| |
1. 2302006 - Félagslegar íbúðir | |
Félagsmálnefnd leggur til að Sunnubraut 1 verði seld í því ásigkomulagi sem íbúðin er í núna.
Að höfðu samráði við endurskoðendur Dalabyggðar leggur félagsmálanefnd til að Stekkjarhvammur 5 og Stekkjarhvammur 7 verði færðar úr félagslega kerfinu yfir í almennt eignasafn Dalabyggðar og Gunnarsbraut 11 a og Gunnarsbraut 11b verði færðar undan rekstri Silfurtúns og yfir í félagslega kerfið. | Minnisblað félagslegar íbúðir 13.02.2023.pdf | | |
|
2. 2206033 - Jafnréttisáætlun | |
Félagsmálanefnd samþykkir að vinna drögin áfram fram að næsta fundi í samræmi við umræður á fundinum og ábendingar annarra nefnda. Aðal- og varamenn í félagsmálanefnd fái aðgang að vinnunni núna næstu vikur. | | |
|
3. 2211015 - Samstarf um félagsþjónustu | |
Sveitarstjóri fór yfir stöðu viðræðna við nágrannasveitarfélög varðandi samstarf í málaflokknum. | | |
|
4. 2211014 - Samningur við Samskiptamiðstöðina | |
Staða mála rædd. | | |
|
5. 2301064 - Reglur um skólavist fósturbarna í Auðarskóla | |
Félagsmálanefnd fagnar því að komið sé á formlegt verklag. | | |
|