| |
Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari kemur inn á fundinn undir dagskrárlið 1.
| | 1. 2609008 - Fjárhagsáætlun 2026 - Viðauki IV (4) | |
| Farið yfir forsendur vegna viðauka IV. Starfsfólki Dalabyggðar falið að vinna málið áfram. Byggðarráð beinir til allra deilda mikilvægi þess að standa áfram við áætlanir sem og leita svigrúms til hagræðinga vegna 2026. | | |
|
Kristján Ingi Arnarsson, verkefnastjóri eigna- og umhverfissviðs situr fundinn undir dagskrárlið 2 og 3.
| | 2. 2602031 - Vatnsveita | |
Byggðarráð tekur jákvætt í erindi sem barst frá eigendum Höskuldsstaða um mögulega tengingu við Vatnsveitu Dalabyggðar. Verkefnastjóra eigna- og umhverfissviðs og staðgengli sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og kynna fyrir umsækjendum þær forsendur sem unnið er með. Endurskoða þarf reglur og gjaldskrá veitunnar, verður það unnið samhliða fjárhagsáætlunargerð. | | |
|
| 3. 2609015 - Eftirlitsskýrsla vegna Guðrúnarlaugar | |
| Byggðarráð leggur til að kannað verði með hvaða hætti hægt sé að bregðast við athugasemdum sem koma fram í skýrslu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Starfsfólki Dalabyggðar falið að fylgja málinu eftir. | | |
|
| 4. 2609016 - Viðverustefna Dalabyggðar 2026 | |
| Byggðarráð samþykkir drög að viðverustefnu Dalabyggðar. Sveitarstjóra falið að uppfæra gögn til framlagningar hjá sveitarstjórn. | | |
|
| 5. 2609017 - Erindi frá VR, LÍF og Fagfélögum | |
| Byggðarráð hyggst leita allra leiða til að halda hækkunum í hófi en um leið horfa til þess að mæta nauðsynlegum útgjöldum sveitarfélagsins. Í Dalabyggð er framboð lóða gott, hvort sem verið er að horfa á íbúðir eða iðnaðarhúsnæði. Þá eru lóðir Dalabyggðar í Búðardal leigulóðir svo byggingaraðilar þurfa ekki að leggja út fyrir kostnaði vegna kaupa á lóðum. Ekki er þörf á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla í Dalabyggð þar sem 12 mánaða gömul börn fá inni á leikskóla og um þessar mundir er ekki biðlisti á leikskólann. Dalabyggð hefur reynt að koma til móts við íbúa sl. ár með ýmsum öðrum hætti til að létta undir með rekstri heimila s.s. með að fella niður vistunargjald í leikskóla hjá elsta árgangi í leikskóla hverju sinni, boðið upp á frí afnot af líkamsræktaraðstöðu fyrir elli- og örorkulífeyrisþega, árskort á bókasafnið verið gjaldfrjálst og svo einnig styrkt við hin ýmsu félög sem sinna íþrótta- og tómstundastarfi til að kostnaður falli ekki alfarið á foreldra barna sem það nýta. | | Dalabyggð.pdf | | |
|
| 6. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 | |
| Tillögur kynntar að gjaldskrárbreytingum. | | |
|
| 7. 2609018 - Samningur um beitarland 2026 | |
| Sveitarstjóra og staðgengli falið að vinna málið áfram. | | |
|
|
| 9. 2601027 - Mál til umsagnar frá alþingi 2026 | |
| Byggðarráð felur staðgengli sveitarstjóra að undirbúa drög að umsögn við málið. | | 0005_sveitarstjornarlog.pdf | | |
|
| 10. 2609021 - Þjóðarsátt um verðstöðugleika | |
| Byggðarráð hyggst leita allra leiða til að halda hækkunum í hófi en um leið horfa til þess að mæta nauðsynlegum útgjöldum sveitarfélagsins. | | 2026-09-16 Þjóðarsátt um verðstöðugleika.pdf | | |
|
| 11. 2609022 - Vínlandssetur 2026 | |
| Byggðarráð staðfestir móttöku á uppsögn rekstraraðila á samningi við Dalabyggð um rekstur Vínlandsseturs og leggur til við sveitarstjórn að samningi við núverandi samningsaðila ljúki um næstu áramót, að beiðni rekstraraðila. | | |
|