| |
1. 2009004 - Menningarmálaverkefnasjóður | |
6 umsóknir bárust og þakkar nefndin kærlega fyrir góðar undirtektir.
Eftirfarandi úthlutun lögð fram til afgreiðslu í samræmi við úthlutunarreglur sjóðsins: Skemmtikvöld Slysavarnadeildar Dalasýslu: 30.000 kr.- Byggðasafn Dalamanna - Bæir í Miðdölum (ljósmyndasýning): 40.000 kr.- Byggðasafn Dalamanna - Bæir á Skarðsströnd (ljósmyndasýning): 40.000 kr.- Jólatónleikar - Er líða fer að jólum: 90.000 kr.-
Samþykkt samhljóða. | | |
|
2. 2110030 - Bæjarhátíð 2022 | |
Nefndin vinnur áfram að dagskrá, búið er að hafa samband við nokkra aðila og einnig hafa borist erindi frá þátttakendum fyrri hátíða. | | |
|
3. 2203007 - Aðgengi að bókasafni | |
Nefndin ræðir möguleika á aðgangsstýringu að Héraðsbókasafni Dalasýslu með það að markmiði að rýmka aðgang íbúa að safninu. Nefndin leggur til við byggðarráð að kannaðar verði lausnir til að ná því markmiði. | | |
|