Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 347

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
30.03.2026 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Skúli Hreinn Guðbjörnsson formaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Garðar Freyr Vilhjálmsson varaformaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2603010 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts 2026
Framlögð umsókn um styrk vegna greiðslu fasteignaskatts.
Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.
2. 2603014 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts
Framlögð umsókn um styrk vegna greiðslu fasteignaskatts.
Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.
3. 2603012 - Afskriftarbeiðni
Kynnt beiðni Sýslumannsembættisins varðandi afskriftir krafna.
Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni.
4. 2603020 - Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega endurskoðun
Rætt um gildandi reglur og fyrirkomulag á garðslætti fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega.
Sveitarstjóra falið að koma með tillögu að uppfærðum reglum og fyrirkomulagi þessarar þjónustu á næsta fund byggðarráðs.
5. 2602015 - Samræmdar greiðslur til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi
Kynntar tillögur að samræmdum greiðslum til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi.
Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi tilnefndi fagaðila frá hverju sveitarfélagi til að yfirfara gjaldskrár fyrir greiðslur til stuðningsfjölskyldna og koma fram með tillögu að samræmdri gjaldskrá fyrir svæðið. Verkefnahópurinn hittist í alls 8 skipti, þar sem skoðað var hvernig greiðslum til stuðningsfjölskyldna sé háttað hjá misfjölmennum sveitarfélögum á landinu.

Tillaga verkefnahópsins er eftirfarandi:

1. flokkur: 50.634 kr. pr. sólarhring
2. flokkur: 43.039 kr. pr. sólarhring
3. flokkur: 32.912 kr. pr. sólarhring
4. flokkur 25.317 kr. pr. sólarhring

Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
6. 2602014 - Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Framlögð umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags.
Byggðarráð samþykkir framkomna umsókn.
7. 2501029 - Skammtímadvöl barna
Kynnt staða mála varðandi skammtímadvöl barna á Vesturlandi en sveitarfélög á Vesturlandi undirbúa stofnun félags um skammtímavistun fyrir börn í húsnæði Holts í Borgarbyggð. Markmið verkefnisins er að taka saman gögn fyrir sveitarstjórnir til að taka endanlega ákvörðun um stofnun félagsins.
Næsta skref er að fá verktaka til að styðja við verkefnisstjóra og verkefnisstjórn, rýna fyrirliggjandi gögn og klára þau í samstarfi við verkefnisstjóra.
Áætlað er að verkefninu verði lokið 15. apríl þannig að sveitarfélögin getið tekið ákvörðun um stofnun félagsins, og Þroskahjálp geti hafið vinnu við breytingar á húsnæðinu.
Gengið er út frá því að kostnaður verði um 1.600.000. SSV mun greiða helming upphæðar og hinn helmingur skiptist á milli sveitarfélaga svo 160.000 er þá kostnaðarhluti Dalabyggðar.

Byggðarráð samþykkir aðkomu Dalabyggðar að verkefninu og að framlag Dalabyggðar verði 160.000 kr.

Vísað til staðfestingar í sveitarstjórn Dalabyggðar.
8. 2603003 - Refa og minkaveiði 2026-2028
Rætt um refa- og minkaveiði í Dalabyggð en fyrir liggur að Náttúrufræðistofnun er með í farvatninu nýjan samning til þriggja ára á svipuðum nótum og verið hefur.
Byggðarráð samþykkir aðkomu Dalabyggðar að verkefninu í þeim anda sem um er rætt.
9. 2603017 - Pósthlaupið 2026
Framlagt erindi frá UMF Ólafs pá varðandi samstarf í kringum Pósthlaup 2026.
Byggðarráð samþykkir að gert verði samkomulag við umf. Ólaf pá um aðkomu Dalabyggðar að þessu jákvæða verkefni.
10. 2603019 - Söfnun fjögurra Holter hjartasírita og augnlampa
Framlagt erindi frá Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem stendur nú fyrir augnlampa fyrir heilsugæsluna í Ólafsvík og fjögurra Holter hjartasírita
sem sendir eru um allt starfsvæði HVE þegar á þarf að halda.

Byggðarráð sér sér ekki fært að verða við framkominni beiðni en óska Hollvinasamtökum góðs gengis í sínum mikilvægu verkefnum.
11. 2501001 - Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal
Rætt um stöðu mála í framhaldi að aukinni aðkomu Byggðastofnunar að undirbúningi verkefnisins.
Sveitarstjóri kynnti stöðu mála.
Jóhanna María Sigmundsdóttir og Kristján Ingi Arnarsson verkefnastjórar sátu fundinn undir lið 12.
12. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026
Rætt um hlutverk og skyldur Dalabyggðar varðandi undirbúning og utanumhald í tengslum við almyrkva.
Almyrkvi á sólu mun ganga yfir Vesturland 12. ágúst 2026. Um er að ræða sjaldgæfan náttúruatburð sem vekur mikla athygli bæði innanlands og erlendis. Í Dalabyggð mun þessi atburður sjást vel frá Skógarströnd, Fellsströnd og Skarðsströnd.
Sveitarfélagið tekur þátt í samráðsvettvangi Vesturlands vegna almyrkvans og mun leggja megin áherslu á öryggismál í samstarfi við viðbragðsaðila og Vegagerðina. Þjónusta við gesti s.s. gisting, veitingar, salerni o.s.frv. verða á forræði þeirra sem vilja bjóða upp á hana og ber að fara eftir reglum þar um.

Byggðarráð þakkar þeim Jóhönnu Maríu og Kristjáni Inga fyrir þeirra innlegg og lýsir ánægju með hvað nú þegar er búið að gera varðandi þann undirbúning sem að sveitarfélaginu mögulega snýr í því verkefni sem um ræðir.
Á fundinn mættu í gegnum fjarfundarbúnað Ingi Ólafsson og Halla Steinólfsdóttir til viðræðna við byggðarráð.
13. 2406029 - Félagsheimilið Tjarnarlundur
Í framhaldi af umræðum á síðasta fundi byggðarráðs þar sem samþykkt var að bjóða fulltrúum hóps sem lýst hefur vilja til að koma að rekstri Félagsheimilisins Tjarnarlundar eru mætt þau Ingi og Halla á fundinn.
Byggðarráð þakkar þeim Inga og Höllu fyrir samtalið og væntir gagna frá þeim varðandi mögulega starfsemi í félagsheimilinu fyrir næsta fund byggðarráðs í lok apríl.
14. 2602005 - Ræstingar fyrir Dalabyggð
Á síðasta fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
"Rætt um stöðu samnings um ræstingar en 3 ár verða liðin þann 31. júlí 2026 frá því samningurinn var gerður í kjölfar útboðs. Heimilt er að framlengja samninginn um 1 ár í senn að hámarki tvisvar sinnum.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ræða við verktaka um framlengingu skv. ákvæðum í núverandi samningi."

Sveitarstjóri sagði frá stöðu viðræðna við verktaka.

Sveitarstjóra falið að ræða við verktaka í anda umræðu á fundinum.
15. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla
Á síðasta fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:

"Rætt um stöðu samnings um rekstur mötuneytis Auðarskóla en 3 ár verða liðin þann 31. júlí 2026 frá því samningurinn var gerður í kjölfar útboðs. Heimilt er að framlengja samninginn um 1 ár í senn að hámarki tvisvar sinnum.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ræða við verktaka um framlengingu skv. ákvæðum í núverandi samningi."

Sveitarstjóri sagði frá stöðu viðræðna við verktaka.

Sveitarstjóra falið að ræða við verktaka í anda umræðu á fundinum.
16. 2602016 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki I
Framlögð tillaga að Viðauka I við fjárhagsáætlun Dalabyggðar árið 2026.
Einnig rætt um framkvæmdaáætlun ársins 2026.

Í tillögunni felast breytingar á rekstrarliðum til kostnaðarhækkunar í A-sjóði um 23.850 m.kr.

Áætluð afkoma A og B hluta á árinu 2026 er um 16.315 m.kr. í rekstrartap.

Samþykkt samhljóða og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.
Viðauki_1.pdf
17. 2602030 - Ársreikningur Dalabyggðar 2025
Sveitarstjórn afgreiddi ársreikning Dalabyggðar fyrir árið 2025 við fyrri umræðu á 267. fundi sínum þann 12. mars sl.
Rætt um ársreikning 2025.


18. 2602017 - Starfsmannamál
Rætt um starfsmannamál.
19. 2602018 - Laun og launakjör kjörinna fulltrúa
Rætt um launakjör kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn Dalabyggðar og nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins og lögð fram tillaga að breytingum.


Samþykkt að vísa til afgreiðslu sveitarstjórnar.
20. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal
Rætt um stöðu mála við lokafrágang Íþróttamiðstöðvarinnar í Búðardal
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00 

Til bakaPrenta