Til bakaPrenta
Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 81

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
29.09.2026 og hófst hann kl. 15:45
Fundinn sátu: Skjöldur Orri Skjaldarson formaður,
Ingibjörg Þóranna Steinudóttir aðalmaður,
Þórunn Þórðardóttir aðalmaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari sat fundinn undir þessum lið
1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Rætt um forsendur vinnu við fjárhagsáætlunargerð.
Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og stöðu vinnunnar.
2. 2609024 - Farsældarráð Vesturlands 2026
Skipa þarf aðal- og varafulltrúa Dalabyggðar í Farsældarráð Vesturlands. Einnig þarf að útnefna nýjan varafulltrúa fagaðila.
Næsti fundur ráðsins er áætlaður 5. nóvember nk.

Félagsmálanefnd leggur til við sveitarstjórn að fulltrúar Dalabyggðar í farsældarráði Vesturlands verði sem aðalmaður formaður félagsmálanefndar Skjöldur Orri Skjaldarsson og varmaður hans verði varaformaður félagsmálanefndar Ingibjörg Þóranna Steinudóttir.

Samþykkt samhljóða og vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.
3. 2607005 - Jafnréttisáætlun 2026-2030
Sveitarstjórnir skulu að afloknum sveitarstjórnarkosningum sjá til þess að innan hvers sveitarfélags verði gerð áætlun fyrir nýtt kjörtímabil um markmið og aðgerðir til að koma í veg fyrir mismunun.

Á síðasta fundi nefndarinnar var eftirfarandi bókað:

Félagsmálanefnd leggur til við sveitarstjórn að jafnréttisáætlun sveitafélagsins verði uppfærð. Nefndin ætlar að rýna stefnuna á milli funda og leggja hana svo fyrir sveitarstjórn í kjölfarið.

Áætlun rýnd.

Uppfærð jafnréttisáætlun lögð fram og rædd. Sveitarstjóra falið að uppfæra áætlunina með tilliti til umræðna og athugasemda á fundi og leggja svo áætlunin fyrir sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða

Jafnrettisáaetlun Dalabyggð uppfaersla júní 2023..pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30 

Til bakaPrenta