| |
1. 2202030 - Fjárhagsáætlun 2022 - Viðauki III | |
Byggðarráð samþykkir viðauka III samhljóða og vísar honum til sveitarstjórnar. | Fjárhagsáætlun 2022-2025 - viðauki III.pdf | | |
|
Einar Jón Geirsson vék af fundi undir dagskrárlið 2 og Pálmi Jóhannsson mætir til fundar.
| 2. 2201031 - Ráðning skólastjóra | |
Fært í trúnaðarbók fram að sveitarstjórnarfundi. | | Einar jón mætir aftur til fundar og Pálmi víkur af fundi.
| |
|
3. 2203025 - Greiðslur til kjörinna fulltrúa kjörtímabilið 2022-2026 | |
Lagt er til við sveitarstjórn að reglur um þóknun til kjörinna fulltrúa sveitarfélagsins Dalabyggðar breytist frá og með upphafi nýs kjörtímabils þannig að almennur sveitarstjórnarmaður fái 26% af mánaðarlaunum fyrir hvern mánuð, fulltrúi í byggðarráði fái 36%, oddviti fái 36% og formaður byggðarráðs fái 41%. Greiðslur fyrir fundi breytist ekki. Í þóknun fulltrúa byggðarráðs, oddvita og formanna byggðarráðs er innifalin þóknun almenns sveitarstjórnarmanns. Sveitarstjóra falið að breyta tillögu að viðauka III (sbr. dagskrárlið 1) þannig að hún nái yfir framangreinda breytingu. Samþykkt samhljóða.
| konnun-a-kjorum-sveitarstjornarmanna-og-framkvaemdastjora-sveitarfelaga-2020.pdf | REGLUR um þóknun til kjörinna fulltrúa sveitarfélagsins Dalabyggðar - Tillaga.pdf | | |
|
Skúli Hreinn Guðbjörnsson vék af fundi undir dagskrárlið 4 og Pálmi Jóhannsson mætti til fundar.
| 4. 2112012 - Leiga á Árbliki | |
Drög að samningi staðfest með þeim fyrirvara að tengja þarf leiguupphæð við vísitölu. Samþykkt samhljóða. | | Skúli mætti aftur til fundar og Pálmi vék af fundi.
| |
|
5. 2203017 - Umsókn um styrk vegna fasteignaskatts | |
Samþykkt samhljóða. | Umsókn um styrk vegna fasteignagjalda og ársreikningur 2921.pdf | | |
|
6. 2201015 - Öryggi rafmagns og fjarskipta | |
Viðvarandi truflanir á rafmagni vestan við Glerárskóga eru óviðunandi. Sömuleiðis eru breytingar á spennu að valda tjóni. Byggðarráð krefst þess að úr þessu sé bætt og bendir á að koma þarf upp varaafli á meðan ástand flutningsmannvirkja er ekki í lagi. Samþykkt samhljóða. | | |
|
7. 2203019 - Kvartanir vegna snjómoksturs | |
Byggðarráð Dalabyggðar skorar á Vegagerðina að tryggja fullnægjandi snjómokstur á vegi 54, Skógarstrandarvegi, sem er stofnvegur. Þegar staðan er eins og verið hefur undanfarið er mokstur tvisvar í viku ófullnægjandi t.d. vegna skólaaksturs. Haga verður snjómokstri eftir aðstæðum hverju sinni. Skv. heimasíðu Vegagerðarinnar er Skógarstrandarvegur eini stofnvegur landsins sem fellur undir F reglu þ.e. með þjónustu 2 daga í viku, mánudaga og föstudaga. Byggðarráð óskar eftir upplýsingum frá Vegagerðinni hvernig slík niðurstaða er fengin. Fyrir liggur að umferð um veginn er töluverð og meiri en um ýmsa stofnvegi með hærra þjónustustig. Um Skógarstrandarveg fer skólabíll fimm daga vikunnar og þar býr fólk sem þarf að geta sótt vinnu. Með núverandi þjónustustigi er byggðarlögum mismunað og verið að hindra eðlilega framþróun í búsetu við Skógarstrandarveg. Einnig er komið í veg fyrir þróun vetrarferðaþjónustu í Dalabyggð þar sem Skógarströnd er mikilvæg leið og tenging milli Snæfellsnes og Norðurlands. Samþykkt samhljóða. | | |
|
8. 2008011 - Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags | |
Fært í trúnaðarbók. | | |
|
9. 2202026 - Framkvæmdir 2022 | |
Samþykkt samhljóða að taka tilboði frá Verklok ehf. í lagningu vatnsleiðslu frá stofnlögn að Laugum og Verkfræðistofu Bjarna Viðarssonar ehf. í hönnun gatna, vatns- og fráveitu í Lækjarhvammi og Iðjubraut. | | |
|
| |
10. 2201018 - Vínlandssetur 2021 | |
Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Anna Sigríður fulltrúar Vínlandsseturs ehf. komu á fundinn (Bjarnheiður í gegnum fjarfundabúnað). Sl. ár var þungt í rekstri. Tíminn í vetur hefur verið notaður í markaðssetningu. Bjartsýni varðandi sumarið. Ætlunin að vera með viðburði (sá fyrsti 12. apríl). Markmiðið að vera komin í daglega opnun um miðjan maí. Skoða þarf merkingar betur.
Byggðarráð þakkar Bjarnheiði og Önnu fyrir góðar upplýsingar um starfsemi Vínlandsseturs. | | Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Anna Sigríður Grétarsdóttir sátu fundinn undir dagskrárlið 10.
| |
|
11. 2203020 - Endurskipulagning sýslumannsembætta | |
Byggðarráð Dalabyggðar bendir á að gæta þarf að því að þjónusta verði jafngóð eða betri en er í dag. Sýslumannsembættin eru mikilvæg fyrir þau byggðarlög þar sem þau hafa aðsetur. Reynsla Dalamanna af því þegar sýslumannsembættið í héraðinu var lagt niður sýnir neikvæða þróun af því að leggja störf af þessu tagi niður. Samþykkt samhljóða. | Scan_r06gura_202203210094_001.pdf | | |
|
|
13. 2203022 - Kynning frá Styrktarsjóði EBÍ | |
Bréf-kynning-2022.pdf | | |
|