Til bakaPrenta
Sveitarstjórn Dalabyggðar - 260

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
09.10.2025 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir oddviti,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir varaoddviti,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Garðar Freyr Vilhjálmsson aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Sindri Geir Sigurðarson varamaður,
Bjarnheiður Jóhannsdóttir varamaður,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri
Lagt er til að mál nr. 2508003F, fundargerð 144. fundar fræðslunefndar Dalabyggðar, verði tekið á dagskrá og verður dagskrárliður 14.

Aðrir liðir í útsendri dagskrá færist til samkvæmt ofangreindu.

Samþykkt.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2503014 - Forgangsröðun innviðamála í Dalabyggð
Atvinnumálanefnd Dalabyggðar hefur unnið skýrslu um stöðu innviða í Dalabyggð og er hún hér lögð fram til umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn Dalabyggðar.
Sveitarstjórn lýsir ánægju sinni með skýrsluna og vill koma á framfæri þökkum til atvinnumálanefndar, verkefnastjóra og annarra sem að vinnu hafa komið og staðfestir hana með öllum greiddum atkvæðum.

Til máls tóku: Garðar og Bjarki.
Innviðaáætlun_Dalabyggðar_haust2025.pdf
2. 2503006 - Úrgangsþjónusta - útboð
Á 340. fundi byggðarráðs sem haldinn var þann 25. september sl. var farið yfir opnunarskýrslu útboðs á úrgangsþjónustu fyrir Dalabyggð og var sveitarstjóra og umsjónarmanni framkvæmda/verkefnastjóra eigna- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram.



Mat tilboða er lokið og sveitarstjóri fór yfir niðurstöðu matsins og næstu skref.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram.

Til máls tók: Bjarki.
3. 2409018 - Samþykkt um gæludýrahald í Dalabyggð
Til afgreiðslu kemur gjaldskrá um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Dalabyggð í samræmi við samþykkt nr. 1040/2025 sem birt var í B-deild þann 3. október sl.
Sveitarstjórn samþykkir gjaldskrá um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald samhljóða.
GJALDSKRÁ fyrir hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Dalabyggð_til samþ.pdf
B_nr_1040_2025.pdf
4. 2301065 - Ljárskógarbyggð, deiliskipulag frístundabyggðar
Umhverfis- og skipulagsnefnd tók málið fyrir á 158. fundi sínum og var eftirfarandi bókað undir málinu:

"Deiliskipulagið tekur til frístundabyggðar F23. Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti til 14. febrúar 2025 og tekin fyrir og samþykkt í umhverfis- og skipulagsnefnd 4. mars 2025. Tillagan var ekki send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun og er því enn í skipulagsferli. Tillagan er nú tekin fyrir að nýju samhliða óverulegri aðalskipulagsbreytingu vegna afmörkunar F23 með lagfæringum til samræmis við aðalskipulagsbreytinguna.
Deiliskipulagið tekur til frístundabyggðar F23. Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti til 14. febrúar 2025 og tekin fyrir og samþykkt í umhverfis- og skipulagsnefnd 4. mars 2025. Tillagan var ekki send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun og er því enn í skipulagsferli. Tillagan er nú tekin fyrir að nýju samhliða óverulegri aðalskipulagsbreytingu vegna afmörkunar F23 með lagfæringum til samræmis við aðalskipulagsbreytinguna.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi skv. 3. mgr. 41. greinar skipulagslaga.

Nefndin bendir á að tilfærsla reiðvegar og gönguleiðar er að beiðni landeiganda og skal hann bera kostnaðinn af því. Bæta þarf þeim ákvæðum við kafla 6.1 og 6.3 í deiliskipulagi."

Er hér lagt til að sveitarstjórn staðfesti ofangreinda afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók: Guðlaug.
5. 2301065 - Ljárskógarbyggð, óverulega breyting á aðalskipulagi, frístundabyggð F23
Umhverfis- og skipulagsnefnd tók málið fyrir á 158. fundi sínum og var eftirfarandi bókað undir málinu:

"Framlagt erindi þar sem afmörkun frístundabyggðar F23 er breytt og svæðið minnkar úr 18,2 ha í 17,5. Aðliggjandi landbúnaðarsvæði (L1) stækkar sem því nemur. Ákvæði fyrir F23 og L1 eru óbreytt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur breytinguna falla undir málsmeðferð um óverulega breytingu sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þar sem hún tekur til tæplega eins hektara svæðis og áhrif hennar eru óveruleg á umhverfið.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu."

Er hér lagt til að sveitarstjórn staðfesti ofangreinda afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók: Guðlaug.
6. 2505011 - Áskorun frá íbúum Skógarstrandar og eigendum jarða á Skógarströnd til sveitastjórnar Dalabyggðar
Framlögð áskorun frá íbúum Skógarstrandar og eigendum jarða á Skógarströnd til sveitastjórnar Dalabyggðar vegna sameiningaviðræðna sveitarfélagsins við Húnaþing vestra.
Sveitarstjórn staðfestir móttöku áskorunarinnar.
Áskorun til Dalabyggðar.10.25.Lokaskjal..pdf
7. 2505011 - Skipun sameiginlegrar kjörstjórnar við íbúakosningar um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra
Á 259. fundi sveitarstjórnar óskaði hún eftir að kjörstjórn tilnefndi fulltrúa úr sínum röðum í sameiginlega kjörstjórn vegna íbúakosninga um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra samkvæmt 5. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga nr. 922/2023. Kjörstjórnir sveitarfélaganna leggja til að Húnaþing vestra skipi tvo fulltrúa í sameiginlega kjörstjórn og einn til vara og að Dalabyggð skipi einn fulltrúa og tvo til vara. Kjörstjórn Dalabyggðar tilnefnir Valdísi Einarsdóttur til setu í nefndinni og Svein Gestsson og Bergþóru Jónsdóttur til vara.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu kjörstjórna um skiptingu fulltrúa í sameiginlegri kjörstjórn og skipar Valdísi Einarsdóttur til setu í nefndinni og Svein Gestsson og Bergþóru Jónsdóttur til vara.
Sveitarstjórn felur sameiginlegri kjörstjórn vegna íbúakosninga um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra að taka ákvarðanir um kjörstaði, kjördeildir og opnunartíma kjörstaða.

Til máls tók Bjarki.
8. 2505011 - Skipun undirkjörstjórnar við íbúakosningu um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra
Samkvæmt 5. gr. reglugerðar nr. 922/2023 um íbúakosningar sveitarfélaga er sveitarstjórnum heimilt að skipa undirkjörstjórn og fela henni verkefni samkvæmt a-, c- og d-lið 3.mgr. 5. gr. Lagt er til að sveitarstjórn nýti þessa heimild og skipi kjörstjórn sveitarfélagsins sem undirkjörstjórn vegna íbúakosninga um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra sem fram fara 28. nóvember til 13. desember nk.
Sveitarstjórn samþykkir að skipa kjörstjórn sveitarfélagsins sem undirkjörstjórn vegna íbúakosninga um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra sem fram fara 28. nóvember til 13. desember nk. Sveitarstjórn leggur áherslu á að kjörstjórnir við kosningarnar hafi með sér samráð um verkaskiptingu vegna framkvæmdar kosninganna.

Til máls tók Bjarki.
9. 2505011 - Tilkynning um íbúakosningar til Þjóðskrár Íslands
Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 922/2023 um íbúakosningar sveitarfélaga skal tilkynna Þjóðskrá Íslands um boðaða atkvæðagreiðslu og á hvaða tímabili hún fer fram eigi síðar en 30 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst.
Sveitarstjórn felur samstarfsnefnd að tilkynna Þjóðskrá Íslands um boðaða atkvæðagreiðslu. Sveitarstjórn felur samstarfsnefnd jafnframt að óska eftir því við Þjóðskrá Íslands að opnað verði fyrir uppflettingar í kjörskrá á vef Þjóðskrár Íslands á meðan á atkvæðagreiðslu stendur. Sveitarstjórn felur samstarfsnefnd að tryggja að kjörskrá verði aðgengileg til skoðunar á skrifstofu sveitarfélagsins eigi síðar en 14 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst og að kynna framlagninguna fyrir íbúum.

Til máls tók Bjarki.
10. 2505011 - Atkvæðaseðill til afnota við íbúakosningu um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra
Lögð fram tillaga samstarfsnefndar um atkvæðaseðil til afnota við íbúakosningu um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra.
Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og felur sameiginlegri kjörstjórn sveitarfélaganna að senda atkvæðaseðilinn til innviðaráðuneytis til staðfestingar.

Til máls tók Bjarki.
Fundargerðir til kynningar
11. 2509001F - Byggðarráð Dalabyggðar - 340
11.1. 2503006 - Úrgangsþjónusta - útboð 2025
Farið yfir opnunarskýrslu útboðs á úrgangsþjónustu fyrir Dalabyggð.
Sveitarstjóra og umsjónarmanni framkvæmda falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
11.2. 2509004 - Beiðni um rekstrarstyrk vegna 2026
Framlögð beiðni um rekstrarstyrk fyrir árið 2026 frá Kvennaathvarfinu.
Byggðarráð þakkar erindið en getur ekki orðið við beiðninni að þessu sinni.
11.3. 2508012 - Erindi vegna Eiríksstaða
Framlagt erindi frá staðarhöldurum á Eiríksstöðum varðandi aðstöðumál, er þetta annað erindi sent í kjölfar afgreiðslu byggðarráðs á 339. fundi.
Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
11.4. 2505016 - Fjárhagsáætlun 2026-2029
Rætt um stöðu vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árin 2026 til 2029.
Rætt um fjárfestingarþörf og fyrstu drög að tillögu þess efnis til næstu fjögurra ára.
Farið yfir fjárhagsáætlunargerð og fjárfestingarþörf.
11.5. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal
Farið yfir stöðu framkvæmda við íþróttamiðstöðina og lagðar fram fundargerðir verkfunda.
M.a. rætt um malbik við og í tengslum við íþróttamannvirki.
Sveitarstjóra og umsjónarmanni framkvæmda falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
11.6. 2508005 - Frístundahús að Laugum í Sælingsdal
Varðar lóðir fyrir sumarhús í landi Lauga í Sælingsdal og samskipti við lóðarhafa og meðeiganda Dalabyggðar að landinu.
Sveitarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
11.7. 2505011 - Sameiningarviðræður
Kynnt staða mála í formlegum viðræðum Dalabyggðar og Húnaþings vestra um sameiningu sveitarfélaganna tveggja.
Verið er að undirbúa íbúafundi vegna sameiningar. Búið er að opna upplýsingavef um sameininguna: www.dalhun.is
11.8. 2509006 - Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Framlagðar umsóknir um grunnskólavist utan Dalabyggðar.
Samþykkt samhljóða.
12. 2509003F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 56
Til máls tók Garðar.
12.1. 2509008 - Birtuorka og endurnýjanlegar orkulausnir
Fulltrúi Alor ehf. kynnir möguleika birtuorku og verkefni fyrirtækisins (gestur).
Atvinnumálanefnd þakkar Lindu fyrir komuna og samtalið.

Linda fór m.a. yfir þau tilraunaverkefni sem Alor vinnur að þessi misserin. Áhugi er fyrir að koma með kynningarfund og eiga samtal við áhugasama aðila. Verkefnastjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og eiga samskipti við Alor.

Nefndin vísar því til umhverfis- og skipulagsnefndar að skoða hvort uppsetning á sellum á húsþök og/eða veggi þarfnist samþykkis (þ.e. útlitsbreyting byggingar) og ræði afstöðu til uppsetningar bæði í þéttbýli og dreifbýli.
12.2. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026
Rætt um undirbúning fyrir almyrkva á sólu 2026 (gestur).
Atvinnumálanefnd þakkar Sævari fyrir komuna og samtalið.

Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Snæfellsnes, Höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Í Dalabyggð mun almyrkvi sjást frá Skógarströnd, Fellsströnd og Skarðsströnd.
Skv. Booking.com er 99% gistirýma á svæðinu Vestfirðir, Dalir, Snæfellsnes, Norðurland Vestra og suður úr uppbókað.
Huga þarf að ýmsum þáttum; salernisaðstöðu, aðgengi viðbragðsaðila og viðbúnaður heilsugæslu, bílastæði fyrir allar stærðir ökutækja, tjaldstæði og pláss fyrir húsbíla af öllum stærðum, ástand vega, mat bæði í verslun og veitingastöðum o.s.frv.

Nefndin leggur til að almyrkvinn verði til umræðu á samhristingi ferðaþjóna þann 13. nóvember nk. til að ræða undirbúning í héraði.
Nefndin leggur einnig til að skoðað verði að fá fræðslu í Auðarskóla í tengslum við atburðinn og vísar þeirri tillögu til fræðslunefndar Dalabyggðar.
Sveitarfélagið hugi einnig að samráði við landeigendur og íbúa varðandi atburðinn og fyrirkomulag kringum hann.
12.3. 2503014 - Forgangsröðun innviðamála í Dalabyggð
Nefndin leggur lokahönd á skýrslu um innviðamál í Dalabyggð.
Farið yfir drög að skýrslu um innviði í Dalabyggð.

Lagt til að nefndin afgreiði prófarkalestri í gegnum tölvupóst. Stefnt að því að skýrslan verði tilbúin fyrir sveitarstjórnarfund 9. október nk. Verkefnastjóra falið að vinna áfram að málinu.
13. 2508002F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 158
13.1. 2301065 - Ljárskógarbyggð, deiliskipulag frístundabyggðar
Deiliskipulagið tekur til frístundabyggðar F23. Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti til 14. febrúar 2025 og tekin fyrir og samþykkt í umhverfis- og skipulagsnefnd 4. mars 2025. Tillagan var ekki send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun og er því enn í skipulagsferli. Tillagan er nú tekin fyrir að nýju samhliða óverulegri aðalskipulagsbreytingu vegna afmörkunar F23 með lagfæringum til samræmis við aðalskipulagsbreytinguna.
Deiliskipulagið tekur til frístundabyggðar F23. Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti til 14. febrúar 2025 og tekin fyrir og samþykkt í umhverfis- og skipulagsnefnd 4. mars 2025. Tillagan var ekki send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun og er því enn í skipulagsferli. Tillagan er nú tekin fyrir að nýju samhliða óverulegri aðalskipulagsbreytingu vegna afmörkunar F23 með lagfæringum til samræmis við aðalskipulagsbreytinguna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi skv. 3. mgr. 41. greinar skipulagslaga.

Nefndin bendir á að tilfærsla reiðvegar og gönguleiðar er að beiðni landeiganda og skal hann bera kostnaðinn af því. Bæta þarf þeim ákvæðum við kafla 6.1 og 6.3 í deiliskipulagi.
13.2. 2301065 - Ljárskógarbyggð, óverulega breyting á aðalskipulagi, frístundabyggð F23
Framlagt erindi þar sem afmörkun frístundabyggðar F23 er breytt og svæðið minnkar úr 18,2 ha í 17,5. Aðliggjandi landbúnaðarsvæði (L1) stækkar sem því nemur. Ákvæði fyrir F23 og L1 eru óbreytt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur breytinguna falla undir málsmeðferð um óverulega breytingu sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þar sem hún tekur til tæplega eins hektara svæðis og áhrif hennar eru óveruleg á umhverfið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu.
13.3. 2509016 - Beiðni um umsögn vegna umsóknar ræktunarleyfis Hvammsskeljar ehf í Hvammsfirði
Framlögð beiðni um umsögn vegna ræktunarleyfis Hvammsskeljar ehf. í Hvammsfirði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið, en bendir á að Breiðafjarðarnefnd þarf meðal annarra að fá erindið til umsagnar.
13.4. 2504015 - Ályktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslands 2025
Framlögð ályktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslands.
Erindið var kynnt umhverfis- og skipulagsnefnd.
13.5. 2509008 - Birtuorka og endurnýjanlegar orkulausnir
Atvinnumálanefnd Dalabyggðar vísaði á 56. fundi sínum í kjölfar heimsóknar sem nefndin fékk þar sem kynntir voru möguleikar varðandi birtuorku eftirfarandi:

"Nefndin vísar því til umhverfis- og skipulagsnefndar að skoða hvort uppsetning á sellum á húsþök og/eða veggi þarfnist samþykkis (þ.e. útlitsbreyting byggingar) og ræði afstöðu til uppsetningar bæði í þéttbýli og dreifbýli."
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur sóknarfæri á þessu sviði og telur að ekkert sé því til fyrirstöðu að húseigendur komi fyrir sellum á húsum sínum til orkuframleiðslu, út frá skipulagsregluverki, en leggur til að húseigendur leiti til byggingarfulltrúa um ástand mannvirkja í hverju tilfelli fyrir sig.
13.6. 2508011 - Vindorkuver í landi Hróðnýjarstaða - umhverfismatsskýrsla
Framlögð umsögn Dalabyggðar sem skilað var í til Skipulagsstofnunar þann 12.september sl.
Umsögn sveitarstjórnar lögð fram til kynningar.
14. 2508003F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 144
Til máls tók Ingibjörg.
14.1. 2508008 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2025-2026
Farið yfir stöðu mála í grunnskólanum.
Guðmundur Kári kynnti stöðuna í daglegu starfi skólans síðustu vikur. Einnig fór Guðmundur Kári yfir áfallaáætlun skólans og uppfærslu á því skjali í ljósi aðstæðna.

Kynnt uppfærð drög að skólareglum sem hafa verið kynnt fyrir starfsfólki grunnskóla, eftir er að fara yfir drögin með starfsfólki leikskóla og skólaráði. Samþykkt að taka drögin til umræðu á næsta fundi fræðslunefndar.

Starfandi skólastjóri kynnti það sem fram fór á starfsdegi starfsmanna mánudaginn 6.október sl.

Kristrún frá Ásgarði skólaþjónustu fór yfir aðkomu Ásgarðs að starfi skólans í þeim aðstæðum sem uppi eru og aðstoð við stjórnendur og starfsmenn.

Kynnt var hvatning frá atvinnumálanefnd Dalabyggðar þess efnis að skoðað verði að fá fræðslu í Auðarskóla í tengslum við almyrkva 12. ágúst 2026. Fræðslunefnd tók jákvætt í hvatninguna.

Fræðslunefnd lýsir ánægju með allt viðbragð starfsmanna skólans og vill koma á framfæri þakklæti sínu til þeirra.
14.2. 2508009 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2025-2026
Farið yfir stöðu mála í leikskólanum.
Svanhvít Lilja fór yfir stöðu mála í leikskólanum. 22 börn eru núna í leikskólanum og stefnir í fjölgun að óbreyttu í janúar 2026. Verið er að fara yfir námsvísi og fara yfir ákveðna þætti í samstarfi við Ásgarð skólaþjónustu líkt og verið er að gera í grunnskólanum.

Fræðslunefnd lýsir ánægju með allt viðbragð starfsmanna leikskólans og vill koma á framfæri þakklæti sínu til þeirra.
14.3. 2508007 - Ungmennaráð 2025-2026
Framlagðar umsóknir/framboð ungmenna í ungmennaráð Dalabyggðar.
Farið yfir fram komnar umsóknir/framboð í Ungmennaráð Dalabyggðar.
Fræðslunefnd þakkar framkomnar umsóknir/framboð.

Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að bjóða þeim Ísabellu Rós Guðmundsdóttur og Óliver Sebastían Tý Almarssyni laus sæti í Ungmennaráði Dalabyggðar.

Þórey vék af fundi undir þessum lið.

14.4. 2505001 - Lýðheilsa
Á fundinn mætir nýr lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar Ísak Sigfússon en Guðný Erna Bjarnadóttir hefur nú látið af störfum.
Rætt um verkefnin framundan t.a.m. hvenær stefnt skuli að því að vinna við mótun lýðheilsustefnu fyrir Dalabyggð fari af stað.
Fræðslunefnd býður Ísak velkomin til starfa um leið og Guðnýju eru þökkuð hennar störf fyrir Dalabyggð.
14.5. 2412001 - Félagsmiðstöðin Gildran
Rætt og kynnt starfið í félagsmiðstöðinni og einnig fékk fræðslunefnd kynningu á ferð ungmenna til Noregs.
Guðný Erna sagði frá ferð ungmenna frá Íslandi til Noregs.
Fræðslunefnd er sammála um að óska eftir stuttri greinargerð frá fulltrúum Dalabyggðar í ferðinni.

Fræðslunefnd lýsir ánægju með virkni félagsmiðstöðvarinnar í samstarfsverkefnum á vegum SAMFÉS sem og almennri virki í félagsmiðstöðinni.
14.6. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal
Kynnt staða mála varðandi framkvæmdir og farið í skoðunarferð um mannvirkið.
15. 2509004F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 76
15.1. 2501031 - Félagsmál 2025
Farið yfir stöðu mála í málaflokknum.

Umrædd mál eru bundin trúnaði og því ekki frekar bókað hér.
15.2. 2505022 - Samningur um barnaverndarþjónustu
Farið yfir stöðu mála varðandi barnavernd. Núgildandi heimild Dalabyggðar til að vera sjálfstæð í málaflokknum gildir til 15. nóvember n.k.
Rætt um stöðu mála í viðræðum um mögulega aðild Dalabyggðar að barnaverndarþjónustu.
15.3. 2411008 - Gott að eldast á Vesturlandi
Kynnt staða mála í samskiptum við HVE.


15.4. 2406000 - Forvarnarmál
Farið yfir stöðu mála varðandi forvarnir í Dalabyggð.
15.5. 2405012 - Farsældarráð Vesturlands
Lagt er upp með stofnun á Farsældarráði Vesturlands á Haustþingi SSV þann 24. september næstkomandi.

16. 2501003 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2025
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 984..pdf
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 985.pdf
17. 2501006 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2025
197_2025 0918_Samþykkt fundargerð..pdf
195_2025_05028_samþykkt fundargerd..pdf
194_2025_0310_Samþykkt fundargerð..pdf
196_2025_0813_samþykkt fundargerð..pdf
18. 2401010 - Fundir Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2024
193_2024_1216_Samþykkt fundargerð..pdf
Mál til kynningar
19. 2508011 - Vindorkuver í landi Hróðnýjarstaða - umhverfismatsskýrsla
Framlögð til kynningar umsögn Dalabyggðar varðandi umhverfismatsskýrslu um vindorkuver í landi Hróðnýjarstaða.
Umsögn Dalabyggðar undirrituð.pdf
20. 2501008 - Skýrsla sveitarstjóra 2025
Til máls tók Bjarki.
260 fundur 9. október 2025.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:45 

Til bakaPrenta