| |
1. 2308002 - Deiliskipulag í Búðardal 2023 | |
Byggðarráð samþykkir framlagða kostnaðaráætlun vegna vinnu við deiliskipulag í Hvömmum. | | |
|
2. 2401044 - Fjárhagsáætlun 2024 - Viðauki I | |
Hækka kostnað v.Barnaverndar kr. 27.000.000 Tekjur v.mótframlags ríkisins allt að kr. 5.400.000 Hækkun kostnaðar v.Lengdrar viðveru kr. 1.967.000 Hækkun kostnaðar v.Deiluskipulags kr. 2.000.000 Hækkun á húsaleigutekjum kr. 11.900.000
Samtals breytingar á A-sjóði kr. 13.667.000 og til lækkunar á handbæru fé
| Viðauki_1.pdf | | |
|
3. 2312008 - Ábyrgð á ráðstöfun aukaafurða dýra (dýraleifa) | |
Byggðarráð þakkar fyrir minnisblaðið og hvetur til þess að málinu sé komið í réttan farveg eins og lýst er í framlögðu minnisblaði. | minnisblad ábyrgd á radstofun dyraleifa utsent.pdf | | |
|
4. 2110010 - Sjúkraþjálfun í Dalabyggð | |
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og felur sveitarstjóra að eiga samskipti við Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisráðherra í samræmi við erindið og umræður á fundinum. | Erindi á byggðaráð_sjúkraþjálfun.pdf | | |
|
5. 2401017 - Heilsuefling | |
Byggðarráð þakkar fyrir erindið. Þá bendir ráðið á nýgerðan samning sveitarfélagsins við Umf. Óla pá um gjaldfrjáls afnot elli- og örorkulífeyrisþega af líkamsræktinni að Vesturbraut 8 og því góða starfi sem Íþróttafélagið Undri hefur haldið úti fyrir eldri borgara í aðstöðunni. Sveitarfélagið leitar reglulega leiða til að stuðla að heilsueflingu íbúa og verður erindið tekið með til frekari skoðunar í þeim málum. | | |
|
6. 2401021 - Varúðarniðurfærsla skattkrafna 2023 | |
Samþykkt samhljóða. | | |
|
7. 2401022 - Skólavist utan lögheimilissveitarfélags | |
Samþykkt samhljóða. | | |
|
8. 2311019 - Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, starfshópur í Dalabyggð | |
Mánudaginn 29. janúar var haldinn opinn fundur með starfshópi ráðuneytisins. Verið er að taka saman punkta frá fundinum sem verða birtir á næstu dögum. | | |
|
9. 2401037 - Umsagnarb. tækifærisleyfi Þorrablót Suður-Dala | |
Samkvæmt 28. gr. lögreglusamþykktar Dalabyggðar nr.375/2016 skal aldurstakmark á dansleiki og skemmtanir innan Dalabyggðar miðast við fæðingarár, þ.e. fædd 2006 eða 18 ára á árinu. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við veitingu tækifærisleyfis vegna þorrablóts í Árbliki 10. febrúar 2024. | | |
|
10. 2401042 - Umsagnarbeiðni Rekstrarleyfi Sælukotið Árblik | |
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við rekstrarleyfi með þeim fyrirvara að rekstraraðili hafi gert samning vegna sorphirðu.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
11. 2204013 - Íþróttamannvirki í Búðardal | |
Sveitarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum. | | |
|
12. 2305019 - Dalaveitur/ljósleiðarahluti | |
Sveitarstjóri mun eiga fund með Mílu um miðjan mánuðinn. | | |
|