| |
1. 2101030 - Auðarskóli - skólastarf 2020 - 2021 | Skólastarf gengur með hefðbundnum hætti miðað við ástandið. Samræmd próf búin með góðri þátttöku. Verið að horfa til hvort hægt sé að komast í hefðbundna viðburði framundan t.d. tónleikar tónlistarskólans og vorhátíð. Stefnt er á skólaslit 3. júní. | | |
|
2. 2104022 - Fjárhagsáætlun 2022 og 2023-2025 | |
Horfa þarf til framhaldsskóladeildar við gerð fjárhagsáætlunar. Að öðru leiti vísar fræðslunefnd til þeirra áherslna sem eru í skólastefnunni. | | |
|
3. 2010009 - Kannanir - framhaldsskóladeild og námsaðstaða | Skiptar skoðanir voru innan ungmennaráðs og áhyggjur af félagslífinu. Þarf að búa til okkar skólaumhverfi og -brag.
Fræðslunefnd leggur áherslu á að ungmennaráði sé haldið upplýstu um framgang málsins og vísar því til umfjöllunar á sveitarstjórnarfundi unga fólksins 10. júní. Samþykkt samhljóða.
Fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að gengið verði til formlegra viðræðna við Framhaldsskóla Snæfellinga um stofnun og rekstur framhaldsskóladeildar í Dalabyggð. Samþykkt með þremur atkvæðum (SHS, JHS, PJ), tveir (JEJ, HSG) sitja hjá. | Framhaldsskólamálið - frá ungmennaráði.pdf | Formlegar_vidraedur_framhaldsskoladeild_tillaga.pdf | | Jóhanna María Sigmundsdóttir verkefnastjóri sat fundinn undir dagskrárlið 3. Soffía Meldal fulltrúi í ungmennaráði sat einnig fundinn undir fyrri hluta umræðu um dagskrárlið 3.
| |
|
4. 2104011 - Erindi vegna skólaaksturs á Fellsströnd - leikskólabörn | |
Vilji er til að breyta reglum þannig að öll leikskólabörn komist að í skólabíl. Einnig þarf að gera ráð fyrir að framhaldsskólanemar geti fengið sæti í skólabíl verði af stofnun framhaldsskóladeildar.
Formanni fræðslunefndar, sveitarstjóra og skólastjóra falið að gera tillögu að endurskoðuðum reglum. Samþykkt samhljóða. | Reglur um skólaakstur.pdf | Útboðslýsing Skólaakstur í Dalabyggð V20982-1 (1).pdf | | |
|
5. 2104012 - Skólaakstur á Fellsströnd - leikskólabörn | |
Sjá afgreiðslu máls nr. 2104011, dagskrárliður 5. | | |
|
6. 2103048 - Aðgengi að tónlistarnámi | |
Fræðslunefnd hvetur til þess að unnið sé áfram að þessari hugmynd. Samþykkt samhljóða. | | |
|