| |
Guðrún Esther Jónsdóttir og Sigurdís Elísa Lilja Sigursteinsdóttir komu sem gestir á fund nefndarinnar undir dagskrárlið 1.
| 1. 2112012 - Leiga á Árbliki | |
Guðrún Esther og Sigurdís fara yfir reksturinn á síðasta ári, eða frá aprílbyrjun 2022.
Rekstraraðilar eru bjartsýnar fyrir komandi sumri. Til þess að rekstur geti haldið áfram er þörf á því að fara í endurnýjun á fráveitulögnum á neðri hæð hússins. Einnig þarf að bæta aðgengi að rafmagni á tjaldsvæði.
Nefndin þakkar Guðrúnu og Sigurdísi fyrir komuna. | | |
|
Þorsteinn Gunnlaugsson kom sem gestur á fund nefndarinnar undir dagskrárlið 2.
| 2. 2212003 - Mælingar á farsímasamböndum í Dalabyggð | |
Þorsteinn hefur verið ráðinn til þess að gera úttekt á stöðu fjarskiptamála á Vesturlandi. Þorsteinn kemur inn í umræður um farsímamælingar frá 2022 og fer einnig yfir verkefni sitt hjá SSV.
Nefndin þakkar Þorsteini fyrir komuna. | Dalir skýrsla.pdf | fjarskiptasj_email.pdf | | |
|
Þar sem ekki er um afgreiðslumál að ræða þótti ekki tilefni til að kalla inn varamann á meðan Bjarnheiður fór yfir starfsemi Eiríksstaða undir dagskrárlið 3.
| 3. 2211029 - Eiríksstaðir 2022 | |
Bjarnheiður fer yfir starfsárið 2022 á Eiríksstöðum.
Framkvæmdum sem fengu styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2022 er lokið. Ganga þarf í að laga suðurhlið á tilgátubæ. Hátíðin Kjet&Klæði var haldin á Eiríksstöðum í maí 2022 og stefnt er að því að halda tilraunfornleifafræðihátíð árið 2023.
Nefndin þakkar Bjarnheiði fyrir yfirferðina. | | |
|
4. 2206033 - Jafnréttisáætlun | |
Í kaflanum þar sem talað er um þjónustuveitingu, þarf að skýra ákvæði varðandi kvaðir félaga betur. Í textanum stendur: "Öll félög sem þiggja styrki frá sveitarafélaginu setji sér aðgerðabundnar jafnréttisáætlanir þar sem fram kemur hvernig þau uppfylla 10. gr. laga nr. 85/2018 og 15. gr. laga gr. 150/2020 gagnvart félagsmönnum." Lagt er til að inn í textann komi "...þiggja samningsbundna styrki frá sveitarfélaginu..." Lagt til að inn komi markmið er varða eldri borgara í Dalabyggð, s.s. að fylgst sé með þeim sem þurfa á heimaþjónustu að halda og hvenær viðkomandi fær þjónustuna, upplýsingar séu kyngreindar og brugðist við ef hallar á eitthvert kyn. Mótvægisaðgerðir og mælanleg markmið verði hluti af áætluninni út frá hverri greiningu. Við ráðningar sé horft til þess að efla fjölbreytni í samsetningu starfsmannahópsins.
| Jafnrettisaaetlun Dalabyggd uppfaersla2022 DROG..pdf | | |
|
5. 2210026 - Uppbygging innviða | |
Atvinnumálanefnd leggur til að haldinn verði opinn kynningarfundur á Iðngörðum í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar fyrri hluta febrúar. Verkefnastjóra falið að vinna áfram að málinu. | | |
|
6. 2301021 - Nýsköpunarsetur Dalabyggðar 2023 | |
Nefndin gerir ekki ekki athugasemdir við framlagða gjaldskrá. | Gjaldskrá Nýsköpunarseturs Dalabyggðar.pdf | | |
|
7. 2301014 - Fréttir frá verkefnastjóra 2023 | |
Nefndin gerir ekki athugasemd við áætlun um kynningarstarf árið 2023. | Kynningarstarfsemi_2022-23_JMS.pdf | | |
|
8. 2210006 - Stafræn húsnæðisáætlun | |
Verkefnastjóra og umsjónarmanni framkvæmda falið að vinna áfram að málinu. | dalabyggd-husnaedisaaetlun-2022 (1).pdf | | |
|
| |
9. 2208005 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2022 | |
Lagt fram til kynningar. | atvinnuleysi_dalabyggd_2022.pdf | | |
|