| |
Ómar Valdimarsson, forstjóri Samkaupa er gestur nefndarinnar undir dagskrárlið 1.
| 1. 2102016 - Stefna atvinnumálanefndar 2021 | |
Nefndin ræðir við Ómar um stöðu verslunarinnar í Búðardal. Rekstur verslana á landsbyggðinni er þungur. Verslunin sjálf í Búðardal lítur vel út í dag. Rætt um vöruúrval, ekki verið að raða inn vörum sem seljast ekki. Ferðmenn hafa gefið landsbyggðarverslunum byr, það varð samdráttur í rekstri í fyrra en þá var m.a. færra um erlenda ferðamenn. Verslunarhegðun íslenskra ferðamanna er öðruvísi. Rætt um fríðindi/afslætti fyrir heimamenn. Í dag er afsláttakort kaupfélaganna og verið að innleiða vildar-app. Skuldbindingin er hjá versluninni - heimamaðurinn getur valið hvar hann verslar þó að verslun sé til staðar. Hiti í umræðunni, þarf að taka allt með í umræðuna. Umræðan má t.d. ekki bitna á starfsfólki í verslunum. Samtalið þarf að vera málefnalegt. Gegnumaksturs-verslun aðila er aukabúgrein fyrir verslanir en ekki minna mikilvæg. Rætt um rafhleðslustöðvar, verið að skoða uppsetningu á ákveðnum stöðum. Nefndin hvetur Samkaup til að nýta stærð sína til að geta boðið upp á nýrri og ferskari vörur í verslunum. Eins að skoða hvort hægt sé að koma á samningum við stærri aðila á svæðinu um vörukaup í gegnum verslunina.
| | |
|
Þórður Már Sigfússon, skipulagsfulltrúi er gestur nefndarinnar undir dagskrárlið 2.
| 2. 2102016 - Stefna atvinnumálanefndar 2021 | |
Þórður fer yfir stöðuna á skipulagi lóða fyrir iðnaðarhúsnæði. Fór til Skipulagsstofnunar í desember, var látið vita að yrði töf vegna forgagnsröðunar verkefna. Von er til að hægt verði að auglýsa skipulagið í B-deild eftir páska. Varðandi íþróttamannvirkin, þá fór það í auglýsingaferli í janúar og fram í febrúar. Bárust fáar umsagnir, engar athugasemdir. Haldinn var kynningarfundur í stjórnsýsluhúsi. Minjavernd búin að taka út svæðið. Málið var síðast tekið fyrir hjá sveitarstjórn og þar samþykkt að senda málið til Skipulagsstofnunar. Gæti einnig legið fyrir fljótlega eftir páska, án þess að fullyrt sé um neitt.
| | |
|
3. 2011018 - Áfangastaðaáætlun 2021-2023 | |
Farið yfir áfangastaðaáætlun og framkvæmdaáætlun fyrir Dalabyggð. | | |
|
4. 2103025 - Markaðsmál - sumar 2021 | |
Áætlun sumarsins kynnt fyrir nefndinni. | | |
|
5. 2101018 - Nýting og möguleikar á aðgerðum stjórnvalda vegna COVID-19 - Könnun | |
Nefndin hvetur atvinnurekendur í Dalabyggð til að skoða þau úrræði sem eru í boði og sækja sér ráðgjöf þar um, má þar m.a. benda á atvinnuráðgjafa SSV og ráðgjöf KPMG. Nefndin mun óskar eftir upplýsingum um fjölda íbúa sem falla undir skilyrði "Hefjum störf". | | |
|