Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 349

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
30.04.2026 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Skúli Hreinn Guðbjörnsson formaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Garðar Freyr Vilhjálmsson varaformaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri
Lagt er til að mál nr. 2604023, Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts, verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 11.

Lagt er til að mál nr. 2604026, Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts, verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 12.

Lagt er til að mál nr. 2503006, Úrgangsþjónusta - verðskrá söfnunarstöðvar, verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 15.

Lagt er til að mál nr.2504018, Afskriftabeiðnir, verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 16.

Lagt er til að mál nr. 2604025, Ósk um að taka í fóstur lóðina Stekkjarhvammur 3, verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 17.

Aðrir liðir færist til skv. framangreindu.

Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2604010 - Gjaldskrá Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Dalabyggðar 2026
Framlögð tillaga að uppfærðri gjaldskrá Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Dalabyggðar 2026.
Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn Dalabyggðar.
2. 2604009 - Erindi vegna gatnagerðar við Vesturbraut 8, 10 og 12
Framlagt erindi vegna gatnagerðar við Vesturbraut 8, 10 og 12.
Byggðarráð þakkar framkomið erindi.
Erindið rætt og vísað til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar.
3. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026
Rætt um hlutverk og skyldur Dalabyggðar varðandi undirbúning og utanumhald í tengslum við almyrkva í ljósi þeirra atriða sem rædd voru á síðasta fundi byggðarráðs.
Framlagt minnisblað um stöðu mála.
Byggðarráð tekur jafnframt undir bókun atvinnumálanefndar þar sem nefndin hvetur íbúa til að fylgjast með og jafnframt nýta tækifærin sem skapast við móttöku og þjónustu við gesti á svæðinu.
4. 2604011 - Laun vinnuskóla 2026
Lögð fram tillaga að launum fyrir vinnuskóla Dalabyggðar sumarið 2026 og farið yfir skipulag starfsins í sumar.
Hækkun pr. tíma er 3,5% fyrir árið 2026.

Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að hækkun launataxta vinnuskóla.

Ljóst er að ákveðin óvissa er uppi varðandi vinnuskóla Dalabyggðar í sumar í ljósi þess að ekki hafa neinar umsóknir um umsjón skólans borist, er það áhyggjuefni og ljóst að mál þurfa að skýrast á allra næstu dögum.
5. 2603020 - Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega endurskoðun
Framlagt minnisblað um endurskoðun fyrirkomulags vegna garðsláttar elli- og örorkulífeyrisþega.
Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu og vísar til staðfestingar sveitarstjórnar.
6. 2602005 - Ræstingar fyrir Dalabyggð
Sveitarstjóri kynnti stöðu viðræðna við verktaka og kynnti drög að viðauka við núverandi samning.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag með áorðnum viðauka og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
7. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla
Sveitarstjóri kynnti stöðu viðræðna við verktaka.
8. 2209012 - Laugar í Sælingsdal - samskipti
Rætt um stöðu máls í sambandi við uppgjör og útgáfu afsals.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
9. 2406029 - Félagsheimilið Tjarnarlundur
Rætt um stöðu máls í ljósi umræðna og samskipta við fulltrúa hóps sem lýst hefur vilja til að koma að rekstri Félagsheimilisins Tjarnarlundar.
Það er ljóst að ekki verður aðhafst frekar á því kjörtímabili sem senn er á enda varðandi rekstrar- og eignarhald á Félagsheimilinu Tjarnarlundi.
10. 2604020 - Umsókn um undanþágu vegna fjölda hunda vegna atvinnustarfsemi
Framlögð umsókn um undanþágu vegna fjölda hunda vegna atvinnustarfsemi.
Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni um undanþágu um fjölda hunda vegna atvinnustarfsemi.
11. 2604023 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts
Framlögð umsókn um styrk vegna greiðslu fasteignaskatts.

Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.
12. 2604026 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts
Framlögð umsókn um styrk vegna greiðslu fasteignaskatts.
Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.
Á fundinn mættu í gegnum fjarfundarbúnað þeir Pétur Friðjónsson og Rúnar Þór Guðbrandsson frá Byggðastofnun og tóku þátt í umræðum undir lið 13.
13. 2501001 - Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal
Farið yfir stöðu mála með fulltrúum Byggðastofnunar sem komu inn á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
Byggðarráð þakkar fulltrúum Byggðastofnunar fyrir fundinn.
14. 2405006 - Húsnæði viðbragðsaðila
Farið yfir stöðu mála og framkomið erindi frá Björgunarsveitinni Ósk.
Byggðarráð þakkar framkomið erindi, samþykkt að fela sveitarstjóra að ræða við bréfritara og fá fram frekari upplýsingar um m.a. aðgengi og innra skipulag húsnæðis þess sem um ræðir.
Kristján Ingi Arnarsson verkefnastjóri eigna- og umhverfissviðs sat fundinn undir lið 15.
15. 2503006 - Úrgangsþjónusta - verðskrá söfnunarstöðvar
Rætt um verðskrá söfnunarstöðvar úrgangs í Búðardal.
Kristján Ingi kynnti stöðu mála. Byggðarráð þakkar Kristjáni Inga fyrir yfirferðina og fól honum og sveitarstjóra að útfæra tillögu að gjaldskrá söfnunarstöðvar úrgangs í Búðardal fyrir fund sveitarstjórnar 13. maí n.k.
16. 2504018 - Afskriftabeiðnir
Kynnt beiðni Sýslumannsembættisins varðandi afskriftir krafna.
Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni.
Kristján Ingi Arnarsson verkefnastjóri eigna- og umhverfissviðs sat fundinn undir lið 17.
17. 2604025 - Ósk um að taka í fóstur lóðina Stekkjarhvammur 3
Framlagt erindi þess efnis að fá að taka í fóstur lóðina að Stekkjarhvammi 3.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að umsækjendur fái að taka lóðina í fóstur og verði þau afnot framlag sveitarfélagsins að þessu jákvæða verkefni.
18. 2602017 - Starfsmannamál
Rætt um starfsmannamál.
Kristján Ingi Arnarsson verkefnastjóri eigna- og umhverfissviðs sat fundinn undir lið 19 að hluta.
19. 2604015 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki II - rekstur á fyrsta ársfjórðungi
Rætt um gerð Viðauka II við Fjárhagsáætlun 2026.
Einnig rætt um stöðu á rekstri á fyrsta ársfjórðungi ársins 2026.

Rætt um stöðuna á rekstri og hvað þurfi að taka tillit til við gerð Viðauka II við fjárhagsáætlun 2026.

Varðandi framkvæmdaáætlun yfirstandandi árs þá er ljóst að bæta þarf í vegna lokafrágangs við Íþróttamiðstöð og vegna hitaveituframkvæmda á Laugum. Samþykkt að vísa til gerðar Viðauka II við fjárhagsáætlun 2026.
Samþykkt að halda næsta fund byggðarráðs mánudaginn 11. maí n.k. kl. 11:00


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:45 

Til bakaPrenta