| |
1. 2007004 - Fyrirspurn um lóð | |
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og óskar eftir frekari gögnum frá umsóknaraðila um umfang og útfærslu á framkvæmdinni. | | |
|
3. 2008010 - Skógrækt á jörðinni Ásgarði í Hvammssveit | |
Með vísun í 4. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi er umrædd framkvæmd leyfisskyld sem felur í sér að leita þarf umsagnar viðeigandi stofnana. Auk þess er þörf á samþykki eigenda aðliggjandi jarða. Afgreiðslu erindisins er frestað þar til niðurstaða úr stjórnsýslukæru liggur fyrir. | | |
|
4. 1911028 - Undirbúningur íþróttamannvirkja í Dalabyggð | |
Fyrirhuguð uppbygging á íþróttamannvirkjum (íþróttahús og sundlaug) við Dalabúð og Auðurskóla mun gjörbylta aðstöðu til íþróttaiðkunar í tengslum við skólastarfsemi í Búðardal. Þar sem ekkert deiliskipulag liggur fyrir á svæðinu mælist skipulagsnefnd til að sveitarstjórn samþykki að unnin verði tillaga að deiliskipulagi, í samræmi við 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
5. 2007002 - Deiliskipulag í landi Sólheima | |
Nefndin leggst ekki gegn því að hafin verði vinna að nýju deiliskipulagi í landi Sólheima en bendir á að nýtt deiliskipulag tekur ekki gildi fyrr en að breyting á aðalskipulagi hefur öðlast gildi. | | |
|
6. 2008008 - Ný jörð úr landi Sælingsdal, L137739 | |
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin skv. 13. gr. jarðalaga. | | |
|
7. 2002024 - Útivistarskógur í landi Fjósa | |
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að óskað verði eftir skógræktarráðgjafa frá Skógræktinni í tengslum við fyrirhugaðan útivistarskóg. | | |
|
8. 2008018 - Afmörkun lóðar Kvennabrekkukirkju 137949 og nýskráning lóðar undir kirkjugarð | |
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóðanna. | | |
|
9. 2009001 - Stækkun á veiðihúsi Veiðifélags Neðri Haukadalsár | |
Nefndin felur byggingarfulltrúa að ganga frá málinu. | | |
|
10. 2009002 - Ólafsdalur - umsókn um byggingarleyfi | |
Nefndin felur byggingarfulltrúa að ganga frá málinu og fer fram á að leitað verði umsagnar hjá MAST vegna miltisbrands á svæðinu. | | |
|
11. 2005016 - Iðnaðarsvæði við Iðjubraut í Búðardal | |
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 22. júní sl. að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir athafna- og iðnaðarsvæði við Iðjubraut. Tillagan var auglýst frá 2. júlí til 14. ágúst og bárust fimm umsagnir frá Minjastofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Samgöngustofu og Heilbrigðiseftirliti Vesturlands.
Minjastofnun gerir ekki athugasemd við tillöguna en bendir á að engin fornleifaskráning liggi fyrir á svæðinu. Skipulagsnefnd áréttar að fyrirhugað er að fullnægja þessum skilyrðum og verði skráningu lokið og minjar skráðar í greinargerð og á uppdrátt þegar sveitarstjórn tekur málið fyrir.
Samgöngustofa gerir engar athugasemdir við tillöguna.
Umhverfisstofnun bendir á að innan skipulagssvæðisins er votlendi sem fellur undir a. lið 1. mgr. 61. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Stofnunin bendir á mikilvægi þess að fram komi í greinargerð að innan skipulagssvæðisins er votlendi sem fellur undir 61. gr. náttúruverndarlaga. Þessum skilyrðum hefur verið uppfyllt þó svo að nefndin telji að votlendi innan skipulagssvæðisins sé ekki fyrir hendi. Það sem fram kemur á vistfræðikorti NÍ er ekki í samræmi við raunverulega vistgerð svæðisins í dag.
Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúi fái líffræðing/náttúrufræðing til að gera úttekt á svæðinu. Umhverfisstofnun telur að umhverfisáhrif tillögunnar verði staðbundin og líkt og fram kemur í umsögn stofnunarinnar verður ávallt gætt að því að spilla gróðri og þar með vistgerðum sem minnst við framkvæmdir.
Náttúrufræðistofnun Íslands gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gerir ekki athugasemd við tillöguna en bendir á að vegna nálægðar athafna- og iðnaðarsvæðis við dvalarheimili aldraðra og íbúðarhús þurfi að huga að því hvers konar starfsemi komi á þær lóðir sem næstar eru. Tekið hefur verið tillit til þessara ábendinga í greinargerð.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að senda Skipulagsstofnun deiliskipulagið til yfirferðar og auglýsing um gildistöku þess birt í B-deild Stjórnartíðinda að uppfylltum skilyrðum er varða skráningu fornleifa og úttekt á vistgerð svæðsins. | | |
|
| |
2. 2003042 - Hróðnýjarstaðir - breyting á aðalskipulagi vegna vindlundar | |
Lagt fram til kynningar. | | |
|
12. 2006009 - Ábending frá Svavari Garðarssyni vegna aðalskipulags. | |
Nefndin tekur þessum ábendingum fagnandi og telur þær gott innlegg í hugmyndabanka skipulagsvinnunnar í tengslum við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. | | |
|
13. 2007009 - Staðir í Dalabyggð með skráðar miltisbrunasýkingar eða rökstuddan grun um þær | |
Nefndin leggur til að umrædd skráning verði skoðuð í tengslum við vinnu við endurskoðun aðalskipulagsins. | | |
|