Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 345

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
26.02.2026 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Skúli Hreinn Guðbjörnsson formaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Garðar Freyr Vilhjálmsson varaformaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri
Lagt til að máli nr. 2602034 - Styrkvegir 2026, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 14.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal
Rætt um stöðu mála við lokafrágang Íþróttamiðstöðvarinnar í Búðardal en mannvirkið verður vígt laugardaginn 28. febrúar n.k.
2. 2602005 - Ræstingar fyrir Dalabyggð
Rætt um stöðu samnings um ræstingar í Auðarskóla og Stjórnsýsluhúsi en 3 ár verða liðin þann 31. júlí 2026 frá því samningurinn var gerður í kjölfar verðkönnunar. Heimilt er að framlengja samninginn um 1 ár í senn að hámarki tvisvar sinnum.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ræða við verktaka um framlengingu skv. ákvæðum í núverandi samningi.
3. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla
Rætt um stöðu samnings um rekstur mötuneytis Auðarskóla en 3 ár verða liðin þann 31. júlí 2026 frá því samningurinn var gerður í kjölfar útboðs. Heimilt er að framlengja samninginn um 1 ár í senn að hámarki tvisvar sinnum.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ræða við verktaka um framlengingu skv. ákvæðum í núverandi samningi.
4. 2602012 - Umsagnarleyfi um tækifærisleyfi Lionsklúbbur Búðardals kótilettukvöld
Sýslumaðurinn á Vesturlandi óskar eftir umsögn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga á kótilettukvöldi sem halda á þann 21. mars n.k. með vísan til 17. gr. laga nr. 85/2007.

Samkvæmt 28. gr. lögreglusamþykktar Dalabyggðar nr.375/2016 skal aldurstakmark á dansleiki og skemmtanir innan Dalabyggðar miðast við fæðingarár, eða þá sem verða 18 ára á árinu.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við veitingu tækifærisleyfis til áfengisveitinga í Dalabúð.
5. 2602031 - Vatnsveita
Rætt um stöðu og fyrirkomulag á afhendingu á köldu vatni.
Byggðarráð samþykkir, áður en hugað verði að skilgreiningu á veitusvæði, að skoðað verði með afhendingaröryggi/þol m.v. fjölda núverandi notenda.
6. 2406029 - Félagsheimilið Tjarnarlundur
Kynnt framkomið erindi varðandi framtíð Félagsheimilisins Tjarnarlundar.
Byggðarráð samþykkir að bjóða fulltrúum hópsins sem um ræðir á næsta fund byggðarráðs.
7. 2602019 - Samstarfssamningar við nágranna sveitarfélög
Rætt um stöðu gildandi samstarfssamninga við nágranna sveitarfélög.
Byggðarráð samþykkir að kanna jarðveginn fyrir auknu samstarfi á ákveðnum sviðum á Vesturlandsvísu og felur sveitarstjóra að opna á samtalið í gegnum Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi.
8. 2601020 - Búseturúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda
Framlagður samningur við BOFS um fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir sem búsett eru utan heimilis á árinu 2026.
Byggðarráð staðfestir framkomin samning.
9. 2602017 - Starfsmannamál
Rætt um starfsmannamál.
10. 2602018 - Laun og launakjör kjörinna fulltrúa
Rætt um launakjör kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn Dalabyggðar og nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins.
Samþykkt að vísa til vinnufundar sveitarstjórnar.
11. 2601023 - Niðurfærsla viðskiptakrafna
Kynnt tillaga um að varúðarniðurfærsla vegna útistandandi viðskiptakrafna verði hækkuð um 4,9 millj.kr. frá því sem nú er vegna útistandandi krafna í lok árs 2025 og með t.t. þeirra afskrifta sem grípa þurfti til á árinu 2025.
Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu.
12. 2602030 - Ársreikningur Dalabyggðar 2025
Kynnt staða mála á vinnu við gerð ársreiknings Dalabyggðar fyrir árið 2025.
13. 2602034 - Styrkvegir 2026
Kynnt tillaga að umsókn Dalabyggðar í styrkvegasjóð 2026.
Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:30 

Til bakaPrenta