Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri
Formaður kallaði eftir hvort athugasemdir væru við fundarboð, engar athugasemdir komu fram og skoðast því fundurinn lögmætur.
Dagskrá:
Almenn mál
1. 2305019 - Dalaveitur/ljósleiðarahluti
Í kjölfar síðasta fundar í byggðarráði Dalabyggðar og umræðna í stjórn Dalaveitna ehf. hafa átt sér stað samtöl og samskipti við fyrirtæki á fjarskiptamarkaði. Fyrir liggur nú tilboð frá Mílu í kaup á ljósaleiðarakerfi Dalaveitna í dreifbýli. Einnig liggur fyrir staðfest að Míla hyggst samhliða fara í lagningu ljósleiðara í Búðardal og hefja framkvæmdir sumarið 2024 og að Búðardalur verði ljósleiðaravæddur fyrir árslok 2025.
Stjórn Dalaveitna ehf. samþykkir framkomið tilboð og lýsir ánægju með að farið verði í lagningu ljósleiðara í Búðardal og að verklok þar verði á árinu 2025. Stjórn Dalaveitna ehf. felur sveitarstjóra að undirrita samninginn f.h Dalaveitna ehf.