| |
1. 2201044 - Rekstur Silfurtúns 2022 | Öll rými eru fullsetin og 2 á biðlista eftir hjúkrunarrýmum og 4 eftir hvíldarinnlögnum. Það vantar tvo starfsmenn í föst störf og sex í afleysingar. Rætt um mönnun vegna veikindaforfalla. Rætt um þörf fyrir húsvörð.
| | |
|
2. 2204015 - Skýrsla um Silfurtún | |
Farið yfir skýrslu Vinnueftirlitsins, tímafresti og útbætur. | | Einar Jón Geirsson vék af fundi kl. 11:10.
| |
|
3. 2204020 - Umsókn um framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2022 | |
Einnig verði sótt um styrk til að bæta vinnuaðstöðu starfsmanna. Með þeirri breytingu samþykkir stjórnin umsóknina og leggur til við sveitarstjórn að hún verði staðfest. | | |
|
| |
4. 2110023 - Samstarf um rekstur öldrunarheimilis. | Til stendur að funda með heilbrigðisráðuneytinu í næstu viku. Lagt til að stjórnir Silfurtúns og Barmahlíðar hittist á fundi í byrjun maí. | | |
|