| |
| 1. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal | |
Lýðheilsufulltrúi fór yfir stöðu mála. Vígsluhátíð gekk vel laugardaginn 28.febrúar sl. og var mæting framar vonum. Sundlaug og heitir pottar komast í virkni upp úr miðjum mars mánuði og verður útisvæðið allt tekið í notkun á sama tíma. Æfingar eru komnar á fullt og ánægjulegt að frá fyrsta degi sé íþróttasalurinn kominn í fulla notkun. Talað um umgengnisreglur Íþróttamiðstöðvarinnar og þörfina fyrir að heimfæra átak varðandi umgengni og virðingu fyrir búnaði í aðrar einingar sveitarfélagsins sbr. grunn- og leikskóla og Dalabúð. Lýðheilsufulltrúi ásamt forráðamönnum skólans munu leiða þá vinnu með því að senda skilaboð út í samfélagið. | | |
|
| 2. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026 | |
Fyrirlögn á stöðu- og framvindupófum hófst í Auðarskóla í dag, þriðjudaginn 3.mars. Skíðaferð í Tindastól fyrir 5. til 10. bekk verður farin í næstu viku. 1. til 4. bekkur fer síðan í dagsferð yfir á Strandir til að fara á gönguskíði. Árshátíð Auðarskóla verður haldin 26. mars. Starfandi skólastjóri fór yfir stöðu mála í ýmsu er lítur að innra starfi skólans. | | |
|
| 3. 2601011 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2026 | |
Aðstoðarleikskólastjóri fór yfir stöðu mála í leikskólanum og gengur daglegt starf vel í skólanum. Nú eru 28 börn á leikskólanum. Leikskólinn tekur þátt í árshátíð Auðarskóla þann 26. mars. | | |
|
| 4. 2305001 - Skólaþjónusta | |
| Farið yfir stöðu mála, fræðslunefnd styður við þá nálgun sem viðhöfð hefur verð undanfarið í grunnskólanum. | | |
|