| |
| 1. 2606032 - Ráðning skólastjóra | |
Byggðarráð staðfestir ráðningu og ráðningarsamning við Katrínu Kristjánsdóttur í starf skólastjóra Auðarskóla.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 2. 2601012 - Auðarskóli, málefni Tónlistarskóla 2026 | |
| Byggðarráð fagnar því að tekinn hafi verið í notkun glæsilegur nýr flygill og þakkar öllum sem áttu þátt í söfnun fyrir hljóðfærinu fyrir þeirra framlag. Taka þarf ákvörðun um hvernig ráðstöfun á eldri flygli verður háttað til framtíðar og í því skyni mun byggðarráð taka samtal við stjórnendur Auðarskóla. | | |
|
| 3. 2606021 - Umsókn um lóð Lækjarhvammur 24 | |
Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Lækjarhvammur 24 til Guðbrandar Jóns Jónssonar og Hafdísar Ingu Melsted Ásgeirsdóttur.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
| 4. 2606001 - Reglur um auglýsingar í íþróttamannvirkjum | |
Byggðarráð samþykkir uppfærðar reglur um auglýsingar á skjám í íþróttamiðstöð og felur sveitarstjóra að birta reglurnar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 5. 2506014 - Samkomulag um þjónusutu við börn með fjölþættan vanda | |
Byggðarráð tekur undir bókun félagsmálanefndar og ítrekar mikilvægi þess að Samband íslenskra sveitarfélaga beiti sér áfram í málinu en um er að ræða mikið hagsmunamál sem getur haft töluverð áhrif á afkomu sveitarfélaga.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 6. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu | |
Byggðarráð felur sveitarstjóra að hefja formlegt samtal um samstarf við Barnaverndarþjónustu Vesturlands vegna samstarfs um rekstur barnaverndarþjónustu.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
| 7. 2606016 - Deiliskipulag Iðjubrautar - óveruleg breyting 2026 | |
Byggðarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 8. 2603013 - Haukabrekka, lóð C, óveruleg deiliskipulagsbreyting | |
Byggðarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 9. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd | |
Byggðarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 10. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal 20242025 | |
Byggðaráð samþykkir framlagðan viðauka við verksamning á milli sveitarfélagsins og Eyktar vegna byggingu Íþróttamiðstöðvar. Umræddir verkliðir rúmast innan fjárheimilda ársins.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | | |
|
Viðar Þór Ólafsson, verkstjóri áhaldahúss kemur á fundinn undir dagskrárlið 11.
| | 11. 2602034 - Styrkvegir 2026 | |
Viðar fer yfir tillögu að skiptingu styrkvegafés. Kr. 4.000.000 fengust í styrkvegi 2026.
| | |
|
| 12. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 | |
Breytingar á samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar vegna sameiningar á nefndum teknar til fyrri umræðu.
Sveitarstjóra falið að uppfæra samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar til samræmis við umræður á fundi og samþykktunum vísað til síðari umræðu í sveitarstjórn.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | | Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar.pdf | | |
|
| 13. 2607004 - Fundartími byggðarráðs og kosning varaformanns | |
Byggðarráð staðfestir að fundir byggðarráðs skuli fara fram fjórða fimmtudag í mánuði kl. 13:00 og að varaformaður byggðarráðs til eins árs verði Ingveldur Guðmundsdóttir.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| |
| 14. 2606003F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 165 | | Fundargerð framlögð | 14.1. 2606014 - Skipun varaformanns og ritara 2026 - 2030 Samþykkt samhljóða | 14.2. 2604002 - Umsókn um byggingarleyfi við Ásuhvamm 1a Umsókn um byggingarleyfi á lokahúsi Rarik var samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar 12. maí 2026. Umsóknin var grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010 fyrir íbúum Brekkuhvamms 12, sbr. tölvupóst dags. 8. maí 2026. Brugðist hefur verið við athugasemdum Vegagerðarinnar og byggingarfulltrúa falið að afgreiða umsóknina.
Samþykkt samhljóða | 14.3. 2606015 - Fundartími Umhverfis- skipulagsnefndar 2026-2030 Umhverfis- og skipulagsnefnd ákveður að fundir nefndarinnar skulu fara fram 1. miðvikudag hvers mánaðar kl. 16:00.
Samþykkt samhljóða | 14.4. 2606002 - Endurnýjun lóðarleigusamnings Farið yfir stöðu málsins og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram á grundvelli gildandi deiliskipulags.
Samþykkt samhljóða | 14.5. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd Tillagan hefur verið lagfærð og skilmálar heimila nú aðeins eitt frístundahús á hverjum byggingarreit í samræmi við aðalskipulag, bætt var við umfjöllun um umhverfisáhrif og framsetning gagna lagfærð sbr. afgreiðslu HMS 5. mars 2026.
Samþykkt samhljóða | 14.6. 2606016 - Deiliskipulag Iðjubrautar - óveruleg breyting 2026 Tillagan víkur ekki verulega frá skilmálum gildandi deiliskipulags hvað varðar notkun, byggingarmagn og yfirbragð og fellur undir málsmeðferð um óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða | 14.7. 2603013 - Haukabrekka, lóð C, óveruleg deiliskipulagsbreyting Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða | 14.8. 2606018 - Umsókn um byggingarleyfi að Haukabrekku C, frístundahús og bílskúr Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að byggingarfulltrúi vinni málið áfram.
| | |
|
| 15. 2606006F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 152 | | Fundargerð framlögð | 15.1. 2606025 - Skipun varaformanns og ritara Samþykkt samhljóða | 15.2. 2606026 - Fundartími fræðslunefndar Samþykkt samhljóða | 15.3. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu Fræðslunefnd Dalabyggðar leggur til við sveitarstjórn að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands um mögulegt samstarf um rekstur barnaverndarþjónustu, með það að markmiði að efla faglega þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að hún uppfylli þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt gildandi lögum og viðmiðum.
Málinu vísað til sveitarstjórnar
Samþykkt samhljóða | 15.4. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 Fræðslunefnd telur mikilvægt að hafin verði vinna við breytingar á samþykktum um stjórn Dalabyggðar í samræmi við framangreint. Með slíkri breytingu er leitast við að efla heildarsýn og samþættingu í skyldum málaflokkum, þar sem verkefni skarast í auknum mæli í framkvæmd. Breytingunni er ætlað að einfalda stjórnsýslu, draga úr tvíverknaði og bæta yfirsýn, sem stuðlar að skilvirkari ákvarðanatöku og hagkvæmari rekstri.
Málinu vísað til sveitarstjórnar til fyrri umræðu.
Samþykkt samhljóða | 15.5. 2606001 - Reglur um auglýsingar í íþróttamannvirkjum Fræðslunefnd samþykkir framlögð drög að uppfærðum reglum og vísar málinu til sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða
| 15.6. 2606017 - Reglur um styrki til tónlistanáms utan Dalabyggðar Fræðslunefnd felur sveitarstjóra að endurskoða reglur til samræmis við umræður á fundi og leggja aftur fyrir fræðslunefnd.
Samþykkt samhljóða | 15.7. 2606032 - Ráðning skólastjóra Fræðslunefnd fagnar ráðningu Katrínar Kristjánsdóttur í starf skólastjóra Auðarskóla og telur hana vel til starfans fallna í ljósi reynslu og þekkingar á skólastarfinu. Nefndin óskar Katrínu velfarnaðar í starfi.
| 15.8. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026 Starfandi skólastjóri fór yfir skólastarf síðasta vetrar og þau verkefni sem eru framundan áður en kennsla hefst í haust. Ljóst er að endurnýja þarf búnað í grunnskóladeild m.a. borð og stóla í kennslustofur, kaupa sófasett og vinna ákveðna þarfagreiningu á húsbúnaði og nýtingu rýma.
Fræðslunefnd leggur áherslu á að unnin verði þarfagreining í grunnskóladeild í samráði við skólastjóra í haust þar sem m.a verður farið yfir búnaðarþörf og aðbúnað. Að horft verði til þeirrar vinnu við fjáhagsáætlunargerð í haust.
| | |
|
| 16. 2606007F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 79 | | Fundargerð framlögð | 16.1. 2606022 - Skipun varaformanns og ritara Samþykkt samhljóða | 16.2. 2606023 - Fundartími félagsmálanefndar Samþykkt samhljóða | 16.3. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 félagsmálanefnd telur mikilvægt að hafin verði vinna við breytingar á samþykktum um stjórn Dalabyggðar í samræmi við framangreint. Með slíkri breytingu er leitast við að efla heildarsýn og samþættingu í skyldum málaflokkum, þar sem verkefni skarast í auknum mæli í framkvæmd. Breytingunni er ætlað að einfalda stjórnsýslu, draga úr tvíverknaði og bæta yfirsýn, sem stuðlar að skilvirkari ákvarðanatöku og hagkvæmari rekstri.
Málinu vísað til sveitarstjórnar til fyrri umræðu.
Samþykkt samhljóða | 16.4. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu Félagsmálanefnd Dalabyggðar leggur til að við sveitarstjórn að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands um mögulegt samstarf um rekstur barnaverndarþjónustu, með það að markmiði að efla faglega þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að hún uppfylli þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt gildandi lögum og viðmiðum.
Málinu vísað til sveitarstjórnar
Samþykkt samhljóða | 16.5. 2606028 - Erindi til nýkjörinna sveitarstjórna landsins Félagsmálanefnd tekur jákvætt í erindið og undirstrikar mikilvægi virks og öflugs öldungaráðs sem vettvangs samráðs og ráðgjafar í málefnum eldri borgara. Nefndin felur sveitarstjóra að hafa hliðsjón af erindinu í áframhaldandi vinnu.
Samþykkt samhljóða
| 16.6. 2506014 - Upplýsinga fundur um Samkomulag um þjónusutu við börn með fjölþættan vanda Félagsmálanefnd Dalabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.
Félagsmálanefnd telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
Sveitartjóra falið að koma áskorun á framfæri og málinu vísað til byggðarráðs Dalabyggðar til upplýsinga.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
| 17. 2606009F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 50 | | Fundargerð framlögð | | |
|
| 18. 2606005F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 58 | | Fundargerð framlögð | 18.1. 2606030 - Kosning varaformanns og ritara Fram kom tillaga um Jón Egil Jóhannsson sem varaformann og Lindu Guðmundsdóttur sem ritara nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða. | 18.2. 2606029 - Stefna atvinnumálanefndar 2026 - 2030 Áherslur ræddar, tengsl og stuðning við atvinnulífið, óstaðbundin störf og komandi uppfærslu á innviðaskýrslu, sem stoðtæki við atvinnulífið. Einnig rætt um húsnæðismál bæði fyrir fólk og fyrirtæki.
Sérstaklega var talað um landbúnað og umhverfi hans, nýliðun, stuðning og lagaumhverfi. Einnig aðeins um verslun sem þjónar atvinnurekstri í Dölunum. | 18.3. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026 Nefndin fagnar frumkvæði sveitafélagsins og hvetur íbúa og fyrirtæki til að vera vel byrg og undirbúin undir álag og umferð. | 18.4. 2606019 - Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi Nefndin hyggst vinna málið áfram. | 18.5. 2606020 - Hvítbók um byggðamál Nefndin hyggst vinna málið áfram. | | |
|
Lagt er til að Valdís Gunnarsdóttir verði varaformaður umhverfis- og skipulagsnefndar
Lagt er til að Bjarnheiður Jóhannsdóttir verði ritari umhverfis- og skipulagsnefndar