| |
1. 2008005 - Ráðning skólastjóra | |
Ráðningarfyrirtækið Intellecta ehf. verður fengið til að koma að ráðningu skólastjóra. Sveitarstjóra falið að auglýsa starfið um næstu helgi. Byggðarráð beinir því til fræðslunefndar að skoða hvort ástæða sé til að gera skipulagsbreytingar samhliða ráðningarferlinu. Samþykkt samhljóða. | | |
|
2. 1903011 - Fundir Sorpurðunar Vesturlands 2019 - 2022 | |
Dalabyggð er sammála þeirri stefnu sem Sorpurðun Vesturlands hefur fylgt til þessa. Hvatt er til þess að því verði flýtt að koma upp brennsluofni fyrir dýrahræ. Samþykkt samhljóða
| Fundarboð_eigendafundur_7_sept_2020.pdf | Leiðir í úrgagnsmálum_1.pdf | Umsögn sambandsins um stefnu ráðherra.pdf | Tölvupóstur - tilkynning um eigendafund Sorpurðunar Vesturlands 13_08_2020.pdf | Fundargerð.stjórnarfundar_12.ágúst.2020.pdf | | |
|
3. 2008009 - Nám í leikskólafræðum 2020-2021 | |
Þar sem ekki virðist vera munur hvað varðar kostnað vegna breyts fyrirkomulags gerir byggðarráð ekki athugasemd við það. Byggðarráð felur skólastjóra að útfæra hvernig framkvæmd verður háttað og gera samning við nemendur í leikskólafræðum. Samþykkt samhljóða. | | |
|
4. 1901043 - Skólaakstur 2019 - 2022 | |
Farið yfir skólaakstur við upphaf skólaárs. | | |
|
5. 2008011 - Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags | |
Fært í trúnaðarbók. | | |
|
6. 2005023 - Fundartími byggðarráðs september 2020 til maí 2021 | Fundir byggðarráðs verða kl. 8 fjórða fimmtudag í mánuði í stað kl. 10, | | |
|
7. 1910016 - Opnunartími Sælingsdalslaugar | Í vetur verði opið á mánudögum kl. 17-21 og miðvikudögum kl. 17-22 eins og síðasta vetur. Einnig verði opið á laugardögum kl. 12-17 í september og annan hvorn laugardag eftir það. Samþykkt samhljóða. | | |
|
8. 2005042 - Opnunartími tjaldsvæðisins við Sælingsdalslaug | Tjaldsvæði Laugum lokar 1. september. Samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
9. 2008001 - Viðgerð á þaki Silfurtúns | |
Við yfirferð tilboða kom í ljós að röð tilboða var önnur en skv. tilboðsblöðum. Tvö tilboð hækkuðu og eitt lækkaði. Samið var við lægstbjóðanda sem var Guðlaugur S. Sigurgeirsson ehf. | | Einar Jón Geirsson vék af fundi kl. 9 að loknum dagskrárlið 9 og Sigríður Huld Skúladóttir mætti á fund í gegnum fjarfundabúnað.
| |
|
10. 1912011 - Byggðasafn Dalamanna - Staðarfell | |
Mikilvægt er að sveitarstjórn taki ákvörðun um hvert skuli stefna varðandi Byggðasafnið og Staðarfell. Samþykkt samhljóða. | | Valdís Einarsdóttir safnvörður Byggðasafns Dalamanna sat fundinn undir dagskrárlið 10.
| |
|
|
12. 2008012 - Frumkvæðisathugun samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins á samstarfssamningum sveitarfélaga | |
Byggðarráð felur sveitarstjóra að ræða við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og viðkomandi sveitarfélög um endurskoðun samninganna m.t.t. athugasemda og leiðbeininga samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytisins. | Frumkvæðisathugun ráðuneytisins á samstarfssamningum sveitarfélaga lokið.pdf | Leiðbeiningar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um samstarfssamninga sveitarfélaga.pdf | Bréf með ath. við eftirfarandi samninga Dalabyggðar við önnur sveitarfélög.pdf | | |
|
|
14. 2005003 - Breytingar á verslun Samkaupa í Búðardal | |
Bréf v.undirskriftarlista.pdf | | |
|
|