Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 339

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
03.09.2025 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Skúli Hreinn Guðbjörnsson formaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir varamaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri atvinnu- kynningar- og menningarmála
Lagt til að eftirfarandi málum verði bætt á dagskrá:
2509003 - Erindi frá nemendum í 1.-3. bekk Auðarskóla, verði dagskrárliður 14.
2205025 - Frístundaakstur, verði dagskrárliður 15.

Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2505016 - Fjárhagsáætlun 2026-2029
Rætt um yfirstandandi vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar Dalabyggðar fyrir árin 2026 - 2029. Rætt um áherslur fyrir vinnufundi kjörinna fulltrúa og starfsmanna sem haldinn verður 9. september n.k.
Vinna við fjárhagsáætlun 2026-2029 er hafin.
Vinnufundur sveitarstjórnar með starfsfólki verður þriðjudaginn 9. september nk.
2. 2509002 - Beiðni um rekstrarstyrk vegna 2026
Framlögð beiðni um rekstrarstyrk frá Stígamótum fyrir árið 2026.
Byggðarráð þakkar erindið en getur ekki orðið við beiðninni að þessu sinni.
3. 2508018 - Fjárhagsáætlun 2025 - staða á rekstri eftir 6 mánuði
Kynnt staða einstakra bókhalds- og rekstrarliða m.v. fyrstu 6 mánuði ársins 2025.
4. 2508017 - Fjárhagsáætlun 2025 - Viðauki IV (4)
Kynnt tillaga að Viðauka IV (4) við fjárhagsáætlun ársins 2025.
Rekstrarkostnaður A-hluta
Samtals tekjuaukning A-sjóðs kr. 8.178.000

Rekstrarkostnaður B-hluta
Samtals tekjuaukning B-sjóðs kr. 3.150.000

Samtals tekjuaukning í A- og B hlutum kr. 11.328.000 til hækkunar á handbæru fé.

Eignfærslur
Samtals eignfærslur kr. 9.710.000 til lækkunar á handbæru fé.

Samþykkt samhljóða.
Viðauki IV (4) 2025.pdf
Kristján Ingi Arnarsson, umsjónarmaður framkvæmda kemur inn á fundinn undir dagskrárlið 5.
5. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal
Farið yfir stöðu framkvæmda við íþróttamiðstöðina og lagðar fram fundargerðir verkfunda.
Kristján Ingi fer yfir stöðuna með byggðarráði.
6. 2508012 - Erindi vegna Eiríksstaða
Framlagt erindi frá staðarhöldurum á Eiríksstöðum varðandi aðstöðumál.
Byggðarráð þakkar erindið en sér ekki fært að verða við því að svo stöddu.
7. 2409018 - Samþykkt um gæludýrahald í Dalabyggð
Samþykktin fór til fyrri umræðu hjá sveitarstjórn þann 21. ágúst sl. Í framhaldi var hún send ráðuneytinu sem staðfesti að Dalabyggð hafi brugðist við þeim athugasemdum sem ráðuneytið setti fram í vinnuferlinu við gerð samþykktarinnar.
Málið lagt fram til umræðu í byggðarráði m.a. með tilliti til næstu fjárhagsáætlunar.
Lagt til við byggðarráð að lokinni umfjöllun verði málið sent til seinni umræðu hjá sveitarstjórn.

Málið sent til seinni umræðu hjá sveitarstjórn eftir umræður í byggðarráði.

Samþykkt samhljóða.
SAMÞYKKT um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Dalabyggð_fyrri-umræða..pdf
8. 2504020 - Fjallskil 2025
Farið yfir þau gögn sem hafa skilað sér frá fjallskilanefnd eftir að sveitarstjórn fundaði þann 21.ágúst sl.
Fundargerð fjallskilanefndar Laxárdals lögð fram til afgreiðslu

Allar fjallskilanefndir hafa nú skilað inn gögnum. Lagt til að fundargerð og álagning verði staðfestar.

Samþykkt samhljóða.
9. 2502003 - Umsókn vegna styrkvega 2025
Kynnt framlag til styrkvega á árinu 2025 sem og þau samskipti sem sveitarstjóri hefur átt við Vegagerðina um það málefni á undanförnum vikum. Framlag til styrkvega í Dölum á árinu 2025 er 3,5 milljónir króna.
Sveitarstjóra falið að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum.
Kristján Ingi Arnarsson, umsjónarmaður framkvæmda kemur inn á fundinn undir dagskrárlið 10.
10. 2508005 - Frístundahús og lóðir að Laugum í Sælingsdal
Varðar lóðir fyrir sumarhús í landi Lauga í Sælingsdal og samskipti við lóðarhafa og meðeiganda Dalabyggðar að landinu.
Sveitarstjóra og umsjónarmanni framkvæmda falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
11. 2505022 - Samningur um barnaverndarþjónustu
Farið yfir stöðu mála í málefnum barnaverndar. Núverandi heimild Dalabyggðar til að vera sjálfstæð í málaflokknum gildir til 15. nóvember n.k. Kynnt staða mála í viðræðum um mögulega aðild Dalabyggðar að barnaverndarþjónustu en skv. breytingum sem gerðar voru árið 2023 þurfa barnaverndarþjónustur að vera fyrir 6000 manna þjónustusvæði að lámarki.
Sveitarstjóri kynnti stöðu mála.

Sveitarstjóra og verkefnastjóra fjölskyldumála falið að vinna málið áfram.
12. 2506018 - Umsókn um lóð Lækjarhvammur 22
Lóðahafi hefur skilað lóð að Lækjarhvammi 22
Samþykkt samhljóða.
13. 2301067 - Starfsmannamál
Rætt um starfsmannamál.
Staða mála kynnt.
14. 2509003 - Erindi frá nemendum í 1.-3. bekk Auðarskóla
Borist hefur erindi frá nemendum í 1.-3. bekk Auðarskóla þar sem þau vekja máls á vöntun betri merkonga á gangbrautir í Búðardal. M.a. er vísað til þess að þau þurfi að ganga yfir Miðbraut til að komast á bókasafnið og þar vanti merkingar.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og mun leita leiða til að bæta úr stöðunni hið fyrsta.
Erindi_1-3bekkur_Auðarskóli_gangbrautir.pdf
15. 2205025 - Frístundaakstur
Endurskoða þarf samstarfssamning milli Undra og Dalabyggðar um frístundaakstur svo að hann gildi þar til ný íþróttamannvirki komast í notkun í upphafi næsta árs.
Sveitarstjóra falið að gera viðauka sem gerir ráð fyrir frístundaakstri þar til ný íþróttamannvirki verða tekin í notkun.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30 

Til bakaPrenta