| |
| 1. 2606014 - Skipun varaformanns og ritara 2026 - 2030 | |
| Samþykkt samhljóða | | |
|
| 2. 2604002 - Umsókn um byggingarleyfi við Ásuhvamm 1a | Umsókn um byggingarleyfi á lokahúsi Rarik var samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar 12. maí 2026. Umsóknin var grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010 fyrir íbúum Brekkuhvamms 12, sbr. tölvupóst dags. 8. maí 2026. Brugðist hefur verið við athugasemdum Vegagerðarinnar og byggingarfulltrúa falið að afgreiða umsóknina.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 3. 2606015 - Fundartími Umhverfis- skipulagsnefndar 2026-2030 | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd ákveður að fundir nefndarinnar skulu fara fram 1. miðvikudag hvers mánaðar kl. 16:00.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 4. 2606002 - Endurnýjun lóðarleigusamnings | |
Farið yfir stöðu málsins og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram á grundvelli gildandi deiliskipulags.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 5. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd | |
Tillagan hefur verið lagfærð og skilmálar heimila nú aðeins eitt frístundahús á hverjum byggingarreit í samræmi við aðalskipulag, bætt var við umfjöllun um umhverfisáhrif og framsetning gagna lagfærð sbr. afgreiðslu HMS 5. mars 2026.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 6. 2606016 - Deiliskipulag Iðjubrautar - óveruleg breyting 2026 | |
Tillagan víkur ekki verulega frá skilmálum gildandi deiliskipulags hvað varðar notkun, byggingarmagn og yfirbragð og fellur undir málsmeðferð um óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 7. 2603013 - Haukabrekka, lóð C, óveruleg deiliskipulagsbreyting | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 8. 2606018 - Umsókn um byggingarleyfi að Haukabrekku C, frístundahús og bílskúr | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að byggingarfulltrúi vinni málið áfram.
| | |
|