| |
1. 2005008 - Fjárhagsáætlun 2021 - 2024 | |
Gjaldskrár Auðarskóla, Silfurtúns, Vatnsveitu, Slökkviliðs, Fráveitu, félagsheimila, hafna Dalabyggðar, Íþróttamiðstöðvar Laugum, vegna hundahalds, fyrir söfnun og eyðingu sorps og söfnun og eyðingu dýraleifa samþykktar samhljóða og verða lagðar fyrir sveitarstjórn.
Byggðarráð leggur til að eftirtaldar breytingar verði gerðar á tillögu að fjárhagsáætlun þannig að fjárfestingar hækki um kr. 1.500.000 (vegna sorphirðu) og rekstrarliðir um kr. 4.258.000 (þjónustusamningar hækkun um kr. 1.014.000, heilbrigðiseftirlitsgjöld hækkun um kr. 500.000, framlag til B hluta hækkun um kr. 331.000, starfræn þjónusta nýtt kr. 280.000, jólagjafir nýtt kr. 450.000, vaxtakostnaður lækkun kr. 85.000, framlag frá A hluta til B hluta kr. 331.000, aðrar húsaleigugreiðslur v. skóla nýtt kr. 250.000, sameiginlegur kostn hækkun kr. 1.876.000). Samþykkt samhljóða.
Greinargerð vegna fjárhagsáætlunar staðfest. | Greinargerð með fjárhagsáætlun 2021-2024 - DRÖG 2.pdf | Fjárhagsáætlun 2021-2024.pdf | | Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari og Magnína Kristjánsdóttir skrifstofustjóri sátu fundinn undir dagskrárlið 1. Ingibjörg, Magnína og Kristján viku af fundi undir lok umræðu um dagskrárlið 1.
| |
|
2. 2012004 - Álit vegna fjárhags | |
Niðurstaða sérfræðiálitsins er að ekki verði séð að áform um fjárfestingu á íþróttamannvirkjum hafi verulega íþyngjandi langtímaáhrif á rekstur og fjárhag sveitarfélagsins gangi áætlanir eftir að öðru leyti.
Byggðarráð óskar eftir gerðir verði útreikningar á greiðslum m.t.t. þess að sala á Laugum dragist og rekstrarkostnaðar á nýjum mannvirkjum. | Álit v fjárhags.pdf | Fygliskjal m áliti.pdf | | |
|
3. 2012001 - Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Dalabyggð | |
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að tillaga að samþykkt um meðhöndlun úrgangs verði samþykkt óbreytt. Samþykkt samhljóða. | Samþykkt um meðhöndlun úrgangs - drög.pdf | | |
|
4. 1904034 - Sorphreinsun - útboð 2020 - 2022 | |
Samþykkt samhljóða að gera ráð fyrir í fjárhagsáætlun að ílát fyrir endurvinnsluúrgang í dreifbýli verði 660 lítra. | | Jóhanna María Sigmundsdóttir verkefnastjóri og Kristján Ingi Arnarsson umsjónarmaður framkvæmda sátu fundinn undir dagskrárliðum 3 og 4.
| |
|
5. 2012003 - Umsögn um leyfi til sölu á skoteldum | |
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við leyfi til sölu skotelda. Samþykkt samhljóða. | Björgunarsveitin Ósk.pdf | | |
|
6. 2004009 - Afskriftir 2020 | |
Beiðni frá Sýslumanninum á Vesturlandi samþykkt samhljóða. | | |
|
7. 2012007 - Álagning fasteignagjalda á vörugeymslu Vesturbraut 12 | |
Byggðarráð samþykkir samhljóða að álagningu fyrir 2020 verði breytt í samræmi við nýtt fasteignamat en að álagning fyrri ára verði óbreytt.
| | |
|
8. 2008016 - Vinnutímabreytingar | |
Samþykkt samhljóða að leggja til að samið verði fyrst um fyrirkomulag styttingar vinnutíma til þriggja eða fjögurra mánaða og síðan gengið frá samningi til 2023. | | |
|
9. 2003016 - Jafnlaunastefna | |
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að við 6. málsgrein jafnlaunastefnunnar bætist við setningin "Stefnt er að því að óútskýrður launamunur verði minni en 1%." Samþykkt samhljóða. | Jafnlaunastefna - undirrituð.pdf | | |
|
| |
10. 1907006 - Jafnlaunavottun | |
Úttekt vegna jafnlaunavottunar hjá Dalabyggð fór fram 3. og 4. desember sl. Niðurstaða í uttektarskýrslu er eftirfarandi: „Niðurstaða úttektarstjóra, að lokinni vottunarúttekt, er að jafnlaunakerfi DB uppfyllir kröfur staðalsins ÍST 85:2012. Hvorki frávik né athugasemdir, þar sem kröfur voru ekki uppfylltar, standa eftir að lokinni vottunarúttekt. Þar af leiðandi mælir úttektarstjóri með að veitt verði vottun á jafnlaunakerfi DB innan hins tilgreinda gildissviðs, „allir starfsmenn DB“." Næsta skref í ferlinu er að vottunarnefnd tekur nú ákvörðun um vottun með hliðsjón af gögnum málsins. Niðurstaða mun liggja fyrir innan tveggja vikna. | | Magnína Kristjánsdóttir skrifstofustjóri sat fundinn undir dagskrárliðum 8, 9 og 10.
| |
|
11. 1905028 - Ægisbraut 2 | Fyrirvarar í kauptilboði hafa verið uppfylltir og verður gengið frá kaupsamningi á næstunni. | | |
|
12. 2012006 - Frá Sveitarfélaginu Skagafirði - Áskorun á Reykjavíkurborg | Byggðarráð Dalabyggðar tekur undir áskorun Sveitarfélagsins Skagafjarðar á Reykjavíkurborg og gerir bókun þess að sinni. Samþykkt samhljóða. | Tölvupóstur frá Sveitarfélaginu Skagafirði 26_11_2020.pdf | | |
|
13. 2012005 - Frá Bláskógabyggð - Miðhálendisþjóðgarður | Byggðarráð Dalabyggðar tekur undir álit Bláskógabyggðar og gerir bókun þess að sinni. Samþykkt samhljóða. | Tölvupóstur frá Bláskógabyggð 1_12_2020.pdf | | |
|
14. 2001053 - Rekstur Silfurtúns 2020 | |
Byggðarráð beinir því til stjórnar Silfurtúns að skoða nýtingu á rýmum. Samþykkt samhljóða. | | |
|
|
16. 1807013 - Vínlandssetur | |
Afstaða byggðarráðs er óbreytt.
| | |
|
17. 2008003 - Bilun í fráveitu | |
Niðurstaða færð í trúnaðarbók byggðarráðs. | | Viðar Ólafsson verkstjóri sat fundinn undir dagskrárlið 17.
| |
|