| |
1. 1909027 - Skólastarf Auðarskóla 2019-2020 | |
Skólastjóri fór yfir "skólastarf á tímum Covid-19". Faraldurinn hafði mikil áhrif á skólastarfið. Heppnaðist að mörgu leiti vel en yrði gert öðruvísi á margan hátt ef e-ð. þessu líkt gerðist aftur. Samstarf við heimilin var mjög gott og fjarkennsla gekk í flestum tilvikum vel. Margt sem hefur tafist s.s. stoðþjónusta og atburðir féllu niður. Þá hefur innra matið tafist og það verður klárað í haust. | | |
|
2. 1901032 - Farsímanotkun nemenda á skólatíma | Skólastjóri tók ákvörðun um að halda áfram eftir 1. maí út skólaárið. Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að halda því áfram að farsímanotkun verði ekki leyfð á skólatíma. | | |
|
3. 2005008 - Fjárhagsáætlun 2021 - 2024 | |
Fræðslunefnd leggur áherslu á að fylgja eftir þeim framkvæmdum sem gert er ráð fyrir í skólastefnunni. | | |
|
4. 2005009 - Jafnréttisáætlun - Kynjasamþætting | |
Fræðslunefnd horfir til kynjasamþættingar við vinnu sína og mun gæta að henni í þeim tillögum og málum sem lögð eru fram þ.á.m. tillögum vegna fjárhagsáætlunar næsta árs. Samþykkt samhljóða. | | |
|
5. 2006003 - Merkingar á skólabílum | |
Fræðslunefnd hafnar beiðni um að mæla með undanþágu vegna merkinga á skólabílum. Merkingar verði í samræmi við það sem tiltekið er í útboðsskilmálum. Samþykkt samhljóða.
| | |
|
6. 2002042 - Framhaldsskólanám, mögulegt samstarf við Menntaskóla Borgarfjarðar | |
Lagðar fram tillögur að tveimur könnunum. Samþykkt samhljóða að senda könnun vegna framhaldsskóladeildar út til forráðamanna nemenda í 8. - 10. bekk og að könnun um námsaðstöðu verði sett á heimasíðu Dalabyggðar.
| | |
|
7. 2001056 - Íþrótta- og tómstundastefna Dalabyggðar | Formanni falið að ganga frá stefnunni í samræmi við umræður á fundinum. Stefnan verður síðan sett í umsagnarferli. Samþykkt samhljóða. | | Hlöðver Gunnarsson vék af fundi eftir 7. dagskrárlið.
| |
|
8. 2003011 - Auglýst eftir sveitarfélögum til þátttöku í samstarfsverkefni | |
Lagt fram til kynningar. | | |
|
| |
9. 2005037 - Boðun um ytra mat Auðarskóla | |
Ytra mati er fagnað af Auðarskóla. Í matinu felast ýmis tækifæri. | | |
|