1. 2002053 - Endurskoðun Aðalskipulags Dalabyggðar |
|
Ráðgjafar frá Verkís kynntu aðalskipulagsgerðina og fóru yfir tenginguna við félagsmál. Nefndin ræddi spurningar sem fram komu.
Hvernig getur aðalskipulagið stuðlað og/eða stutt við uppbyggingu félagsþjónustu? Hvernig sjáið þið félagsþjónustu veitta til framtíðar? Er eitthvað á málefnasviði fatlaðra sem þarf að skoða í tengslum við aðalskipulagið?
Rætt um fjölskylduvænt samfélag, að Dalabyggð veiti góð skilyrði fyrir fjölskyldur til að búa á. Mikilvægi þess að huga að aðgengi fyrir alla, bæði í umhverfi og í og við mannvirki Dalabyggðar. Umræða um aðstæður til útivistar t.d aðgengi að göngustígum.
Umræða um búsetukosti fyrir alla í Dalabyggð. Umræða um félagsleg leiguhúsnæði og búsetukosti fyrir eldri borgara í nálægð við Dvalar og hjúkrunarheimili Silfurtún. Samgöngur þurfa að vera góðar til að veita þjónustu í sveitirnar. Rætt um að huga umferðar öryggismálum.
|
|
|