Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 352

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
07.07.2026 og hófst hann kl. 14:15
Fundinn sátu: Guðlaug Kristinsdóttir formaður,
Ingveldur Guðmundsdóttir aðalmaður,
Sindri Geir Sigurðarson aðalmaður,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri, Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir, Sveitarstjóri
Máli nr. 2602034 - Styrkvegir 2026 verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 11.
Máli nr. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 12.
Máli nr. 2607004 - Fundartími byggðarráðs og kosning varaformanns verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 13.
Lagt til að fundargerðum 2606009F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 50 og 2606005F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 58 verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliðir 17 og 18.

Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2606032 - Ráðning skólastjóra
Lagður fram ráðningarsamningur við Katrínu Kristjánsdóttur um stöðu skólastjóra við Auðarskóla.
Byggðarráð staðfestir ráðningu og ráðningarsamning við Katrínu Kristjánsdóttur í starf skólastjóra Auðarskóla.

Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samþykkt samhljóða
2. 2601012 - Auðarskóli, málefni Tónlistarskóla 2026
Rætt um gamla flygilinn í ljósi þess að nýr er kominn.
Byggðarráð fagnar því að tekinn hafi verið í notkun glæsilegur nýr flygill og þakkar öllum sem áttu þátt í söfnun fyrir hljóðfærinu fyrir þeirra framlag. Taka þarf ákvörðun um hvernig ráðstöfun á eldri flygli verður háttað til framtíðar og í því skyni mun byggðarráð taka samtal við stjórnendur Auðarskóla.
3. 2606021 - Umsókn um lóð Lækjarhvammur 24
Lögð fram umsókn Guðbrandar Jóns Jónssonar og Hafdísar Ingu Melsted Ásgeirsdóttur um lóðina Lækjahvamm 24.

Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Lækjarhvammur 24 til Guðbrandar Jóns Jónssonar og Hafdísar Ingu Melsted Ásgeirsdóttur.

Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samþykkt samhljóða

4. 2606001 - Reglur um auglýsingar í íþróttamannvirkjum
Afgreiðsla frá fundi fræðslunefndar Dalabyggðar nr. 152:Lögð fram drög að reglum um auglýsingar á skjám í íþróttamiðstöð
Fræðslunefnd samþykkir framlögð drög að uppfærðum reglum og vísar málinu til sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða"

Byggðarráð samþykkir uppfærðar reglur um auglýsingar á skjám í íþróttamiðstöð og felur sveitarstjóra að birta reglurnar.

Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samþykkt samhljóða
5. 2506014 - Samkomulag um þjónusutu við börn með fjölþættan vanda
Ríkið hefur einhliða breytt reglugerð um börn með fjölþættar stuðningsþarfir sem er ekki í samræmi við samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025.
Með reglugerðinni er skilgreining hópsins sem um ræðir einhliða þrengd af ráðuneytinu. Fjöldi barna sem áður voru metin af sérfræðingum með fjölþættar stuðningsþarfir falla nú utan skilgreiningarinnar nú þegar ríkið hefur tekið yfir ábyrgðina.

"Afgreiðsla félagsmálanefndar Dalabyggðar nr 79: "Félagsmálanefnd Dalabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.

Félagsmálanefnd telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.

Sveitartjóra falið að koma áskorun á framfæri og málinu vísað til byggðarráðs Dalabyggðar til upplýsinga.

Samþykkt samhljóða"

Byggðarráð tekur undir bókun félagsmálanefndar og ítrekar mikilvægi þess að Samband íslenskra sveitarfélaga beiti sér áfram í málinu en um er að ræða mikið hagsmunamál sem getur haft töluverð áhrif á afkomu sveitarfélaga.

Samþykkt samhljóða
6. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu
Afgreiðsla frá fundi fræðslunefndar Dalabyggðar frá fundi nr. 152:"Með síðar breytingum á barnaverndarlögum hefur verið lögð aukin áhersla á samstarf sveitarfélaga og stuðlað að því að þjónustueiningar væru nægilega stórar til að tryggja faglega og skilvirka meðferð mála. Í framkvæmd hefur þetta m.a. birst í því viðmiði að hver barnaverndarþjónusta þjóni að jafnaði að minnsta kosti 6.000 íbúum til að uppfylla kröfur um fagmennsku og stöðugleika í þjónustu. Síðustu mánuði hefur verið í gangi samtal á milli Dalabyggðar og fulltrúa Barnaverndarþjónustu Vesturlands, sem er samstarf á milli sveitarfélaga á Vesturlandi um rekstur barnaverndarþjónustu á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Fræðslunefnd Dalabyggðar leggur til við sveitarstjórn að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands um mögulegt samstarf um rekstur barnaverndarþjónustu, með það að markmiði að efla faglega þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að hún uppfylli þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt gildandi lögum og viðmiðum.

Málinu vísað til sveitarstjórnar

Samþykkt samhljóða"

Byggðarráð felur sveitarstjóra að hefja formlegt samtal um samstarf við Barnaverndarþjónustu Vesturlands vegna samstarfs um rekstur barnaverndarþjónustu.

Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samþykkt samhljóða

7. 2606016 - Deiliskipulag Iðjubrautar - óveruleg breyting 2026
Afgreiðsla frá fundi umhverfis og skipulagsnefndar nr. 165:"Tillagan víkur ekki verulega frá skilmálum gildandi deiliskipulags hvað varðar notkun, byggingarmagn og yfirbragð og fellur undir málsmeðferð um óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga. Samþykkt samhljóða"
Byggðarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.

Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samþykkt samhljóða
8. 2603013 - Haukabrekka, lóð C, óveruleg deiliskipulagsbreyting
Afgreiðsla frá fundi umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 165: " Erindi dags. 9. mars 2026, tillaga að óverulegri breytingu sem varðar tilfærslu á byggingareit inna lóða C, til afgreiðslu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Lögð fram breytingartillaga dags. 5. Mars 2026 (Gláma-Kím).
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða"

Byggðarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.

Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samþykkt samhljóða
9. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 165: "Lagt fram deiliskipulag Tungu á Skógarströnd, uppfært með tilliti til athugasemda frá HMS.
Tillagan hefur verið lagfærð og skilmálar heimila nú aðeins eitt frístundahús á hverjum byggingarreit í samræmi við aðalskipulag, bætt var við umfjöllun um umhverfisáhrif og framsetning gagna lagfærð sbr. afgreiðslu HMS 5. mars 2026.


Samþykkt samhljóða"

Byggðarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.

Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samþykkt samhljóða
10. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal 20242025
Viðauki við verksamning við Eykt vegna byggingu íþróttamiðstöðvar lagður fram. Um er að ræða lið í lokauppgjöri vegna framkvæmdarinnar.
Byggðaráð samþykkir framlagðan viðauka við verksamning á milli sveitarfélagsins og Eyktar vegna byggingu Íþróttamiðstöðvar. Umræddir verkliðir rúmast innan fjárheimilda ársins.

Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samþykkt samhljóða
Viðar Þór Ólafsson, verkstjóri áhaldahúss kemur á fundinn undir dagskrárlið 11.
11. 2602034 - Styrkvegir 2026
Lagt fram yfirlit um úthlutun fjármagns til styrkvega í Dalabyggð fyrir árið 2026.


Viðar fer yfir tillögu að skiptingu styrkvegafés. Kr. 4.000.000 fengust í styrkvegi 2026.
12. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026
Á grundvelli ákvörðunar sveitarstjórnar Dalabyggðar í máli nr. 2311021 frá fundi sveitarstjórnar nr. 270 er lagt að gerðar verði breytingar á samþykktum Dalabyggðar í því skyni að endurskipuleggja nefndaskipan sveitarfélagsins með því að sameina annars vegar fræðslunefnd og félagsmálanefnd í eina og hins vegar atvinnumálanefnd og menningarmálanefnd í eina nefnd.

Afgreiðsla fræðslunefndar frá fundi nr. 152:" Fræðslunefnd telur mikilvægt að hafin verði vinna við breytingar á samþykktum um stjórn Dalabyggðar í samræmi við framangreint. Með slíkri breytingu er leitast við að efla heildarsýn og samþættingu í skyldum málaflokkum, þar sem verkefni skarast í auknum mæli í framkvæmd. Breytingunni er ætlað að einfalda stjórnsýslu, draga úr tvíverknaði og bæta yfirsýn, sem stuðlar að skilvirkari ákvarðanatöku og hagkvæmari rekstri.

Málinu vísað til sveitarstjórnar til fyrri umræðu.

Samþykkt samhljóða"

Afgreiðsla félagsmálanefndar frá fundi nr.79:" félagsmálanefnd telur mikilvægt að hafin verði vinna við breytingar á samþykktum um stjórn Dalabyggðar í samræmi við framangreint. Með slíkri breytingu er leitast við að efla heildarsýn og samþættingu í skyldum málaflokkum, þar sem verkefni skarast í auknum mæli í framkvæmd. Breytingunni er ætlað að einfalda stjórnsýslu, draga úr tvíverknaði og bæta yfirsýn, sem stuðlar að skilvirkari ákvarðanatöku og hagkvæmari rekstri.

Málinu vísað til sveitarstjórnar til fyrri umræðu.

Samþykkt samhljóða"

Breytingar á samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar vegna sameiningar á nefndum teknar til fyrri umræðu.

Sveitarstjóra falið að uppfæra samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar til samræmis við umræður á fundi og samþykktunum vísað til síðari umræðu í sveitarstjórn.


Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samþykkt samhljóða
Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar.pdf
13. 2607004 - Fundartími byggðarráðs og kosning varaformanns
Lagt til að fundartími byggðarráðs Dalabyggðar verði fjórða fimmtudag í mánuði kl. 13:00.

Lagt til að varaformaður byggðarráðs verði Ingveldur Guðmundsdóttir

Byggðarráð staðfestir að fundir byggðarráðs skuli fara fram fjórða fimmtudag í mánuði kl. 13:00 og að varaformaður byggðarráðs til eins árs verði Ingveldur Guðmundsdóttir.

Samþykkt samhljóða
Fundargerðir til kynningar
14. 2606003F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 165
Fundargerð framlögð
14.1. 2606014 - Skipun varaformanns og ritara 2026 - 2030
Kosning varaformanns og ritara umhverfis- og skipulagsnefndar 2026 - 2030

Lagt er til að Valdís Gunnarsdóttir verði varaformaður umhverfis- og skipulagsnefndar
Lagt er til að Bjarnheiður Jóhannsdóttir verði ritari umhverfis- og skipulagsnefndar

Samþykkt samhljóða
14.2. 2604002 - Umsókn um byggingarleyfi við Ásuhvamm 1a
Umsókn um byggingarleyfi á lokahúsi Rarik var samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar 12. maí 2026. Umsóknin var grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010 fyrir íbúum Brekkuhvamms 12, sbr. tölvupóst dags. 8. maí 2026. Brugðist hefur verið við athugasemdum Vegagerðarinnar og byggingarfulltrúa falið að afgreiða umsóknina.

Samþykkt samhljóða
14.3. 2606015 - Fundartími Umhverfis- skipulagsnefndar 2026-2030
Lagt til að fastir fundartímar Umhverfis - og skipulagsnefndar fari fram í fyrstu viku hvers mánaðar. (velja vikudag)
Umhverfis- og skipulagsnefnd ákveður að fundir nefndarinnar skulu fara fram 1. miðvikudag hvers mánaðar kl. 16:00.


Samþykkt samhljóða
14.4. 2606002 - Endurnýjun lóðarleigusamnings
Byggðarráð vísar málinu til Umhverfis- og skipulagsnefndar.
Farið yfir stöðu málsins og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram á grundvelli gildandi deiliskipulags.


Samþykkt samhljóða
14.5. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd
Lagt fram deiliskipulag Tungu á Skógarströnd, uppfært með tilliti til athugasemda frá HMS.
Tillagan hefur verið lagfærð og skilmálar heimila nú aðeins eitt frístundahús á hverjum byggingarreit í samræmi við aðalskipulag, bætt var við umfjöllun um umhverfisáhrif og framsetning gagna lagfærð sbr. afgreiðslu HMS 5. mars 2026.


Samþykkt samhljóða
14.6. 2606016 - Deiliskipulag Iðjubrautar - óveruleg breyting 2026
Lögð fyrir breytingartillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir iðnararsvæðið við Iðjubraut. Um er að ræða breytta og aðlagaða lóðaskipan vegna umsókna um lóðir.


Tillagan víkur ekki verulega frá skilmálum gildandi deiliskipulags hvað varðar notkun, byggingarmagn og yfirbragð og fellur undir málsmeðferð um óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.


Samþykkt samhljóða
14.7. 2603013 - Haukabrekka, lóð C, óveruleg deiliskipulagsbreyting
Erindi dags. 9. mars 2026, tillaga að óverulegri breytingu sem varðar tilfærslu á byggingareit inna lóða C, til afgreiðslu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Lögð fram breytingartillaga dags. 5. Mars 2026 (Gláma-Kím).
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.

Samþykkt samhljóða
14.8. 2606018 - Umsókn um byggingarleyfi að Haukabrekku C, frístundahús og bílskúr
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að Haukabrekku C, frístundahús og bílskúr
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að byggingarfulltrúi vinni málið áfram.
15. 2606006F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 152
Fundargerð framlögð
15.1. 2606025 - Skipun varaformanns og ritara
Lagt er til að varaformaður fræðslunefndar verði Ingibjörg Þóranna Steinudóttir.

Lagt er til að ritari fræðslunefndar verði sveitarstjóri.


Samþykkt samhljóða
15.2. 2606026 - Fundartími fræðslunefndar
Lagt er til að reglulegir fundir fræðslunefndar fari fram síðasta þriðjudag hvers mánaðr kl. 13.30.

Sveitarstjóra falið að hafa samband við skólastjórnendur og foreldrarfélag til að tryggja kjör á áheyrnarfulltrúum.
Samþykkt samhljóða
15.3. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu
Með síðar breytingum á barnaverndarlögum hefur verið lögð aukin áhersla á samstarf sveitarfélaga og stuðlað að því að þjónustueiningar væru nægilega stórar til að tryggja faglega og skilvirka meðferð mála. Í framkvæmd hefur þetta m.a. birst í því viðmiði að hver barnaverndarþjónusta þjóni að jafnaði að minnsta kosti 6.000 íbúum til að uppfylla kröfur um fagmennsku og stöðugleika í þjónustu. Síðustu mánuði hefur verið í gangi samtal á milli Dalabyggðar og fulltrúa Barnaverndarþjónustu Vesturlands, sem er samstarf á milli sveitarfélaga á Vesturlandi um rekstur barnaverndarþjónustu á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Fræðslunefnd Dalabyggðar leggur til við sveitarstjórn að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands um mögulegt samstarf um rekstur barnaverndarþjónustu, með það að markmiði að efla faglega þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að hún uppfylli þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt gildandi lögum og viðmiðum.

Málinu vísað til sveitarstjórnar

Samþykkt samhljóða
15.4. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026
Á grundvelli ákvörðunar sveitarstjórnar Dalabyggðar í máli nr. 2311021 frá fundi sveitarstjórnar nr. 270 er lagt að gerðar verði breytingar á samþykktum Dalabyggðar í því skyni að endurskipuleggja nefndaskipan sveitarfélagsins með því að sameina annars vegar fræðslunefnd og félagsmálanefnd í eina og hins vegar atvinnumálanefnd og menningarmálanefnd í eina nefnd.
Fræðslunefnd telur mikilvægt að hafin verði vinna við breytingar á samþykktum um stjórn Dalabyggðar í samræmi við framangreint. Með slíkri breytingu er leitast við að efla heildarsýn og samþættingu í skyldum málaflokkum, þar sem verkefni skarast í auknum mæli í framkvæmd. Breytingunni er ætlað að einfalda stjórnsýslu, draga úr tvíverknaði og bæta yfirsýn, sem stuðlar að skilvirkari ákvarðanatöku og hagkvæmari rekstri.

Málinu vísað til sveitarstjórnar til fyrri umræðu.

Samþykkt samhljóða
15.5. 2606001 - Reglur um auglýsingar í íþróttamannvirkjum
Lögð fram drög að reglum um auglýsingar á skjám í íþróttamiðstöð
Fræðslunefnd samþykkir framlögð drög að uppfærðum reglum og vísar málinu til sveitarstjórnar.


Samþykkt samhljóða

15.6. 2606017 - Reglur um styrki til tónlistanáms utan Dalabyggðar
Lagðar fram reglur um styrki til tónlistarnáns utan Dalabyggðar.
Fræðslunefnd felur sveitarstjóra að endurskoða reglur til samræmis við umræður á fundi og leggja aftur fyrir fræðslunefnd.

Samþykkt samhljóða
15.7. 2606032 - Ráðning skólastjóra
Katrín Kristjánsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Auðarskóla frá og með 1. ágúst nk., með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.

Guðrún Halldórsdóttir starfandi skólastjóri sat fundinn undir þessum lið.
Fræðslunefnd fagnar ráðningu Katrínar Kristjánsdóttur í starf skólastjóra Auðarskóla og telur hana vel til starfans fallna í ljósi reynslu og þekkingar á skólastarfinu. Nefndin óskar Katrínu velfarnaðar í starfi.
15.8. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026
Farið yfir ýmis málefni tengt rekstri Auðarskóla.


Guðrún Halldórsdóttir sitjandi skólastjóri sat fundinn undir þessum lið
Starfandi skólastjóri fór yfir skólastarf síðasta vetrar og þau verkefni sem eru framundan áður en kennsla hefst í haust. Ljóst er að endurnýja þarf búnað í grunnskóladeild m.a. borð og stóla í kennslustofur, kaupa sófasett og vinna ákveðna þarfagreiningu á húsbúnaði og nýtingu rýma.

Fræðslunefnd leggur áherslu á að unnin verði þarfagreining í grunnskóladeild í samráði við skólastjóra í haust þar sem m.a verður farið yfir búnaðarþörf og aðbúnað. Að horft verði til þeirrar vinnu við fjáhagsáætlunargerð í haust.

16. 2606007F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 79
Fundargerð framlögð
16.1. 2606022 - Skipun varaformanns og ritara
Lagt er til að varaformaður félagsmálanefndar verði Ingibjörg Þóranna Steinudóttir.

Lagt er til að ritari félagsmálanefndar verði sveitarstjóri
Samþykkt samhljóða
16.2. 2606023 - Fundartími félagsmálanefndar
Lagt er til að reglulegir fundir fræðslunefndar fari fram síðasta þriðjudag í mánuði kl. 13:30.


Samþykkt samhljóða
16.3. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026
Á grundvelli ákvörðunar sveitarstjórnar Dalabyggðar í máli nr. 2311021 frá fundi sveitarstjórnar nr. 270 er lagt að gerðar verði breytingar á samþykktum Dalabyggðar í því skyni að endurskipuleggja nefndaskipan sveitarfélagsins með því að sameina annars vegar fræðslunefnd og félagsmálanefnd í eina og hins vegar atvinnumálanefnd og menningarmálanefnd í eina nefnd.
félagsmálanefnd telur mikilvægt að hafin verði vinna við breytingar á samþykktum um stjórn Dalabyggðar í samræmi við framangreint. Með slíkri breytingu er leitast við að efla heildarsýn og samþættingu í skyldum málaflokkum, þar sem verkefni skarast í auknum mæli í framkvæmd. Breytingunni er ætlað að einfalda stjórnsýslu, draga úr tvíverknaði og bæta yfirsýn, sem stuðlar að skilvirkari ákvarðanatöku og hagkvæmari rekstri.

Málinu vísað til sveitarstjórnar til fyrri umræðu.

Samþykkt samhljóða
16.4. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu
Með síðar breytingum á barnaverndarlögum hefur verið lögð aukin áhersla á samstarf sveitarfélaga og stuðlað að því að þjónustueiningar væru nægilega stórar til að tryggja faglega og skilvirka meðferð mála. Í framkvæmd hefur þetta m.a. birst í því viðmiði að hver barnaverndarþjónusta þjóni að jafnaði að minnsta kosti 6.000 íbúum til að uppfylla kröfur um fagmennsku og stöðugleika í þjónustu. Síðustu mánuði hefur verið í gangi samtal á milli Dalabyggðar og fulltrúa Barnaverndarþjónustu Vesturlands, sem er samstarf á milli sveitarfélaga á Vesturlandi um rekstur barnaverndarþjónustu á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Félagsmálanefnd Dalabyggðar leggur til að við sveitarstjórn að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands um mögulegt samstarf um rekstur barnaverndarþjónustu, með það að markmiði að efla faglega þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að hún uppfylli þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt gildandi lögum og viðmiðum.

Málinu vísað til sveitarstjórnar

Samþykkt samhljóða
16.5. 2606028 - Erindi til nýkjörinna sveitarstjórna landsins
Lagt fram erindi frá Landssambandi eldri borgara dags. júní 2026. Landsamband eldri borgar hvetur sveitarstjórnir til að leggja áherlsu á öflugt starf öldungaráðs þegar frá upphafi kjörtímabils og lýsir sig reiðubúið til frekara samstals og samstarfs um þessi málefni.
Félagsmálanefnd tekur jákvætt í erindið og undirstrikar mikilvægi virks og öflugs öldungaráðs sem vettvangs samráðs og ráðgjafar í málefnum eldri borgara. Nefndin felur sveitarstjóra að hafa hliðsjón af erindinu í áframhaldandi vinnu.

Samþykkt samhljóða
16.6. 2506014 - Upplýsinga fundur um Samkomulag um þjónusutu við börn með fjölþættan vanda
Lagður fram tölvupóstur frá félagsþjónustufulltrúa Sambandsins dags. 23. júní 2026. Vakin er athygli sveitarfélaga á að í nýrri reglugerð um þjónustu við börn með fjölþættan vanda hafi ríkið einhliða endurskilgreint og þrengt viðmið sem samkomulag hafði verið gert um. Þetta muni fela í sér verulegan kostnað fyrir sveitarfélög landsins.
Félagsmálanefnd Dalabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.

Félagsmálanefnd telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.

Sveitartjóra falið að koma áskorun á framfæri og málinu vísað til byggðarráðs Dalabyggðar til upplýsinga.

Samþykkt samhljóða
17. 2606009F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 50
Fundargerð framlögð
18. 2606005F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 58
Fundargerð framlögð
18.1. 2606030 - Kosning varaformanns og ritara
Nefndin kýs varaformann og ritara.
Fram kom tillaga um Jón Egil Jóhannsson sem varaformann og Lindu Guðmundsdóttur sem ritara nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.
18.2. 2606029 - Stefna atvinnumálanefndar 2026 - 2030
Nefndin ræðir stefnu og áherslur.
Áherslur ræddar, tengsl og stuðning við atvinnulífið, óstaðbundin störf og komandi uppfærslu á innviðaskýrslu, sem stoðtæki við atvinnulífið. Einnig rætt um húsnæðismál bæði fyrir fólk og fyrirtæki.

Sérstaklega var talað um landbúnað og umhverfi hans, nýliðun, stuðning og lagaumhverfi. Einnig aðeins um verslun sem þjónar atvinnurekstri í Dölunum.
18.3. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026
Rætt um stöðu mála vegna almyrkva 12. ágúst 2026

Búið er að senda út dreifibréf á öll heimili í Dalabyggð þar sem farið er yfir atburðinn og aðstæður. M.a. þarf að horfa til umferðarstýringar, umferðarþunga í héraðinu og fjölda gesta.
Nefndin fagnar frumkvæði sveitafélagsins og hvetur íbúa og fyrirtæki til að vera vel byrg og undirbúin undir álag og umferð.
18.4. 2606019 - Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi
Innviðaráðuneytið undirbýr gerð grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Með forsamráði er óskað eftir sjónarmiðum um hvaða viðfangsefni, álitaefni, áskoranir og tækifæri grænbókin eigi að fjalla um.
Umsagnarfrestur til og með 21. ágúst 2026.

Nefndin ræðir hvort tilefni sé til að bregðast við með umsögn frá Dalabyggð.
Nefndin hyggst vinna málið áfram.
18.5. 2606020 - Hvítbók um byggðamál
Í hvítbók um byggðamál eru kynnt drög að stefnumótandi byggðaáætlun til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára.
Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026.

Nefndin ræðir hvort tilefni sé til að bregðast við með umsögn frá Dalabyggð.
Nefndin hyggst vinna málið áfram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00 

Til bakaPrenta