| |
Kristján Ingi Arnarsson umsjónarmaður framkvæmda sat fundinn undir dagskrárlið 1. Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari og Magnína Kristjánsdóttir skrifstofustjóri sátu fundinn undir dagskrárlið 1 og 2.
| 1. 2207019 - Fjárhagsáætlun 2022 - Viðauki VI | |
Tekjur hækka og mótframlag Jöfnunarsjóðs lækkar á móti. Heilda hækkun tekna er 10.434.000
Til lækkunar: launakostnaður félagsheimila (Árblik), launakostnaður vegna íþróttamannvirkja, starfsmannabifreið heimaþjónustu, raforkukostnaður íþróttamannvirkja. Samtals: -8.295.000 kr.-
Til hækkunar: Fjárhagsaðstoð, vegna barna utan lögheimilis, snjómokstur, framlag vegna tónlistarskólanáms utan héraðs, laun á Silfurtúni og fráveitukerfi. Samtals: 31.800.000 kr.-
Farið yfir áætlun og stöðu vegna framkvæmda 2022.
Rætt um framkvæmdir við gatnagerð að Iðjubraut og Lækjarhvammi. Lagt til að gerð verði verðkönnun í tvö verk vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Samþykkt samhljóða. | Fjárhagsáætlun 2022-2025 - Viðauki 6..pdf | | |
|
2. 2208006 - Fjárhagsáætlun 2023 | |
Rætt um upphaf og verklag við vinnu fjárhagsáætlunar 2023. | Forsendur fjárhagsáætlana 2023-2026.pdf | | |
|
3. 2207024 - Uppsögn á samningi um félagsþjónustu | |
Samningur við Borgarbyggð er í gildi til áramóta.
Fyrirséð að kostnaður við þennan þjónustulið muni hækka.
Lagt til að samtal verði tekið við til að mynda aðliggjandi sveitarfélög.
Sveitarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
4. 2111001 - Styrkumsókn vegna jólatónleika í Dalabúð | |
Lagt til að veita 50% afslátt af leigu samkvæmt verðskrá vegna jólatónleika.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
5. 2204016 - Sælingsdalslaug 2022 | |
Út ágúst verði opið frá kl.12-18 alla daga.
Lagt til að í september verði viðhöfð sama opnun og sl. vetur, þ.e. mánudaga frá kl.17:00 til 21:00 og miðvikudaga frá kl.17:00 til 21:30. Opið er annan hvorn laugardag frá kl. 10:30 til 15:30.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
Kristján Ingi Arnarsson umsjónarmaður framkvæmda sat fundinn undir dagskrárlið 6.
| 6. 2207011 - Flutningur dýrahræja til förgunar - útboð | Afla þarf frekari upplýsinga um forsendur og útfærslu í samræmi við lög og reglugerðir. Sveitarstjóra falið að vinna áfram að málinu. Lagt til að málinu sé vísað til næsta fundar sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
7. 2101043 - Lóðarleigusamningar í Dalabyggð - uppfærðir | |
Lóðaleigusamningur samþykktur samhljóða. | undirrtiaður uppdráttur.pdf | Lóðaleigusamningur Bakkahvammur 15.pdf | | |
|
8. 2001030 - Eignarhald félagsheimila | |
Lagt til að samið verði við fasteignasöluna Domus Nova varðandi sölu á félagsheimilinu Staðarfelli.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
9. 2205017 - Fjallskil 2022 | |
Fjallskilanefnd Fellsstrandar hefur skilað inn leiðréttum gögnum. | Fjallskil 2022 Fellsströnd b.pdf | | |
|
10. 2204014 - Afnot af svæði fyrir Brekkuskóg | |
Byggðarráð fer yfir drögin og vísar þeim til næsta fundar sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
11. 2208007 - Sveitarfélög - áhrif loftslagsbreytinga og aðlögunaraðgerðir | |
Lagt fram til kynningar. | Aðlögun að breyttum heimi ? hefjum samtalið.pdf | | |
|
|