| |
| 1. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn Dalabyggðar bóki eftirfarandi og láti fylgja með auglýstri tillögu:
"Í samræmi við 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004 tekur sveitarstjórn Dalabyggðar eftirfarandi afstöðu vegna breytingar á landnotkun vegna vatnsmiðlunar í Hvanná á jörðinni Ljárskógum, sem felur í sér að um 70 ha svæði sem í aðalskipulagi er skilgreint landbúnaðarland fer undir miðlunarlón og fær skilgreinda landnotkun „vatn, ár og sjór“ sbr. skipulagsreglugerð. a) Um stærð lands og staðsetningu með tilliti til nýtingaráforma: Landið sem lagt er til að verði tekið úr landbúnaðarnotum er ekki stærra en nauðsynlegt með tilliti til markmiða vatnsmiðlunar sem er að tryggja hæfilegt vatnsforðabúr til að jafna vatnsflæði úr Hvanná í ánna Fáskrúð yfir þurrkatíma hásumars. Ekki er um að ræða aðra raunhæfa valkosti um staðsetningu vatnsmiðlunar, en gert er ráð fyrir henni á fornum lónbotni þar sem Hvanná og Stikukvísl sameinast, á Hvanneyrum. Landbúnaðarsvæðið sem rýrist með tilkomu miðlunarlóns er með tæplega 3% landhalla og staðsett 215 m yfir sjávarmáli. Samkvæmt vistgerðarkorti Náttúrufræðistofnunar einkennist svæðið af melum og mólendi, lítilli til miðlungs gróðurþekju. Ríkjandi jarðvegsgerð svæðisins er áfoksjörð og melajörð, miðlungs þykk og þurr. Því er talið að landbúnaðarlandið sé í flokki III, út frá greiningarlykli um flokkun landbúnaðarlands sem er í viðauka aðalskipulagsins. Breytingin er í samræmi við 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004 þar sem miðað er við að raska landbúnaðarlandi eins lítið og þörf krefur og rýrir ekki samfellt landbúnaðarland. b) Um áhrif breyttrar landnotkunar á aðliggjandi landbúnaðarsvæði: Breytingin hefur ekki neikvæð áhrif á aðliggjandi landbúnaðarsvæði. Svæðið er alllangt uppi á heiði og hluti af upprekstrarlandi en landnotkunarbreytingin er hvorki talin fela í sér óásættanlega skerðingu á ræktunarhæfu landi né upprekstrarlandi."
| | Bréf Skipulagsstofnunar v.breytingu á aðalskipulagi vegna vatnsmiðlunar, Hvanná.pdf | | |
|
| 2. 2602035 - Framkvæmdaleyfi til skógræktar í landi Gautastaða | | |
|
| 3. 2510017 - Umsókn um byggingarleyfi að Kvennbrekku, samkomuhús í gistingu og þjónustu. | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að ekki hafi verið óskað eftir breytingu á núgildandi aðalskipulagi, en það felur ekki í sér heimild til gistiþjónustu á þessu svæði. | | Árblik aðaluppdráttur-undirritað Lota.pdf | | CASE_SNAPSHOT - byggingarleyfisumsokn_21.10.2025..pdf | | |
|
| 4. 2602020 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir vorskýli í landi Ásgarðs | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að sé mannvirki undir 15fm megi byggja það án byggingarleyfis, en fari stærðin yfir það þarf aðaluppdrætti og umsókn um byggingarleyfi. | | |
|
| 5. 2602021 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir 4 sumarhúsum á Erpsstöðum | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn veiti leyfi þar til deiliskipulag liggur fyrir, en að hámarki til 12 mánaða. | | Erpsstaðir 35m²..pdf | | Erpsstaðir MHL 16 45m²..pdf | | Erpstaðir MHL 14-15 45m²..pdf | | |
|
| 6. 2602022 - Umsókn um stofnun lóðar C í Haukabrekku | |
| Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | | |
|
| 7. 2602023 - Umsókn um stofnun lóðar D í Haukabrekku | |
| Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | | |
|
| 8. 2602024 - Umsókn um stofnun lóðar E í Haukabrekku | |
| Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | | |
|
| 9. 2602025 - Umsókn um stækkun lóðar Hvestu í Haukabrekku | |
| Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | | |
|
| 10. 2602026 - Umsókn um stækkun lóðar A í Haukabrekku | |
| Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | | |
|
| 11. 2602027 - Umsókn um stækkun lóðar B í Haukabrekku | |
| Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | | |
|
| 12. 2602028 - Umsókn um stækkun lóðar G í Haukabrekku | |
| Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | | |
|
| 13. 2603003 - Refa og minnkaveiði 2026-2028 | |
| Nefndin leggur til að veiði verði auglýst með svipuðu sniði og farið verði yfir gjaldskrá. | | |
|
| 14. 2603004 - Útboð tæming á rotþróm 2026-2028 | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að fara í útboð á tæmingu rotþróa. | | |
|
| 15. 2603008 - Stofnun lóðar (Grænahlíð) úr Litla-Múla | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar. | | Merkjalýsing_Grænahlíð_fyrir nefnd.pdf | | |
|