| |
1. 2009003 - Jörvagleði 2021 | |
Nefndin fer yfir dagskránna með ný tilmæli um sóttvarnaaðgerðir í huga. Stefnt að því að halda einhverjum viðburðum sem geta verið í streymi en geyma aðra og sjá hvort að tækifæri skapist til að halda þá í sumar/haust. | | |
|
2. 2101024 - Menningarþörf íbúa Dalabyggðar | |
Nefndin fer yfir niðurstöður könnunarinnar og vinnur með hana áfram. Nefndin er ánægð með þátttöku íbúa í könnuninni, gefur nefndinni góðar upplýsingar og hugmyndir til áframhaldandi starfa.
| Nidurstodur_konnun_menningarþorf_felagsheimili.pdf | | |
|
3. 2009015 - Aukin nýting félagsheimila á Vesturlandi | |
Nefndin fer yfir niðurstöður samantektar. Fyrirvari er gerður um að ekki er öll frí notkun skráð. "Eigin notkun" frá eignasjóði er ekki tekin með sem tekjur/kostnaður. Nefndin kallar eftir upplýsingum um bókfærðan afslátt, verkefnastjóri tekur það saman fyrir næsta fund. Nefndin vinnur áfram að málinu. | Félagsheimilin - samantekt.pdf | | |
|
4. 2011018 - Áfangastaðaáætlun 2021-2023 | |
Nefndin fer yfir þá þætti áætlunarinnar sem tengjast menningarmálum. Ýmis verkefni sem gætu vel nýst innan Dalabyggðar s.s. Sagnaseiður, menningardagskrá og fl. Nefndin vinnur áfram með málið. | | |
|
| |
5. 2102019 - Menningarstefna Vesturlands 2021-2025 | |
Formaður situr í vinnuhópi og fer yfir stöðuna. Vinna við nýja stefnu er hafin. Ákveðið hefur verið að betrumbæta eldri menningarstefnu með endurskoðun á henni í stað þess að gera nýja frá grunni. Áætlað að halda vinnustofur um stefnuna þvert á sveitarfélögin sem koma að henni. Fyrsta vinnustofa verður 29. mars nk. (netfundur) þar sem öllum íbúum Vesturlands gefst tækifæri á að koma og ræða menningar-uppeldi. Rætt um starf tónlistarskólans í Dalabyggð. Vinnu við stefnuna á að vera lokið um mitt sumar. | menningarstefna-vesturlands-2016-2019.pdf | | |
|