| |
Ísak Sigfússon lýðheilsufulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
| | 1. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal | |
Lýðheilsufulltrúi sagði frá því að nú er búið að manna íþróttamiðstöðina og verið er að kaupa inn húsgögn og annan búnað til þess að hægt verði að opna mannvirkið og hefja starfsemi í febrúar. Lýðheilsufulltrúi kynnti drög að gjaldskrá hússins. Stefnt er að vígslu hússins í lok febrúar. | | |
|
Ísak Sigfússon lýðheilsufulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
| | 2. 2412001 - Félagsmiðstöðin Gildran | |
| Lýðheilsufulltrúi sagði frá starfseminni sem er með líku sniði og verið hefur. Einnig voru kynntar nýjar reglum sem tóku gildi eftir áramótin síðustu varðandi nesti og slíkt og tóku þeir sem mæta í félagsmiðstöðina þátt í að móta þær reglur sem nú gilda. | | |
|
Ísak Sigfússon lýðheilsufulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
| | 3. 2501027 - Farsæld barna í Dalabyggð | |
| Verkefnastjóri fjölskyldusviðs sagði frá stöðu mála í Dalabyggð. Einnig sagði hún frá starfsemi Farsældarráðs á Vesturlandi sem Dalabyggð á aðild að. Fyrsti fundur þess ráðs verður haldinn í yfirstandandi viku og munu fulltrúar Dalabyggðar sitja fundinn. | | |
|
| 4. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026 | |
Skólastjóri fór yfir stöðu mála í grunnskólanum og upplýsti jafnframt fræðslunefnd um að verið er að koma tónlistarskólanum inn í Abler varðandi utanumhald á skráningu og samskipti við nemendur og forráðamenn líkt og komið er á varðandi íþrótta- og félagsstarf ungmenna í Dalabyggð.
| | |
|
| 5. 2601011 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2025 | |
| Skólastjóri fór yfir stöðu mála í leikskólanum. | | |
|
| 6. 2305001 - Skólaþjónusta | |
| Staða máls rædd og samþykkt að halda áfram rýni á verkefninu sem um ræðir. | | |
|
| 7. 2601019 - Drög að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum | |
| Rætt um framkomin drög og sveitarstjóra falið að senda inn umsögn f.h. Dalabyggðar í anda umræðunnar á fundinum. | | |
|