Til bakaPrenta
Dalaveitur ehf - 45

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
26.05.2023 og hófst hann kl. 16:45
Fundinn sátu: Skúli Hreinn Guðbjörnsson formaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir varamaður,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2305022 - Ársreikningur Dalaveitna 2022
Ársreikningur Dalaveitna ehf. fyrir árið 2022 lagður fram til umræðu og afgreiðslu.
Rekstrartekjur félagsins á árinu 2022 námu 10,3 millj. kr. og hafa þær aukist um 1,2 millj. kr. frá fyrra ári eða um 13,5 %.
Tap varð á rekstri félagins á árinu að fjárhæð 9,0 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi (2021; 10,5 millj. kr.) og eigið fé félagsins í árslok var neikvætt um 33,5 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

Ársreikningur 2022 samþykktur samhljóða.
2. 2305019 - Dalaveitur 2023, staða og horfur
Rætt um stöðu Dalaveitna ehf. í ljósi útkomu rekstrar á árinu 2022 og undanfarin ár.
Rekstur Dalaveitna ehf. er ekki sjálfbær, liggja þar ýmsar ástæður að baki, m.a. eru tengipunktar ljósleiðara mun færri en í upphaflegum áætlunum, stofnkostnaður ljósleiðarakerfis varð langt umfram sömu áætlanir og þróun fjármagnskostnaðar hefur þróast á mun verri veg en í upphaflegum áætlunum. Gjaldsskrá þarf að yfirfara hvað ljósleiðarakerfi varðar og koma þarf á gjaldskrá varðandi hitaveituhluta Dalaveitna ehf.
Rekstrarhæfi Dalaveitna ehf. nú er tryggt með framlagi eigandans, Dalabyggðar, og vinna er hafin við að tryggja sjálfbærni rekstrar sbr. framangreint.

Stjórn Dalaveitna felur sveitarstjóra að gera tillögu að gjaldskrá fyrir hitaveituna sem undir fyrirtækið heyrir sem og að gera tillögur að aðgerðum til að ljósleiðarahlutinn verði sjálfbær.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta