| |
1. 2011029 - Ungmennaráð Dalabyggðar 2020 - 2021 | |
Fræðslunefnd óskaði eftir tilnefningum í ungmennaráð og gáfu 7 stúlkur kost á sér, ein af þeim hefur ekki náð 14 ára aldri og kemur því ekki til greina þetta árið. Til að gæta jafnréttis kynjanna var reynt að fá stráka til að gefa kost á sér í ráðið en án árangurs.
Ungmennaráð Dalabyggðar skal skipað 4 ungmennum á aldrinum 14-20 ára, tveir aðilar af þeim skulu vera á aldrinum, 17-20 ára, einn á aldrinum 14-16 ára og varamaður á aldrinum 14-20 ára.
Tveir aðilar eru á aldrinum17-20 ára og eru því sjálfskipaðir í ráðið, milli hinna fjögra var ákveðið að velja á milli með að draga tvö nöfn úr potti.
Ungmennaráð Dalabyggðar 2020-2021 er skipað eftirfarandi ungmennum:
Sigurdís Katla Jónsdóttir Soffía Meldal Kristjánsdóttir Birna Rún Ingvarsdóttir Dagný Sara Viðarsdóttir
Samþykkt samhljóða | | |
|
| |
2. 2005037 - Niðurstöður ytra mats Auðarskóla | |
Haraldur Haraldsson skólastjóri fór yfir niðurstöður ytra mats. | Auðarskóli.pdf | Auðarskóli - foreldrabréf.pdf | | |
|
3. 2003031 - Breytingar á skólastarfi vegna heimsfaraldurs COVID-19 | Haraldur skólastjóri fer yfir skólastarfið og þær takmarkanir á skólastarfinu sem hafa verið vegna covid-19. Skólanum var skipt niður til að uppfylla sóttvarnir auk þess að kennsla miðstigs fer fram í Leifsbúð. Nemendur sem og allir eru jákvæðir og hefur skólastarf gengið vel. | | |
|
4. 2010009 - Kannanir - framhaldsskóladeild og námsaðstaða | |
Fræðslunefnd mun vinna áfram að málinu. | samantekt_framhaldsskólar_svör.pdf | | |
|