| |
1. 2001002 - Bæjarhátíð sumar 2020 | |
Rætt um að halda í bæjarhátíðina og reyna þá frekar að finna nýja leið í dagskrá. Horfa til fleiri viðburða, fá hverfin með, eflaust hægt að finna upp nýja dagskrárliði. Hugmyndir ræddar m.a. Brekkusöngur í staðin fyrir ball. Athuga með tónlistarmenn. Vestfjarðavíkingurinn enn á dagskrá. Þarf að skoða fyrirkomulag með sýningar á list- og handverki. Verkefnastjóri vinnur áfram eftir hugmyndum fundarins.
| | |
|
2. 2003031 - Viðbrögð Dalabyggðar vegna heimsfaraldurs COVID-19 | |
Horfa þarf til tilmæla vegna COVID-19 við öll hátíðarhöld. 17.júní gæti verið með breyttu sniði, horfa frekar til dagskrár fyrir börn og streymi á efni í staðin. Verkefnastjóri vinnur málið áfram. | | |
|
3. 2005013 - Menningarviðburðir í Dalabyggð | |
Hugmyndir um að vera með fleiri viðburði á svæðinu, íbúar gætu boðið heim, hægt að vera með sýningar eða hvað sem fólki dettur í hug. Athuga þarf með áhuga bæði hjá íbúum og félögum sem starfa á svæðinu til að koma að verkefninu. Formaður og verkefnastjóri kanna áhuga á verkefninu. | | |
|
4. 1912011 - Byggðasafn Dalamanna - Staðarfell | |
Menntamálaráðuneytið bíður skýrslu frá Dalabyggð um málið. Engar breytingar í málinu frá síðasta fundi. | | |
|