Til bakaPrenta
Fræðslunefnd Dalabyggðar - 115

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
29.11.2022 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir formaður,
Jón Egill Jóhannsson aðalmaður,
Guðrún B. Blöndal aðalmaður,
Sindri Geir Sigurðarson aðalmaður,
Heiðrún Sandra Grettisdóttir varamaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, Sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2010009 - Framhaldsnám í Dalabyggð
Þau Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, Skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga, og Bragi Þór Svavarsson, Skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar, mættu á fund nefndarinnar og kynntu sína skóla, námsframboð og hvaða möguleika þau teldu að fyrir hendi væru fyrir nemendur í Dalabyggð og næsta nágrenni til að sækja nám í annaðhvort FSN eða MB án þess að vera í beinu staðnámi og sinna þannig náminu í heimabyggð eins og kostur er.
Fræðslunefnd þakkar þeim Hrafnhildi og Braga kærlega fyrir góðar kynningar á sínum skólum.
Það er ljóst að það er mikil gróska í framhaldsmenntun á Vesturlandi og tækifæri til staðar fyrir Dalabyggð til að koma á samstarfi við framhaldsskólana með einum eða öðrum hætti.
Samþykkt að skoða málin frekar á milli funda fræðslunefndar til hvaða skóla verði horft hvað varðar næstu skref sem og að kanna hvort það sé mögulegt að ná stuðningi við verkefnið frá ríkisvaldinu og/eða úr öðrum áttum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:35 

Til bakaPrenta