Til bakaPrenta
Fræðslunefnd Dalabyggðar - 153

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
29.09.2026 og hófst hann kl. 13:30
Fundinn sátu: Skjöldur Orri Skjaldarson formaður,
Ingibjörg Þóranna Steinudóttir aðalmaður,
Þórunn Þórðardóttir aðalmaður,
Ragnheiður Pálsdóttir aðalmaður,
Heiðrún Sandra Grettisdóttir varamaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Herdís Erna Gunnarsdóttir skólastjóri, Jóna Björg Guðmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir, Sveitarstjóri
Tveimur málum bætt við á fundardagskrá. Mál nr. 2609026 Ályktanir ungmennaþings sem kemur undir dagskrárlið 5 og mál nr. 2608013 Ungmennaráð 2026-2027 undir dagskrárlið 6.


Dagskrá: 
Almenn mál
Undir lið 1 á dagskrá situr Katrín Kristjánsdóttir skólastjóri Auðarskóla
1. 2608012 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2026-2027
Skólastjóri fer yfir málefni leikskóladeildar Auðarskóla
Skólastjóri fer yfir stöðu leikskóladeildar Auðarskóla. Ljóst að stór hópur barna kemur inn í skólann á næsta ári og horfa þarft til þess við mönnun skólans á næsta ári.
Katrín Kristjánsdóttir skólastjóri situr fundinn undir lið 2
2. 2608011 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026-2027
Skólastjóri fer yfir málefni grunnskóladeildar
Skólastjóri fer yfir skólastarfið þar sem af er hausti. Í grunnskóladeild Auðarskóla í vetur eru 67 nemendur og kennt í 6 hópum.
Katrín yfirgefur fundinn kl. 13:55
Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari sat fundinn undir þessum lið
3. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir forsendur vegna vinnu við fjárhagsáætlun.
Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2027 og stöðu vinnunnar.
4. 2609016 - Viðverustefna Dalabyggðar 2026
Lögð fram drög að uppfærðri viðverustefnu Dalabyggðar
Lögð fram drög að mannauðsstefnu Dalabyggðar, Siðareglum starfsmanna Dalabyggðar, viðbragðsáætlun gegn einelti, áreitni og ofbeldi og viðverustefnu Dalabyggðar.

Rætt um reglurnar og inntak þeirra.

Sveitarstjóra falið að kynna drögin fyrir stjórnendum og öðru starfsfólki sveitarfélagsins og ef engar efnislegar breytingar verða þá er reglunum vísað beint til sveitarstjórnar.
Einar Björn Þorgrímsson lýðheilsufulltrúi sat fundinn undir þessum lið
5. 2609026 - Ályktanir ungmennaþings
Ungmennaþing Vesturlands fór fram dagana 25. - 27. september sl. Lagðar fram samþykktar ályktanir þingsins.
Ályktanir ungmennaþings Vesturlands lagðar fram til kynningar og vísar fræðslunefnd ályktunum til ungmennaráðs Dalabyggðar til umfjöllunar.

Fræðslunefnd lýsir yfir ánægju með vinnuframlag og áhuga ungmenna á Vesturlandi en ljóst er að mikil vinna liggur að baki þessum ályktunum.
6. 2608013 - Ungmennaráð 2026-2027
Skipun í ungmennaráð
Farið yfir umsóknir/framboð þeirra ungmenna sem hafa sýnt áhuga á að starfa í ráðinu.

Fræðslunefnd samþykkir að skipa Aðalheiði Rós Unnsteinsdóttur og Grétar Bæring Helguson í Ungmennaráð Dalabyggðar.

Fræðslunefnd þakkar fyrir framkomnar umsóknir/framboð.

Samþykkt samhljóða
Heiðrún vék af fundi undir þessum lið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:35 

Til bakaPrenta