Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 298

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
22.09.2022 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Skúli Hreinn Guðbjörnsson formaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir varamaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri atvinnu- kynningar- og menningarmála
Lagt var til að bæta við á dagskrá fundarins einum lið, Framvæmdir 2022, málsnúmer 2202026, sem verði liður 2 á dagskrá fundarins, aðrir liðir færist niður samkvæmt því út frá útsendri dagskrá.

Samþykkt.


Dagskrá: 
Almenn mál
Magnína Kristjánsdóttir skrifstofustjóri, Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari og Kristján Ingi Arnarsson umsjónarmaður framkvæmda sitja fundinn undir dagskrárlið 1
1. 2208006 - Fjárhagsáætlun 2023
Farið yfir fyrstu drög að áætlun.
Búið að taka tillit til flestra launahækkana í útreikningi.
Farið yfir fjármagn til framkvæmda á næstu árum.
Ábendingar komnar frá flestum deildarstjórum/starfsmönnum vegna áætlunarinnar.

Lagt til að sveitarstjórn hittist á vinnufundi kl. 17:00 mánudaginn 26. september, til að fara yfir fyrirliggjandi drög að áætlun.
Sveitarstjóra falið að boða fundinn.

Samþykkt samhljóða.
Kristján Ingi Arnarsson umsjónarmaður framkvæmda situr fundinn undir dagskrárlið 2.
2. 2202026 - Framkvæmdir 2022
Kristján Ingi fer yfir stöðu á framkvæmdum 2022 og kostnað, m.a. með tilliti til fjárfestinga á næsta ári.
3. 2209012 - Laugar í Sælingsdal - samskipti
Rætt um lýsingu í íþróttasal.
Lagt til að Dalabyggð sjái um að setja perur í núverandi ljósastæði.

Samþykkt samhljóða.
4. 2209003 - Umsókn um lóð Lækjarhvammur 22
Umsókn um lóð samþykkt samhljóða.
5. 2101043 - Lóðarleigusamningar í Dalabyggð - uppfærðir
Gunnarsbraut 5
Samþykkt samhljóða.
6. 2101043 - Lóðarleigusamningar í Dalabyggð - uppfærðir
Miðbraut 9
Samþykkt samhljóða.
7. 2101043 - Lóðarleigusamningar í Dalabyggð - uppfærðir
Dalbraut 8
Samþykkt samhljóða.
8. 2209010 - Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Samþykkt samhljóða.
Almenn mál - umsagnir og vísanir
9. 2208013 - Umsögn um rekstrarleyfi til reksturs gististaða í flokki II
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við breytingu á rekstrarleyfi með þeim fyrirvara að rekstraraðili hafi gert samning vegna sorphirðu.

Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl.16:08


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:08 

Til bakaPrenta