| |
Herdís Erna Gunnarsdóttir skólastjóri og Berghildur Pálmadóttir fulltrúi starfsmanna sátu fundinn undir liðum 1, 2, 3, 4 og 5.
| 1. 2308003 - Auðarskóli málefni grunnskóla 2023-2024 | |
Fræðslunefnd samþykkir framkomið skóladagatal grunnskóla.
Skólastjóri kynnti stundatöflu fyrir komandi skólaár, fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við stundatöfluna.
Skólastjóri upplýsti fræðslunefnd um vinnu við fyrirhugaða stefnu um námsmat í grunnskóla. Jafnframt var kynnt mat á starfsáætlun Auðarskóla 2023-2024 sem verður gerð aðgengileg á heimasíðu skólans á næstu dögum.
Búið er að ganga frá ráðningum starfsfólks fyrir komandi starfsár.
Rætt um kostnaðarskiptingu á milli skóla og nemenda/foreldra hvað varðar skíðaferðir, skólabúðir og annað tilfallandi. Fræðslunefnd samþykkir að jöfn kostnaðarskipting á milli skóla og nemenda/foreldra verði viðhöfð en mikilvægt að upphæð liggi fyrir í upphafi skólárs sé því við komið. | | |
|
2. 2308004 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2023-2024 | |
Fræðslunefnd samþykkir framkomið skóladagatal leikskóla. Búið er að ganga frá ráðningu aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann. Enn vantar hálft til eitt stöðugildi í leikskólann f.o.m. hausti. | | |
|
3. 2404022 - Tónlistarskóli 2024 | |
| |
|
4. 2301027 - Skólaakstur 2024-2027 | |
Unnið er að frágangi samninga við bjóðendur. | | |
|
Jón Egill Jónsson íþrótta- og tómstundafulltrúi sat fundinn undir liðum 5, 6 og 7.
| 5. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal | |
Rætt um mikilvægi þess að fyllsta öryggis verði gætt við alla umferð nemenda, starfsmanna leik- og grunnskóla og annarra hlutaðeigandi á framkvæmdatíma sem og akstursleiðir til og frá framkvæmdasvæðinu. Jafnframt rætt um skipulag skólalóðar. | | Herdís og Berghildur yfirgáfu fundinn að loknum 5. lið á dagskrá.
| |
|
6. 2208010 - Tómstundir í Dalabyggð | |
Mjög góð þátttaka hefur verið í sumarstarfi undanfarnar vikur og ástæða til þess að þakka öllum sem að hafa komið. Formaður Íþróttafélagsins Undra fór yfir horfur fyrir komandi haust varðandi þjálfaramál og hvaða íþróttagreinar verður mögulega boðið upp á sem og hvaða mögulegu tímasetningar verði á æfingum sem verða í boði. Jafnframt rætt um mikilvægi þess að tímasetningar félagsmiðstöðvar henti í samanburði við aðrar tímasetningar tómstundastarfs. Samtal við Skátafélagið, Glímufélagið og Björgunarsveit um áframhaldandi starf í haust er hafið og til fyrirmyndar allt það sjálfboðaliðastarf sem í boði hefur verið og vonandi verður svo áfram.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir starfið hjá eldri borgurum. | | |
|
7. 2401041 - Ungmennaráð 2024 | |
Rætt um þá liði sem um var rætt af hálfu ungmennanna á fundi með sveitarstjórn. Fræðslunefnd vill koma á framfæri þakklæti til ungmennaráðs fyrir góð erindi og málefnalega framsetningu þeirra mála sem rædd voru á fundinum.
Mikilvægt er að halda umræddum málefnum á lofti og útfæra hvernig Dalabyggð getur staðið að því að styrkja umrædd málefni og verkefni á komandi vikum og mánuðum.
Verkefnastjóra fjölskyldumála og íþrótta- og tómstundafulltrúa, í samstarfi við sveitarstjóra og skólastjóra þar sem við á, falið að taka saman yfirlit yfir áherslur Dalabyggðar í einstaka verkefnum og það hvar mögulegt er að sækja um styrki til einstakra verkefna í þeim þáttum sem um ræðir.
| | Jón Egill íþrótta- og tómstundafulltrúi yfirgaf fundinn að loknum 7. lið á dagskrá.
| |
|
8. 2010009 - Akstur framhaldsskólanema úr Búðardal í MB | |
Fræðslunefnd leggur áherslu á að leitast verði við að viðhalda ferðum á mánudagsmorgnum úr Búðardal og að nemendum verði gert kleift að nota ferð strætó á föstudagseftirmiðdegi vestur í Dali. | | |
|
9. 2403007 - Starfshópur um skipulag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs í Dalabyggð 2024 | |
Fræðslunefnd lýsir stuðningi við þá nálgun sem formaður kynnti á fundinum og styður að verkefnið fái framgang. | | |
|