| |
1. 1903025 - Fjárhagsáætlun 2020-2023 | |
Fjárhagsáætlun hefur verið tekin fyrir í fræðslunefnd og menningarmálanefnd. Umhverfis- og skipulagsnefnd og atvinnumálanefnd taka hana fyrir í þessari viku.
Byggðarráð leggur til að íbúafundur þar sem fjárhagsáætlun verður kynnt verði 7. nóvember. | | |
|
2. 1910004 - Fjárhagsáætlun 2019 - viðsuki III | |
Samþykkt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun um eftirfarandi: Framkvæmdir við Laugaskóla, lækki um 7 m.kr. Fráveita, útrás, lækki um 2,5 m.kr. Vatnsveita Laugum, lækki um 4 m.kr. Framkvæmdir við götur, lækki um 1,5 m.kr. Stofnframlag vegna bygginga á vegum óstofnaðrar húsnæðissjálfseignarstofnunar verði 11 m.kr. Stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar, eiginfjárframlag verði 3 m.kr. Jafnframt verði veitt heimild til að taka framkvæmdalán frá Íbúðalánasjóði að upphæð 19 m.kr. | | |
|
3. 1809013 - Laugar í Sælingsdal, staða og framtíð | |
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að hitaveita á Laugum verði rekin innan Dalaveitna ehf. Samþykkt samhljóða. | | |
|
4. 1809019 - Húsnæðismál á landsbyggðinni - Tilraunaverkefni | |
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn um að gengið verði til samninga við Hrafnshól ehf, um byggingu fimm íbúða raðhúss þar sem óstofnuð sjálfseignarstofnun eigi þrjár íbúðir. Upphæð samnings er kr. 88.500.000. Eftirfarandi fyrirvarar verði gerðir: 1. Að húsnæðissjálfseignarstofnunin fái 24% stofnframlag. 2. Að húsnæðissjálfseignarstofnunin fái lánafyrirgreiðslu frá Íbúðalánasjóði. 3. Að breyting á deiliskipulagi í Bakkahvammi verði staðfest. Samþykkt samhljóða. | | |
|
5. 1901043 - Skólaakstur 2019 - 2022 | Samþykkt að óska eftir fundi með verktaka sem er með leið 2. | | |
|
6. 1907001 - Vesturbraut 20 | |
Samningur og afsal verði lagt fyrir næsta fund sveitarstjórnar. | | |
|
7. 1904007 - Útleiga á íbúð fyrir aldraða og öryrkja Gunnarsbraut 11 ? 2019 | |
Fært í trúnaðarbók | | |
|
8. 1910007 - Styrkbeiðni Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu - Haustfagnaður 2019 | Samþykkt samhljóða að styrkja haustfagnað Félags sauðfjárbænda með því að fella niður leigu á Dalabúð og láni á skjávarpa. | Ósk um styrk frá Dalabyggð.pdf | | |
|
| |
|