Til bakaPrenta
Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 47

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
26.11.2025 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Þorgrímur Einar Guðbjartsson formaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Gyða Lúðvíksdóttir aðalmaður,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri ,
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri atvinnu- kynningar- og menningarmála
Lagt er til að taka mál nr. 2510008 - Ársskýrsla 2024 Byggðasafn Dalamanna á dagskrá í stað máls nr. 2510010 - Árleg skýrsla viðurkenndra safna vegna rekstrarársins 2024 og það verði þá dagskrárliður 4.

Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
Þuríður Sigurðardóttir situr fundinn undir dagskrárlið 1 og 2.
1. 2411011 - Menningarmálaverkefnasjóður 2025
Farið yfir stöðuna á nýtingu styrkja úr Menningarmálaverkefnasjóði 2025.
2 verkefnum lokið sem hafa skilað inn skýrslum. Upplýsingar liggja fyrir um önnur 3 sem munu klárast fyrir áramót. Verkefnastjóra falið að hafa samband við styrkþega og athuga stöðu verkefna.

Farið verður betur yfir nýtinguna á nýju ári þegar allar skýrslur styrkþega liggja fyrir.
2. 2511019 - Menningarmálaverkefnasjóður 2026
Skv. úthlutunarreglum Menningarmálaverkefnasjóðs skal úthlutun fara fram fyrir 1. febrúar.
Verkefnastjóra falið að auglýsa Menningarmálaverkefnasjóðinn fyrir 2026 eigi síðar en 1. desember nk.
Menningarmálaverkefnasjóður (2).pdf
Mál til kynningar
3. 2506002 - Barnamenningarhátíð Vesturlands 2025
Farið yfir framkvæmd og uppgjör BARNÓ.
Viljum við þakka fyrir þátttöku á þeim viðburðum sem hafa verið í boði. Það skiptir miklu máli að öll börn og ungmenni fái að prufa eitthvað allt annað en það sem þau hafa aðgengi að daglega. Þannig geta þau aukið sköpun og virkni, kynnst hvert öðru betur, víkkað sjóndeildarhringinn og jafnvel eignast ný áhugamál.
BARNÓ í Dölum lokið - Dalabyggð.pdf
4. 2510008 - Árskýrsla 2024 Byggðasafn Dalamanna
Starfsemi Byggðasafns Dalamanna vegna rekstrarársins 2024.
Nefndin þakkar safnverði fyrir skýrsluna.
5. 2511021 - Ársyfirlit 2025 - Héraðsbókasafn
Starfsemi Héraðsbókasafns Dalasýslu, ársyfirlit 2025.
Nefndin þakkar safnverði fyrir skýrsluna.
Ársyfirlit HBD 2025..pdf
6. 2501013 - Fréttir frá verkefnastjóra 2025
Verkefnastjóri fer í orlof í desember fram í nýtt ár.
Auglýst hefur verið eftir verkefnastjóra fyrir hátíðarhöld í Dalabyggð 2026.

Staða mála rædd.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:57 

Til bakaPrenta