Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 163

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
09.04.2026 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Guðlaug Kristinsdóttir formaður,
Bjarnheiður Jóhannsdóttir ritari,
Björn Henry Kristjánsson aðalmaður,
Sigrún B Halldórsdóttir aðalmaður,
Viðar Þór Ólafsson varaformaður,
Kristján Ingi Arnarsson embættismaður, Hlynur Torfi Torfason Skipulagsfulltrúi, Grettir Örn Ásmundsson byggingarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Bjarnheiður Jóhannsdóttir, ritari
Lagt er til að mál nr. 2604005 umsókn um byggingarleyfi verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 9.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2604002 - Breyting á deiliskipulagi Hvamma, lóð Rarik við Ásuhvamm 1a
Rarik áformar að reisa lokahús við Ásuhvamm 1a, við gatnamót Brekkuhvamms og Vesturbrautar. Auk þess að hýsa loka og annan búnað hitaveitunnar er stefnan að gera skýli sem verði áningarstaður með upplýsingaskiltum um hitaveituna og jafnvel nýtingu jarðvarma á Íslandi almennt. Við það eykst umfang mannvirkisins og bílastæðaþörf sem kallar á breytingu á deiliskipulagi fyrir Hvamma.
Meðfylgjandi til kynningar eru drög að afstöðumynd fyrir lokahús. Fjalla þarf um afstöðu húss og bílastæða og staðfesta hvort eða hvernig breyting á deiliskipulagi verði unnin.

Tillagan rædd í nefndinni. Leyfi þarf frá Vegagerðinni til að húsið megi standa þarna og leggur nefndin til að þessi staðsetning verði borin undir hana. Nefndin ræddi mögulega legu gangbrautar vestan við götuna, sem þyrfti að kynna eigendum Ásuhvamms 2 og 4, þegar þar að kemur. Nefndin telur ekki að breytingin sé svo mikil að deiliskipulagsbreytingu þurfi.
2. 2604004 - Laxaborg - stofnun lóðar og bygging dæluhúss
Rarik áformar byggingu á dæluhúsi í landi Laxaborgar. Stofna á nýja lóð um bygginguna. Meðfylgjandi eru drög að hönnun hússins þar sem meðal annars er afstöðumynd nýrrar lóðar.
Nefndin setur sig ekki upp á móti áformunum.
3. 2403019 - Skógrækt á Skógum - framkvæmdaleyfi
Framlögð umsókn um fjölnytja- og landgræðsluskógrækt á lögbýlinu Skógum á Fellsströnd.
Samþykkt að vísa umsókninni til grenndarkynningar og er skipulagsfulltrúa falið að sjá um málið.
4. 2604001 - Breyting á aðalskipulagi, Árblik í Suðurdölum
Framlögð tillaga að óverulegri aðalskipulagsbreytingu sem felur í sér að breyta afþreyingar og ferðamannasvæði AF11 Árbliki í svæði fyrir verslun og þjónustu VÞ21 með heimild fyrir gististarfsemi.
Nefndin telur að með hliðsjón af gátlista geti breytingin fallið undir óverulega aðalskipulagsbreytingu, skv. 2. mgr. 36.gr. skipulagslaga. Óveruleg breyting aðalskipulags samþykkt. Skipulagsfulltrúa falið að senda tillöguna til Skipulagsstofnunar.
5. 2204014 - Brekkuskógur við Búðardal
Framlagt bréf varðandi Brekkuskóg og tengingu við göngustíga svæðisins frá Skógræktarfélagi Dalasýslu.
Nefndin fagnar þessum viðamiklu framkvæmdum. Í fjárhagsáætlun ársins er ekki gert ráð fyrir fjármagni í þessa tengingu, en leiðir til þess að koma þessum framkvæmdum á sem fyrst verða skoðaðar af alvöru.
6. 2603022 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 36 m2 gistihúsi að Stóra-Vatnshorni
Framlögð umsókn um byggingarleyfi fyrir gistahúsi að Stóra-Vatnshorni.
Nefndin samþykkir erindið í samræmi við deiliskipulag svæðisins.
7. 2603023 - Umsókn um stofnun lóðar í landi Ólafsdals
Framlögð umsókn um stofnun lóðar í Ólafsdal.
Nefndin frestar málinu, þar sem kalla þarf eftir umsögn Vegagerðarinnar um mörk lóðarinnar innan vegsvæðis.
8. 2603024 - Umsókn um byggingarleyfi að Haukabrekku D
Framlögð umsókn um byggingarleyfi að Haukabrekku, lóð D.
Nefndin felur byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
9. 2604005 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 50 m2 hesthúsi
Nefndin samþykkir erindið, en felur byggingarfulltrúa að gera athugasemdir vegna ákvæða í lögum um dýravelferð.
Mál til kynningar
10. 2603026 - Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands
Framlögð ályktun frá fulltrúafundi Skógræktarfélagi Íslands.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta