Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 346

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
09.03.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Skúli Hreinn Guðbjörnsson formaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir varamaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
Þau Magnína Kristjánsdóttir fjármálastjóri Dalabyggðar, Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari Dalabyggðar og Haraldur Örn Reynisson endurskoðandi hjá KPMG sátu fundinn undir dagskrárlið 1.
1. 2602030 - Ársreikningur Dalabyggðar 2025
Framlagður ársreikningur Dalabyggðar fyrir árið 2025 til afgreiðslu í byggðarráði fyrir fyrri umræðu í sveitarstjórn Dalabyggðar.
Haraldur Örn fór yfir ársreikning Dalabyggðar fyrir árið 2025.
Lagt til og samþykkt að vísa ársreikningi 2025 til fyrri umræðu í sveitarstjórn Dalabyggðar.
Byggðarráð þakkar Haraldi Erni fyrir yfirferðina og undirritar ársreikning 2025 í kjölfarið.

Samþykkt samhljóða
2. 2603004 - Útboð - tæming á rotþróm 2026-2028
Samningur við verktaka um rotþróarhreinsun í Dalabyggð er runnin út. Lagt er til að fara í útboð á grundvelli þess fyrirkomulags sem verið hefur við lýði í Dalabyggð undanfarin fimm ár.
Byggðarráð samþykkir að farið verði í útboðsferli vegna rotþróarhreinsunar á vegum Dalabyggðar.
Rætt um tímasetningu næsta fundar byggðarráðs.
Samþykkt að halda hann 30.mars n.k. kl.12:00.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:45 

Til bakaPrenta