| |
Undir lið 1 á dagskrá situr Katrín Kristjánsdóttir skólastjóri Auðarskóla
| | 1. 2608012 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2026-2027 | |
| Skólastjóri fer yfir stöðu leikskóladeildar Auðarskóla. Ljóst að stór hópur barna kemur inn í skólann á næsta ári og horfa þarft til þess við mönnun skólans á næsta ári. | | |
|
Katrín Kristjánsdóttir skólastjóri situr fundinn undir lið 2
| | 2. 2608011 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026-2027 | |
| Skólastjóri fer yfir skólastarfið þar sem af er hausti. Í grunnskóladeild Auðarskóla í vetur eru 67 nemendur og kennt í 6 hópum. | | Katrín yfirgefur fundinn kl. 13:55
| |
|
Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari sat fundinn undir þessum lið
| | 3. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 | |
Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2027 og stöðu vinnunnar.
| | |
|
| 4. 2609016 - Viðverustefna Dalabyggðar 2026 | |
Lögð fram drög að mannauðsstefnu Dalabyggðar, Siðareglum starfsmanna Dalabyggðar, viðbragðsáætlun gegn einelti, áreitni og ofbeldi og viðverustefnu Dalabyggðar.
Rætt um reglurnar og inntak þeirra.
Sveitarstjóra falið að kynna drögin fyrir stjórnendum og öðru starfsfólki sveitarfélagsins og ef engar efnislegar breytingar verða þá er reglunum vísað beint til sveitarstjórnar. | | |
|
Einar Björn Þorgrímsson lýðheilsufulltrúi sat fundinn undir þessum lið
| | 5. 2609026 - Ályktanir ungmennaþings | |
Ályktanir ungmennaþings Vesturlands lagðar fram til kynningar og vísar fræðslunefnd ályktunum til ungmennaráðs Dalabyggðar til umfjöllunar.
Fræðslunefnd lýsir yfir ánægju með vinnuframlag og áhuga ungmenna á Vesturlandi en ljóst er að mikil vinna liggur að baki þessum ályktunum. | | |
|
| 6. 2608013 - Ungmennaráð 2026-2027 | |
Farið yfir umsóknir/framboð þeirra ungmenna sem hafa sýnt áhuga á að starfa í ráðinu.
Fræðslunefnd samþykkir að skipa Aðalheiði Rós Unnsteinsdóttur og Grétar Bæring Helguson í Ungmennaráð Dalabyggðar.
Fræðslunefnd þakkar fyrir framkomnar umsóknir/framboð.
Samþykkt samhljóða | | Heiðrún vék af fundi undir þessum lið.
| |
|