Til bakaPrenta
Fræðslunefnd Dalabyggðar - 152

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
01.09.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Skjöldur Orri Skjaldarson formaður,
Ingibjörg Þóranna Steinudóttir aðalmaður,
Ragnheiður Pálsdóttir aðalmaður,
Berghildur Pálmadóttir aðalmaður,
Heiðrún Sandra Grettisdóttir varamaður,
Atli Freyr Guðmundsson varamaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Staðgengill sveitarstjóra


Dagskrá: 
Almenn mál
Katrín Kristjánsdóttir, skólastjóri og Svanhvít Lilja Viðarsdóttir, fulltrúi starfsmanna sitja fundinn undir dagskrárlið 1 og 2.
1. 2608012 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2026-2027
Skólastjóri kynnir stöðu mála er varðar undirbúning og upphaf nýs skólaárs leikskóladeildar.
Farið yfir stöðu starfsmannahalds og upphaf skólaársins.
Leikskoladagatal-2026-2027.pdf
Katrín Kristjánsdóttir, skólastjóri og Svanhvít Lilja Viðarsdóttir, fulltrúi starfsmanna sitja fundinn undir dagskrárlið 1 og 2.
2. 2608011 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026-2027
Skólastjóri kynnir stöðu mála er varðar undirbúning og upphaf nýs skólaárs grunnskólans.
Farið yfir stöðu starfsmannahalds, skólalóð og kostnað vegna þátttöku barna í skólatengdum viðburðum og ferðum.
Grunnskoladagatal-2026-2027.pdf
3. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir þann tímaramma sem ætlaður er til undirbúnings og vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Dalabyggðar fyrir árin 2027 til 2030. Einnig kynntar þær forsendur sem Samband íslenskra sveitarfélaga leggur upp með í þeirri vinnu sem framundan er.

Fastanefndum Dalabyggðar er falið að yfirfara sína málaflokka í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Skoða vel og ræða bæði útgjöld og innkomu tengda þeim deildum sem falla undir svið deildanna. Tillögum nefnda verði skilað til starfsmanna, til úrvinnslu.

Farið yfir þá málaflokka sem heyra undir nefndina. Nefndin leggur til að skoðaðir verði tilteknir lyklar og útfærslur á þjónustuþáttum í samræmi við umræður í nefndinni. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.



Dagsetningar vegna vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árin 2027 - 2030, samþ.pdf
Katrín Kristjánsdóttir, skólastjóri situr fundinn undir dagskrárlið 4. Ragnheiður Pálsdóttir víkur af fundi undir dagskrárliðnum.
4. 2608009 - Skólavist barna utan lögheimilissveitarfélags
Rætt um stöðu málaflokksins hjá Dalabyggð.
Sveitarstjóra falið að yfirfara reglur varðandi málaflokkinn í samstarfi við skólastjóra og aðra hlutaðeigandi aðila.
5. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026
Unnið er að uppfærslu samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar. Fastanefndum er falið að yfirfara drögin eins og þau standa nú og koma með athugasemdir og/eða tillögur ef einhverjar eru.
Fræðslunefnd leggur til að hin sameinaða nefnd heiti fræðslu- og félagsmálanefnd og að í henni sitji 5 fulltrúar. Sveitarstjóra falið að vinna áfram að sameiningu nefndanna í samræmi við umræður á fundi.
6. 2606017 - Reglur um styrki til tónlistanáms utan Dalabyggðar
Nefndin fer yfir núverandi reglur og uppfærir.
Rætt um núverandi reglur og mögulega útfærslu.

Fræðslunefnd leggur það til við sveitarstjórn að horft sé til lögbundinna verkefna og jafnræðis. Því leggur nefndin til að reglur Dalabyggðar varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum verði afnumdar en styrkur til tónlistarnáms utan lögheimilissveitarfélags hjá framhaldsskólanemum verði styrktækur gegnum frístundastyrk sveitarfélagsins skv. þeim viðmiðum sem þar koma fram.

Málinu vísað til sveitarstjórnar.
7. 2608013 - Ungmennaráð 2026-2027
Skipa þarf nýja nefndarmenn í ungmennaráð. Lagt er til að fræðslunefnd óski eftir framboðum, lýðheilsufulltrúa verði falið að auglýsa og í framhaldi verði haldinn kynningarfundur á starfi ungmennaráðs fyrir áhugasöm ungmenni.
Jóhanna Vigdís Pálmadóttir og Guðmundur Sören Vilhjálmsson víkja úr ráðinu að þessu sinni.

Fræðslunefnd felur sveitarstjóra að óska eftir framboðum og halda kynningarfund á starfi ungmennaráðs fyrir áhugasöm ungmenni. Fá fram hugmyndir frá ungmennum um hvað væri hægt að gera til að gera starfið enn fjölbreyttara og virkja fleiri til þátttöku.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til bakaPrenta