Skólaakstur í Dalabyggð
Rætt um skólaakstur í Dalabyggð. Núgildandi samningar voru gerðir til þriggja ára með heimild til framlengingar í ett ár í senn tvisvar sinnum. Fyrri framlenging rennur út í lok núverandi skólaárs.
Framlagðar reglur um skólaakstur í Dalabyggð til umræðu.
Fræðslunefnd ræddi um stöðu mála og fór yfir þann fjölda nemenda sem koma með hverri leið.
Fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að nýtt verði heimild til að framlengja núgildandi samning um eitt ár en jafnframt að hugað verði að því sem fyrst að fara að undirbúa útboð fyrir skólaárið 2024-2025.

Fræðslunefnd sér ekki ástæðu til að gera breytingar á núgildandi reglum um skólaakstur.
15.5. 2301063 - Reglur um skólasókn í Auðarskóla
Framlögð tillaga að reglum um skólasókn.
Fræðslunefnd samþykkir tillögu um reglur um skólasókn með áorðnum breytingum og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.
15.6. 2301064 - Reglur um skólavist fósturbarna í Auðarskóla
Framlögð tillaga að reglum um skólavist fósturbarna í leik- og grunnskóla.
Fræðslunefnd samþykkir tillögu um reglur um skólavist fósturbarna í Auðarskóla með áorðnum breytingum og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.
15.7. 2301030 - Skólastefna Dalabyggðar
Farið yfir stöðu vinnu við endurskoðun á Skólastefnu Dalabyggðar.
Formaður fræðslunefndar kynnti þá vinnu sem átt hefur sér stað frá síðasta fundi. Samþykkt að vinna málið áfram á milli funda fræðslunefndar í þeim anda sem verið hefur.
15.8. 2208010 - Tómstundir
Rætt um íþróttir og tómstundir í Dalabyggð en á síðasta fundi fræðslunefndar var samþykkt að kalla til samtals um fyrirkomulag sumarstarfs 2023 fulltrúa UDN, Íþróttafélagsins Undra, Hestamannafélagsins Glaðs, Skátafélagsins Stíganda með fulltrúa Dalabyggðar. Formanni fræðslunefndar og sveitarstjóri funduðu með fulltrúum fyrrgreindra félaga þann 25. janúar s.l. og er næsti fundur fyrirhugaður þann 15. febrúar n.k.
Fræðslunefnd lýsir ánægju með að samtalið sé hafið um sumarstarfið og óskar eftir að fá að fylgjast með þróun mála.
15.9. 2010009 - Framhaldsnám í Dalabyggð
Farið yfir stöðu málsins í kjölfar samþykktar fræðslunefndar á síðasta fundi þar sem samþykkt var að ná samtali við núverandi nemendur á elsta stigi í Auðarskóla og einnig við nemendur sem hafa hafið nám í framhaldsskóla nýverið til þess að átta sig betur á viðhorfum þessa hóps.
Samþykkt að vinna málið áfram og ræða á næsta fundi.
15.10. 2206033 - Jafnréttisáætlun
Drög að uppfærðri jafnréttisáætlun Dalabyggðar lögð fram.
Fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við framlögð drög að jafnréttisáætlun Dalabyggðar.
16. 2301002F - Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns - 66
Til máls tók: Þuríður um fundargerðina í heild, Björn Bjarki um dagskrárlið 2.

Samþykkt samhljóða.
16.1. 2301013 - Rekstur Silfurtúns
Farið yfir stöðu mála á rekstri og starfssemi Silfurtúns á liðnu ári og horfur á árinu 2023.
Nýting á rýmum á árinu 2022 var mjög góð, rúmlega 99,4% á hjúkrunarrýmum og 97,8% á dvalarrýmum. Verður það að teljast mjög viðunandi m.v. þær framkvæmdir sem unnið var að á árinu.
Veikindalaun eru há og skapar skekkju í rekstrinum, vonir standa til að sá þáttur snúist til betri vegar á næstu vikum og mánuðum.
Formaður stjórnar og sveitarstjóri fóru yfir stöðu mála varðandi starf hjúkrunarfræðings á heimilinu og var þeim falið að vinna málin áfram á þeim nótum sem rætt var um á fundinum.
16.2. 2209008 - Úttekt embættis landlæknis
Farið yfir stöðu mála á skýrslu Embættis landlæknir varðandi úttekt á Silfurtúni sem framkvæmd var á haustmánuðum 2022.
Rædd þau drög að skýrslu sem fram eru komin. Ljóst er að viðkomandi skýrsla er vel unnin og í henni er rýnt til gagns. Skýrslan verður gerð opinber á næstu dögum og er stefnt að því að kynna hana starfsfólki Silfurtúns eins fljótt og auðið er.
16.3. 2301032 - Fótaaðgerðarfræðingur
Framlagt erindi varðandi uppsetningu fótaaðgerðarstofu í Silfurtúni.
Stjórn tekur jákvætt í erindið og felur formanni stjórnar og sveitarstjóra að ræða við viðkomandi.
17. 2208008F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 34
Til máls tók: Garðar um dagskrárliði 1, 2, 5, 8 og 9.

Samþykkt samhljóða.
17.1. 2112012 - Leiga á Árbliki
Rekstraraðilar Árbliks mæta á fund nefndarinnar og fara yfir starfsárið 2022 (gestir).
Guðrún Esther og Sigurdís fara yfir reksturinn á síðasta ári, eða frá aprílbyrjun 2022.

Rekstraraðilar eru bjartsýnar fyrir komandi sumri.
Til þess að rekstur geti haldið áfram er þörf á því að fara í endurnýjun á fráveitulögnum á neðri hæð hússins. Einnig þarf að bæta aðgengi að rafmagni á tjaldsvæði.

Nefndin þakkar Guðrúnu og Sigurdísi fyrir komuna.
17.2. 2212003 - Mælingar á farsímasamböndum í Dalabyggð
Mælingar á farsímasamböndum í Dalabyggð framkvæmdar af Fjarskiptastofu í febrúar og maí 2022.
Gerðar voru farsímamælingar og ekið heim að bæjum þannig að mynd fengist af gæðum farsímasambanda hjá símafélögunum.
(gestir)
Þorsteinn hefur verið ráðinn til þess að gera úttekt á stöðu fjarskiptamála á Vesturlandi.
Þorsteinn kemur inn í umræður um farsímamælingar frá 2022 og fer einnig yfir verkefni sitt hjá SSV.

Nefndin þakkar Þorsteini fyrir komuna.
17.3. 2211029 - Eiríksstaðir 2022
Var frestað á síðasta fundi.

Rekstraraðilar Eiríksstaða mæta á fund nefndarinnar og fara yfir starfsárið 2022 (gestir)
Bjarnheiður fer yfir starfsárið 2022 á Eiríksstöðum.

Framkvæmdum sem fengu styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2022 er lokið. Ganga þarf í að laga suðurhlið á tilgátubæ.
Hátíðin Kjet&Klæði var haldin á Eiríksstöðum í maí 2022 og stefnt er að því að halda tilraunfornleifafræðihátíð árið 2023.

Nefndin þakkar Bjarnheiði fyrir yfirferðina.
17.4. 2206033 - Jafnréttisáætlun
Drög að Jafnréttisáætlun Dalabyggðar lögð fyrir fastanefndir.
Í kaflanum þar sem talað er um þjónustuveitingu, þarf að skýra ákvæði varðandi kvaðir félaga betur.
Í textanum stendur: "Öll félög sem þiggja styrki frá sveitarafélaginu setji sér aðgerðabundnar jafnréttisáætlanir þar sem fram kemur hvernig þau uppfylla 10. gr. laga nr. 85/2018 og 15. gr. laga gr. 150/2020 gagnvart félagsmönnum."
Lagt er til að inn í textann komi "...þiggja samningsbundna styrki frá sveitarfélaginu..."
Lagt til að inn komi markmið er varða eldri borgara í Dalabyggð, s.s. að fylgst sé með þeim sem þurfa á heimaþjónustu að halda og hvenær viðkomandi fær þjónustuna, upplýsingar séu kyngreindar og brugðist við ef hallar á eitthvert kyn.
Mótvægisaðgerðir og mælanleg markmið verði hluti af áætluninni út frá hverri greiningu.
Við ráðningar sé horft til þess að efla fjölbreytni í samsetningu starfsmannahópsins.
17.5. 2210026 - Uppbygging innviða
Frá 230. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar:

2. 2210026 - Uppbygging innviða
Til máls tóku: Garðar, Skúli.

Tillaga lögð fram til afgreiðslu:
Með vísan í umræðu á íbúaþingi vorið 2022 þá leggur sveitarstjórn Dalabyggðar til við atvinnumálanefnd sveitarfélagsins að hún hlutist til um að stofnaður verði starfshópur til þess að halda utan um undirbúning á byggingu Iðngarða í Búðardal.
Mikil þörf er til staðar fyrir einyrkja og minni fyrirtæki á svæðinu fyrir bættan húsakost. Ekki hefur verið byggt iðnaðarhúsnæði í Búðardal síðan upp úr árinu 1980, fyrir utan endurbætur og viðbætur við húsnæði MS, og mikilvægt að hugað verði að þessu aðkallandi verkefni af fullri alvöru til eflingar atvinnulífs í Dalabyggð.
Í því ljósi að Dalabyggð er þátttakandi í verkefninu Brothættar byggðir má skoða í því samhengi hvort sækja mætti í opinbera sjóði verkefninu til stuðnings.

Samþykkt samhljóða.
Atvinnumálanefnd leggur til að haldinn verði opinn kynningarfundur á Iðngörðum í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar fyrri hluta febrúar.
Verkefnastjóra falið að vinna áfram að málinu.
17.6. 2301021 - Nýsköpunarsetur Dalabyggðar 2023
Gjaldskrá Nýsköpunarseturs Dalabyggðar lögð fram til skoðunar.
Nefndin gerir ekki ekki athugasemdir við framlagða gjaldskrá.
17.7. 2301014 - Fréttir frá verkefnastjóra 2023
Markaðs- og kynningarstarfsemi fyrir árið 2023 rædd.
Nefndin gerir ekki athugasemd við áætlun um kynningarstarf árið 2023.
17.8. 2210006 - Stafræn húsnæðisáætlun
Drög að húsnæðisáætlun Dalabyggðar tekin til umræðu ásamt því að verklag er skoðað eftir breytingar á reglugerð sem tók gildi í árslok 2022.
Meginefni reglugerðarinnar eftir breytingar eru:
- Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga skulu framvegis unnar samhliða fjárhagsáætlun
- Húsnæðisáætlunum skal skila til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar 20. janúar ár hvert í stað 1. mars frá og með árinu 2024
- Húsnæðisáætlanir verða á stafrænu formi og því samanburðarhæfar á milli sveitarfélaga
- Húsnæðisáætlanir skulu gerðar til tíu ára í senn og uppfærðar einu sinni á ári
- Sveitarstjórn skal samþykkja húsnæðisáætlun sveitarfélags

Áætlunin var á dagskrá 230. fundar sveitarstjórnar en var frestað og er hér lögð fyrir atvinnumálanefnd.

Húsnæðisáætlun er unnin í stafrænu umhverfi og því eru drög að áætlun ekki með sem fylgiskjal í fundargerð, aðeins áætlun 2022.
Verkefnastjóra og umsjónarmanni framkvæmda falið að vinna áfram að málinu.
17.9. 2208005 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2022
Lagðar eru fram atvinnuleysistölur ársins 2022 í Dalabyggð.
Tölur fyrir janúar 2023 birtast ekki fyrr en í febrúar.
Lagt fram til kynningar.
18. 2208011F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 29
Til máls tók: Einar um dagskrárlið 4.

Samþykkt samhljóða.
18.1. 2206033 - Jafnréttisáætlun
Drög að Jafnréttisáætlun Dalabyggðar lögð fyrir fastanefndir.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við drög að Jafnréttisáætlun Dalabyggðar.
18.2. 2212005 - Stofnun Safnaklasa Vesturlands
Klasi safna, sýninga og setra á Vesturlandi er hugsaður sem samstarfsvettvangur viðurkenndra safna á Vesturlandi og sjálfstæðra sýninga og setra starfandi í landshlutanum.
Óskað er eftir því að sveitarfélagið sendi svar til menningarfulltrúa SSV um hvort að söfn í eigu og rekstri sveitarfélagsins verði hluti af umræddum klasa.
Nefndin gerir tillögu til sveitarstjórnar Dalabyggðar um að sveitarfélagið verði hluti af Safnaklasa Vesturlands í samræmi við meðfylgjandi gögn.
18.3. 2301029 - Menningarmálaverkefnasjóður 2023
Farið yfir innsendar umsóknir í Menningarmálaverkefnasjóð Dalabyggðar. Opið var fyrir umsóknir frá 2. desember 2022 til og með 14. janúar 2023.
Í sjóðinn bárust 12 umsóknir að upphæð 2.290.000 kr.- til úthlutunar voru 1.000.000 kr.-

7 verkefni hljóta styrk að þessu sinni:

Sigurbjörg Kristínardóttir - Kórstarf - 200000kr.-
Alexandra Rut Jónsdóttir - Tónleikahald - 200000kr.-
Slysavarnadeild Dalasýslu - Skemmtikvöld - 200000kr.-
Sælureiturinn Árblik - Jólaball - 40000kr.-
Sigrún Hanna Sigurðardóttir - Sýning, hlaðvarp - 200000kr.-
Iceland up close ehf - Vinnusmiðja - 100000kr.-
Ungmennafélagið Ólafur Pá - Þrautabraut - 60000kr.-

Nefndin þakkar fyrir umsóknir og áhuga á sjóðnum.
18.4. 2209004 - Jörvagleði 2023
Farið yfir dagskrá Jörvagleði 2023.
Nefndin heldur áfram að vinna að dagskrá.
Búið er að senda út á félög og fyrirtæki í heimabyggð varðandi mögulega þátttöku.
18.5. 2301014 - Fréttir frá verkefnastjóra 2023
Farið yfir markaðsmál 2023 er snúa að menningarmálum.
Rætt um uppfærslu söguskilta og merkingu eyðibýla.
Skoðað meðfram markaðsmálum og uppfærslu skilta 2023.
Fundargerðir til kynningar
19. 2301002 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2023
Lagt fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 917.pdf
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 918.pdf
20. 2201008 - Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2022
Lagt fram til kynningar.
Fundur-210.pdf
21. 2301005 - Fundargerðir Fjárfestingafélagið Hvammur ehf. 2023
Lagt fram til kynningar.
Fjárfestingafélagið Hvammur ehf 30_01_2023.pdf
Mál til kynningar
22. 2301056 - Landsþing sambandsins XXXVIII
Lagt fram til kynningar.
Boðun XXXVIII. landsþings sambandsins.pdf
23. 2301020 - Skýrsla frá sveitarstjóra 2023-
Til máls tók: Björn Bjarki.

Lagt fram til kynningar.
Skýrsla sveitarstjóra á fundi 231.pdf
Næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar verður fimmtudaginn 9. mars n.k.

Fundargerð yfirfarin, prentuð og undirrituð.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta