| |
1. 2007007 - Uppfærsla samnings við Leikklúbb Laxdæla | |
Nefndin leggur til eftirfarandi breyingar á drögum að samning: Leikklúbbur sjái um ræstingar eftir sýningar og aðra viðburði á þeirra vegum. 4. punktur í 2. gr. verði breytt "Dalabyggð sér um ræstingu hússins að öðru leyti". Leikklúbbur skili skýrslu um störf sín á fundi menningarmálanefndar á hverju vori. Nefndin óskar eftir að skýrt sé hvort ákvæði um selda miða á viðburði í Dalabúð gildi fyrir sýningar leikklúbbsins. Nefndin hvetur Leikklúbb Laxdæla til að standa að uppsetningu sýninga á næstu misserum sem dæmi má nefna að Jörvagleðin 2021 nálgast óðfluga.
| | |
|
2. 2005008 - Fjárhagsáætlun 2021 - 2024 | |
Nefndin fer yfir málaflokka sem heyra undir nefndina. | | |
|
3. 1912011 - Byggðasafn Dalamanna - Staðarfell | |
Nefndin fagnar ákvörðun sveitarstjórnar um að byggðarráð skuli hefja viðræður við ríkið um að Byggðasafn Dalamanna verði staðsett á Staðarfelli og hvetur byggðarráð áfram í verkefninu. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að skipuð verði verkefnastjórn til að vinna að framtíðarskipulagi og uppbyggingu starfseminnar á Staðarfelli. Tryggja þarf fjármagn í fjárhagsáætlun til verkefnisins. | Sveitarstjórn Dalabyggðar - 195 (10.9.2020) - Byggðasafn Dalamanna - Staðarfell.pdf | | |
|
4. 2009003 - Jörvagleði 2021 | |
Nefndin leggur til að skoða m.a. vísindakennslu háskólans, verkefnið "Kvöldstund með listamanni", leikrit hjá Leikklúbbi Laxdæla, leikrit ungmenna, tónlistarmenn, listamenn, ljósmyndasýningar, þátttöku ferðaþjóna, opin hús, opið á sögustöðum í Dölum.
Þegar að Jörvagleði verður haldin 2023 verður 130 ára fæðingarafmæli Ásmundar Sveinssonar. | | |
|
5. 2009004 - Menningarmálaverkefnasjóður | |
Lagt er til að stofnaður verði sjóður þar sem menningarmálanefnd getur fengið umsóknir um styrki og úthlutað til menningarmálaverkefna í Dalabyggð. Sveitarstjórn tryggi sjóðnum fjármagn á fjárhagsáætlun, í fyrsta sinn 2021. Nefndin leggur til að samdar verði reglur um hlutverk sjóðsins og úthlutun úr honum. Verkefnastjóra falið að vinna áfram. | | |
|
6. 2001047 - Fréttir frá Verkefnastjóra | |
Nefndin þakkar fyrir vel heppnaða hátíð. | | |
|
| |
7. 2009015 - Aukin nýting félagsheimila á Vesturlandi | |
Lagt fram til kynningar. Nefndin leggur það til við sveitarstjórn að hugað verði að fjölþættari nýtingu félagsheimila í Dalabyggð. | | |
|