| |
| 1. 2601012 - Auðarskóli, málefni Tónlistarskóla 2026 | |
| Farið yfir stöðuna á skólastarfinu þar sem af er skólaárinu. | | |
|
| 2. 2610024 - Reglur um skólasókn barna utan lögheimilissveitarfélags | |
Farið yfir minnisblað verkefnastjóra dags. 26.10.2026 þar sem helstu sjónarmið reglna og viðmiða um námsvist utan lögheimilissveitarfélaga. Fræðslunefnd leggur til að unnar verði reglur um viðmið varðandi námsvist utan lögheimilissveitarfélags á grundvelli þeirra sjónarmiða og tillaga sem fram koma í minnisblaði og umræður á fundi.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 3. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 | |
Lagt fram minnisblað verkefnastjóra dags. 27.10.2026 varðandi breytingar á gjaldskrám.
Fræðslunefnd leggur til að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar í Búðardal hækki um 2,5% á árinu 2027. Einnig leggur nefndin til að gjaldskrá Auðarskóla hækki ekki á næsta ári en að gjaldskráin breytist í samræmi við tillögur í minnisblaði verkefnastjóra fyrir utan eftirfarandi tillögur. Að báðir foreldrar séu með 75% örorku til að falla undir afsláttarreglur. Að einstæðir foreldrar fái áfram 40% afslátt uppfylli þeir skilyrði afsláttarreglna gjaldsskrár.
Samþykkt samhljóða | | Audarskol-gjaldskra-2026.pdf | | Gjaldskra-ithrottamidstodvar-i-Budardal-2026.pdf | | |
|
| 4. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 | |
Farið yfir þjónustusamninga sem falla undir málaflokka Auðarskóla. Lögð fram drög að fjárhagsáætlun næsta árs vegna fræðslu- og uppeldismála með breytingum á milli ára og farið yfir beiðnir um viðbótarfjármagn inn í málaflokka vegna tækja- og búnaðarkaupa. Fræðslunefnd leggur áherslu á að unnar séu áætlanir um endurbætur á búnaði og að skýr forgangsröðun sé til staðar varðandi endurbætur á húsgögnum og tækjabúnaði til kennslu. Horft sé til þess að unnin sé fjögurra ára áætlun þannig hægt sé að áætla fjármagn til næstu ára sem dugar til þess að aðstaða sé viðunandi.
Samþykkt samhljóða | | |
|