Til bakaPrenta
Sveitarstjórn Dalabyggðar - 268

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
16.04.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir oddviti,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir varaoddviti,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson aðalmaður,
Eyjólfur Ingvi Bjarnason aðalmaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Sindri Geir Sigurðarson varamaður,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri
Lagt er til að bæta eftirfarandi máli á dagskrá:

Mál nr. 2603004F, fundargerð fræðslunefndar Dalabyggðar frá fundi nr. 149, og verði það dagskrárliður nr. 8.

Samþykkt samhljóða

Vegna tæknilegra vandamála náðist ekki að senda út frá fundinum, beðist er velvirðingar á því.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2602030 - Ársreikningur Dalabyggðar 2025
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti samhljóða á 267. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar undir dagskrárlið 1 að vísa ársreikningi fyrir árið 2025 til seinni umræðu i sveitarstjórn. Á milli umræðna hefur byggðarráð fjallað um ársreikninginn og er hann hér lagður fram til annarrar umræðu í sveitarstjórn.

Til máls tók: BÞ

Rekstrartekjur Dalabyggðar á árinu 2025 námu 1.468 millj. kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.364 millj. kr.
Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam 0,50% í A-flokk en lögbundið hámark þess flokks er 0,625%, í B-flokki nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hlutfall. Í C-flokki nam álagningarhlutfallið 1,50% en lögbundið hámark þess flokks er 1,65%.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 87 millj. kr., rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 29 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 1.190 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A hluta nam 992 millj. kr.

Ársreikningur Dalabyggðar fyrir árið 2025 lagður fram til afgreiðslu eftir aðra umræðu.

Samþykktur samhljóða.
Ársreikningur Dalabyggð 2025 seinni umræða..pdf
Dalabyggð - Sundurliðunarbók..pdf
Árseikningur 2025, minnisblað við seinni umræðu 16. apríl 2026.pdf
2. 2602016 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki I
Á 347. fundi byggðarráðs var eftirfarandi tillaga að viðauka I við fjárhagsáætlun 2026 samþykkt, sjá bókun þess efnis:

"Í tillögunni felast breytingar á rekstrarliðum til kostnaðarhækkunar í A-sjóði um 23,8 m.kr.

Áætluð afkoma A og B hluta á árinu 2026 er um 16,3 m.kr. í rekstrartap.

Samþykkt samhljóða og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn."

Samþykkt samhljóða.
Viðauki_1..pdf
3. 2602018 - Laun og launakjör kjörinna fulltrúa
Á 347. fundi byggðarráðs Dalabyggðar var rætt um launakjör kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn Dalabyggðar og nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins og lögð fram tillaga að breytingum. Samþykkt var í byggðarráði að vísa afgreiðslu þessa til sveitarstjórnar og liggur hér fyrir tillaga að breytingum.
Til máls tók: SHG

Samþykkt með 5 atkvæðum, IÞS og GK sátu hjá.

Samþykkt að vísa áhrifum þessa til gerðar Viðauka II við fjárhagsáætlun 2026 og taki breytingin gildi frá og með 1. júní 2026
4. 2604001 - Breyting á aðalskipulag, Árblik í Suðurdölum
Á 163. fundi umhverfis- og skipulagsnefndar Dalabyggðar sem haldinn var 9. apríl sl. var framlögð tillaga að óverulegri aðalskipulagsbreytingu sem felur í sér að breyta afþreyingar og ferðamannasvæði AF11 Árbliki í svæði fyrir verslun og þjónustu VÞ21 með heimild fyrir gististarfsemi.

Nefndin bókaði eftirfarandi:
"Nefndin telur að með hliðsjón af gátlista geti breytingin fallið undir óverulega aðalskipulagsbreytingu, skv. 2. mgr. 36.gr. skipulagslaga. Óveruleg breyting aðalskipulags samþykkt. Skipulagsfulltrúa falið að senda tillöguna til Skipulagsstofnunar."

Er hér bókun og samþykkt umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu í sveitarstjórn Dalabyggðar.

Til máls tóku: GK og SHG

Samþykkt með 6 atkvæðum, SHG sat hjá.
ask-br-Arblik-VÞ-21_ask-1..pdf
20260318_Árblik-Aðalsk-breyting_Bref-GÁT-og-Umhv-mat..pdf
Fundargerðir til kynningar
5. 2603003F - Byggðarráð Dalabyggðar - 347
5.1. 2603010 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts 2026
Framlögð umsókn um styrk vegna greiðslu fasteignaskatts.
Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.
5.2. 2603014 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts
Framlögð umsókn um styrk vegna greiðslu fasteignaskatts.
Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.
5.3. 2603012 - Afskriftarbeiðni
Kynnt beiðni Sýslumannsembættisins varðandi afskriftir krafna.
Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni.
5.4. 2603020 - Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega endurskoðun
Rætt um gildandi reglur og fyrirkomulag á garðslætti fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega.
Sveitarstjóra falið að koma með tillögu að uppfærðum reglum og fyrirkomulagi þessarar þjónustu á næsta fund byggðarráðs.
5.5. 2602015 - Samræmdar greiðslur til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi
Kynntar tillögur að samræmdum greiðslum til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi.
Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi tilnefndi fagaðila frá hverju sveitarfélagi til að yfirfara gjaldskrár fyrir greiðslur til stuðningsfjölskyldna og koma fram með tillögu að samræmdri gjaldskrá fyrir svæðið. Verkefnahópurinn hittist í alls 8 skipti, þar sem skoðað var hvernig greiðslum til stuðningsfjölskyldna sé háttað hjá misfjölmennum sveitarfélögum á landinu.

Tillaga verkefnahópsins er eftirfarandi:

1. flokkur: 50.634 kr. pr. sólarhring
2. flokkur: 43.039 kr. pr. sólarhring
3. flokkur: 32.912 kr. pr. sólarhring
4. flokkur 25.317 kr. pr. sólarhring

Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
5.6. 2602014 - Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Framlögð umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags.
Byggðarráð samþykkir framkomna umsókn.
5.7. 2501029 - Skammtímadvöl barna
Kynnt staða mála varðandi skammtímadvöl barna á Vesturlandi en sveitarfélög á Vesturlandi undirbúa stofnun félags um skammtímavistun fyrir börn í húsnæði Holts í Borgarbyggð. Markmið verkefnisins er að taka saman gögn fyrir sveitarstjórnir til að taka endanlega ákvörðun um stofnun félagsins.
Næsta skref er að fá verktaka til að styðja við verkefnisstjóra og verkefnisstjórn, rýna fyrirliggjandi gögn og klára þau í samstarfi við verkefnisstjóra.
Áætlað er að verkefninu verði lokið 15. apríl þannig að sveitarfélögin getið tekið ákvörðun um stofnun félagsins, og Þroskahjálp geti hafið vinnu við breytingar á húsnæðinu.
Gengið er út frá því að kostnaður verði um 1.600.000. SSV mun greiða helming upphæðar og hinn helmingur skiptist á milli sveitarfélaga svo 160.000 er þá kostnaðarhluti Dalabyggðar.
Byggðarráð samþykkir aðkomu Dalabyggðar að verkefninu og að framlag Dalabyggðar verði 160.000 kr.

Vísað til staðfestingar í sveitarstjórn Dalabyggðar.
5.8. 2603003 - Refa og minkaveiði 2026-2028
Rætt um refa- og minkaveiði í Dalabyggð en fyrir liggur að Náttúrufræðistofnun er með í farvatninu nýjan samning til þriggja ára á svipuðum nótum og verið hefur.
Byggðarráð samþykkir aðkomu Dalabyggðar að verkefninu í þeim anda sem um er rætt.
5.9. 2603017 - Pósthlaupið 2026
Framlagt erindi frá UMF Ólafs pá varðandi samstarf í kringum Pósthlaup 2026.
Byggðarráð samþykkir að gert verði samkomulag við umf. Ólaf pá um aðkomu Dalabyggðar að þessu jákvæða verkefni.
5.10. 2603019 - Söfnun fjögurra Holter hjartasírita og augnlampa
Framlagt erindi frá Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem stendur nú fyrir augnlampa fyrir heilsugæsluna í Ólafsvík og fjögurra Holter hjartasírita
sem sendir eru um allt starfsvæði HVE þegar á þarf að halda.
Byggðarráð sér sér ekki fært að verða við framkominni beiðni en óska Hollvinasamtökum góðs gengis í sínum mikilvægu verkefnum.
5.11. 2501001 - Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal
Rætt um stöðu mála í framhaldi að aukinni aðkomu Byggðastofnunar að undirbúningi verkefnisins.
Sveitarstjóri kynnti stöðu mála.
5.12. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026
Rætt um hlutverk og skyldur Dalabyggðar varðandi undirbúning og utanumhald í tengslum við almyrkva.
Almyrkvi á sólu mun ganga yfir Vesturland 12. ágúst 2026. Um er að ræða sjaldgæfan náttúruatburð sem vekur mikla athygli bæði innanlands og erlendis. Í Dalabyggð mun þessi atburður sjást vel frá Skógarströnd, Fellsströnd og Skarðsströnd.
Sveitarfélagið tekur þátt í samráðsvettvangi Vesturlands vegna almyrkvans og mun leggja megin áherslu á öryggismál í samstarfi við viðbragðsaðila og Vegagerðina. Þjónusta við gesti s.s. gisting, veitingar, salerni o.s.frv. verða á forræði þeirra sem vilja bjóða upp á hana og ber að fara eftir reglum þar um.

Byggðarráð þakkar þeim Jóhönnu Maríu og Kristjáni Inga fyrir þeirra innlegg og lýsir ánægju með hvað nú þegar er búið að gera varðandi þann undirbúning sem að sveitarfélaginu mögulega snýr í því verkefni sem um ræðir.
5.13. 2406029 - Félagsheimilið Tjarnarlundur
Í framhaldi af umræðum á síðasta fundi byggðarráðs þar sem samþykkt var að bjóða fulltrúum hóps sem lýst hefur vilja til að koma að rekstri Félagsheimilisins Tjarnarlundar eru mætt þau Ingi og Halla á fundinn.
Byggðarráð þakkar þeim Inga og Höllu fyrir samtalið og væntir gagna frá þeim varðandi mögulega starfsemi í félagsheimilinu fyrir næsta fund byggðarráðs í lok apríl.
5.14. 2602005 - Ræstingar fyrir Dalabyggð
Á síðasta fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
"Rætt um stöðu samnings um ræstingar en 3 ár verða liðin þann 31. júlí 2026 frá því samningurinn var gerður í kjölfar útboðs. Heimilt er að framlengja samninginn um 1 ár í senn að hámarki tvisvar sinnum.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ræða við verktaka um framlengingu skv. ákvæðum í núverandi samningi."

Sveitarstjóri sagði frá stöðu viðræðna við verktaka.
Sveitarstjóra falið að ræða við verktaka í anda umræðu á fundinum.
5.15. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla
Á síðasta fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:

"Rætt um stöðu samnings um rekstur mötuneytis Auðarskóla en 3 ár verða liðin þann 31. júlí 2026 frá því samningurinn var gerður í kjölfar útboðs. Heimilt er að framlengja samninginn um 1 ár í senn að hámarki tvisvar sinnum.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ræða við verktaka um framlengingu skv. ákvæðum í núverandi samningi."

Sveitarstjóri sagði frá stöðu viðræðna við verktaka.
Sveitarstjóra falið að ræða við verktaka í anda umræðu á fundinum.
5.16. 2602016 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki I
Framlögð tillaga að Viðauka I við fjárhagsáætlun Dalabyggðar árið 2026.
Einnig rætt um framkvæmdaáætlun ársins 2026.
Í tillögunni felast breytingar á rekstrarliðum til kostnaðarhækkunar í A-sjóði um 23.850 m.kr.

Áætluð afkoma A og B hluta á árinu 2026 er um 16.315 m.kr. í rekstrartap.

Samþykkt samhljóða og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.
5.17. 2602030 - Ársreikningur Dalabyggðar 2025
Sveitarstjórn afgreiddi ársreikning Dalabyggðar fyrir árið 2025 við fyrri umræðu á 267. fundi sínum þann 12. mars sl.
Rætt um ársreikning 2025.

5.18. 2602017 - Starfsmannamál
Rætt um starfsmannamál.
5.19. 2602018 - Laun og launakjör kjörinna fulltrúa
Rætt um launakjör kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn Dalabyggðar og nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins og lögð fram tillaga að breytingum.

Samþykkt að vísa til afgreiðslu sveitarstjórnar.
5.20. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal
Rætt um stöðu mála við lokafrágang Íþróttamiðstöðvarinnar í Búðardal
6. 2603009F - Byggðarráð Dalabyggðar - 348
6.1. 2602030 - Ársreikningur Dalabyggðar 2025
Sveitarstjórn afgreiddi ársreikning Dalabyggðar fyrir árið 2025 við fyrri umræðu á 267. fundi sínum þann 12. mars sl.
Rætt um ársreikning 2025.

Lagt til að vísa ársreikningi Dalabyggðar 2025 til annarrar umræðu í sveitarstjórn með áorðnum breytingum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi Dalabyggðar fyrir árið 2025 með áorðnum breytingum til seinni umræðu í sveitarstjórn.
7. 2603008F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 163
Til máls tók: SHG þar sem hann lýsti tengslum við lið nr. 9 í viðkomandi fundargerð og lýsti því yfir að hann tæki ekki afstöðu til þess mál.
7.1. 2604002 - Breyting á deiliskipulagi Hvamma, lóð Rarik við Ásuhvamm 1a
Rarik áformar að reisa lokahús við Ásuhvamm 1a, við gatnamót Brekkuhvamms og Vesturbrautar. Auk þess að hýsa loka og annan búnað hitaveitunnar er stefnan að gera skýli sem verði áningarstaður með upplýsingaskiltum um hitaveituna og jafnvel nýtingu jarðvarma á Íslandi almennt. Við það eykst umfang mannvirkisins og bílastæðaþörf sem kallar á breytingu á deiliskipulagi fyrir Hvamma.
Meðfylgjandi til kynningar eru drög að afstöðumynd fyrir lokahús. Fjalla þarf um afstöðu húss og bílastæða og staðfesta hvort eða hvernig breyting á deiliskipulagi verði unnin.
Tillagan rædd í nefndinni. Leyfi þarf frá Vegagerðinni til að húsið megi standa þarna og leggur nefndin til að þessi staðsetning verði borin undir hana. Nefndin ræddi mögulega legu gangbrautar vestan við götuna, sem þyrfti að kynna eigendum Ásuhvamms 2 og 4, þegar þar að kemur. Nefndin telur ekki að breytingin sé svo mikil að deiliskipulagsbreytingu þurfi.
7.2. 2604004 - Laxaborg - stofnun lóðar og bygging dæluhúss
Rarik áformar byggingu á dæluhúsi í landi Laxaborgar. Stofna á nýja lóð um bygginguna. Meðfylgjandi eru drög að hönnun hússins þar sem meðal annars er afstöðumynd nýrrar lóðar.
Nefndin setur sig ekki upp á móti áformunum.
7.3. 2403019 - Skógrækt á Skógum - framkvæmdaleyfi
Framlögð umsókn um fjölnytja- og landgræðsluskógrækt á lögbýlinu Skógum á Fellsströnd.
Samþykkt að vísa umsókninni til grenndarkynningar og er skipulagsfulltrúa falið að sjá um málið.
7.4. 2604001 - Breyting á aðalskipulagi, Árblik í Suðurdölum
Framlögð tillaga að óverulegri aðalskipulagsbreytingu sem felur í sér að breyta afþreyingar og ferðamannasvæði AF11 Árbliki í svæði fyrir verslun og þjónustu VÞ21 með heimild fyrir gististarfsemi.
Nefndin telur að með hliðsjón af gátlista geti breytingin fallið undir óverulega aðalskipulagsbreytingu, skv. 2. mgr. 36.gr. skipulagslaga. Óveruleg breyting aðalskipulags samþykkt. Skipulagsfulltrúa falið að senda tillöguna til Skipulagsstofnunar.
7.5. 2204014 - Brekkuskógur við Búðardal
Framlagt bréf varðandi Brekkuskóg og tengingu við göngustíga svæðisins frá Skógræktarfélagi Dalasýslu.
Nefndin fagnar þessum viðamiklu framkvæmdum. Í fjárhagsáætlun ársins er ekki gert ráð fyrir fjármagni í þessa tengingu, en leiðir til þess að koma þessum framkvæmdum á sem fyrst verða skoðaðar af alvöru.
7.6. 2603022 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 36 m2 gistihúsi að Stóra-Vatnshorni
Framlögð umsókn um byggingarleyfi fyrir gistahúsi að Stóra-Vatnshorni.
Nefndin samþykkir erindið í samræmi við deiliskipulag svæðisins.
7.7. 2603023 - Umsókn um stofnun lóðar í landi Ólafsdals
Framlögð umsókn um stofnun lóðar í Ólafsdal.
Nefndin frestar málinu, þar sem kalla þarf eftir umsögn Vegagerðarinnar um mörk lóðarinnar innan vegsvæðis.
7.8. 2603024 - Umsókn um byggingarleyfi að Haukabrekku D
Framlögð umsókn um byggingarleyfi að Haukabrekku, lóð D.
Nefndin felur byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
7.9. 2604005 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 50 m2 hesthúsi
Nefndin samþykkir erindið, en felur byggingarfulltrúa að gera athugasemdir vegna ákvæða í lögum um dýravelferð.
7.10. 2603026 - Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands
Framlögð ályktun frá fulltrúafundi Skógræktarfélagi Íslands.
8. 2603004F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 149
8.1. 2603021 - Leikjanámskeið 2026
Framlagt bréf frá Íþróttafélaginu Undra þar sem tilkynnt er að félagið muni ekki vera með sumarnámskeiði/leikjanámskeiði sumarið 2026.
Í ljósi ofangreindrar stöðu er fræðslunefnd sammála um að setja í loftið sem fyrst auglýsingu þar sem auglýst verði eftir aðila eða félagasamtökum til að halda utan um skipulag sumar- eða leikjanámskeið.
8.2. 2406005 - Íþróttamiðstöðin í Búðardal
Lýðheilsufulltrúi kynnti starfið sem í gangi er í Íþróttamiðstöðinni og hvernig aðsókn hefur verið í einstaka þætti í starfseminni það sem af er.
Lýðheilsufulltrúi fór yfir stöðu mála. Rætt um umgengnisreglur í Íþróttamiðstöðinni og á sundlaugarsvæðinu.
Til upplýsinga þá er nú búið að úthluta um 110 árskortum í Íþróttamiðstöðina og notkun á mannvirkinu heilt yfir góð það sem af er.
8.3. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla
Farið yfir stöðu mála í grunnskólanum.
Formaður fræðslunefndar í fjarveru starfandi skólastjóra fór yfir stöðu mála.
Kynnt voru fyrstu drög að skóladagatali fyrir næsta skólaárs, 2026 til 2027. Rætt um framkomin drög og tímasetningu einstakra viðburða. Skóladagatalið verður lagt fram til staðfestingar á næsta fundi fræðslunefndar eftir rýni allra umsagnaraðila.


8.4. 2601011 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2026
Farið yfir stöðu mála í leikskólanum.
Sveitarstjóri í fjarveru aðstoðarleikskólastjóra fór yfir stöðu mála.
Kynnt voru fyrstu drög að skóladagatali leikskólans fyrir næsta skólaárs, 2026 til 2027. Rætt um framkomin drög og tímasetningu einstakra viðburða. Skóladagatalið verður lagt fram til staðfestingar á næsta fundi fræðslunefndar eftir rýni allra umsagnaraðila.
8.5. 2305001 - Skólaþjónusta
Rætt um sérfræðiþjónustu við Auðarskóla.
Rætt um sérfræði- og stoðþjónustu í Auðarskóla m.t.t. þeirra þarfa sem uppi eru í skólakerfinu almennt og í Auðarskóla.
9. 2602029 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 995..pdf
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 996..pdf
10. 2601006 - Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2026
Fundur-241..pdf
Mál til kynningar
11. 2603027 - Aðalfundur Veiðifélags Laxdæla 2026
Framlagt fundarboð til upplýsinga, Einar Jón Geirsson sat fundinn f.h. Dalabyggðar.
12. 2603006 - Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands 2026
Framlagt fundarboð til upplýsinga, Skúli Hreinn Guðbjörnsson sat fundinn f.h. Dalabyggðar.
Fundargerð aðlfundar 25.03.2026..pdf
13. 2601009 - Skýrsla sveitarstjóra 2026
268. fundur, 16. apríl 2026-DESKTOP-U6LOTCN.pdf
Lagt er til að næsti fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verði haldinn miðvikudaginn 13. maí 2026 kl. 16:00.

Samþykkt samhljóða.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:45 

Til bakaPrenta