Til bakaPrenta
Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 80

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
01.09.2026 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu: Skjöldur Orri Skjaldarson formaður,
Ingibjörg Þóranna Steinudóttir aðalmaður,
Heiðrún Sandra Grettisdóttir varamaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir þann tímaramma sem ætlaður er til undirbúnings og vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Dalabyggðar fyrir árin 2027 til 2030. Einnig kynntar þær forsendur sem Samband íslenskra sveitarfélaga leggur upp með í þeirri vinnu sem framundan er.

Fastanefndum Dalabyggðar er falið að yfirfara sína málaflokka í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Skoða vel og ræða bæði útgjöld og innkomu tengda þeim deildum sem falla undir svið deildanna. Tillögum nefnda verði skilað til starfsmanna, til úrvinnslu.

Félagsmálanefnd felur sveitarstjóra að fara yfir tiltekna málaflokka í samræmi við umræður á fundi.
Dagsetningar vegna vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árin 2027 - 2030, samþ.pdf
2. 2607005 - Jafnréttisáætlun 2026-2030
Sveitarstjórnir skulu að afloknum sveitarstjórnarkosningum sjá til þess að innan hvers sveitarfélags verði gerð áætlun fyrir nýtt kjörtímabil um markmið og aðgerðir til að koma í veg fyrir mismunun.
Félagsmálanefnd leggur til við sveitarstjórn að jafnréttisáætlun sveitafélagsins verði uppfærð. Nefndin ætlar að rýna stefnuna á milli funda og leggja hana svo fyrir sveitarstjórn í kjölfarið.
Jafnrettisáaetlun Dalabyggð uppfaersla júní 2023..pdf
3. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026
Unnið er að uppfærslu samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar. Fastanefndum er falið að yfirfara drögin eins og þau standa nú og koma með athugasemdir og/eða tillögur ef einhverjar eru.
Félagsmaálefnd tekur undir með fræðslunefnd og leggur til að hin sameinaða nefnd heiti fræðslu- og félagsmálanefnd og að í henni sitji 5 fulltrúar. Sveitarstjóra falið að vinna áfram að sameiningu nefndanna í samræmi við umræður á fundi.
Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar..pdf
4. 2608004 - Samstarf í málefnum innflytjenda og flóttafólks
Óskað var eftir tengilið frá Dalabyggð til að vera virkur þátttakandi í samstarfinu. Þórunn Þórðardóttir bauð sig fram fyrir hönd félagsmálanefndar Dalabyggðar og sat fyrsta samráðsfund 27.08.2026.
Félagsmálanefnd samþykkir að Þórunn Elva Þórðardóttir verði fulltrúi Dalabyggðar í samstarfi um málefni innflytjenda og flóttafólks.
Guðlaug Kristinsdóttir og Ingveldur Guðmundsdóttir fulltrúar úr byggðarráði ásamt Berghildi Pálmadóttur, Ragnheiði Pálsdóttur og Atla Frey Guðmundssyni, fulltrúum úr fræðslunefnd sitja fundinn undir dagskrárlið 5.

Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs hjá Akraneskaupsstað kemur inn á fundinn gegnum fjarfundabúnað undir dagskrárlið 5.
5. 2608019 - Holt Skammtímadvöl á Vesturland
Lagt fram minnisblað vegna Holts skammtímadvalar á Vesturlandi dags. 26. ágúst 2026.
Hildigunni er þakkað fyrir yfirferðina. Nefnd og gestir ræða úrræðið og stöðu Dalabyggðar. Félagsmálanefnd tekur jákvætt í erindið og telur að brýn þörf sé til staðar. Málinu vísað til sveitarstjórnar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00 

Til bakaPrenta